Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 62
62 .
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
BÆKUR
Eftir að mamma hennar fór fyrir-
varalaust í burtu með Hallmar sá
Bebba yfirleitt enga ástæðu til að
fara heim að Neðri-Bakka eftir
skóla. Þar var ekkert sem beið
hennar, engin mamma, enginn
bróðir, enginn leikfélagi.
Ýmist fór hún í vinnuna til Guð-
nýjar þar sem hún var alltaf vel-
komin, í heimsókn til vinkvenna eða
kom við hjá frænda sínum og leik-
félaga í næsta húsi. Þegar hún var
nokkuð viss um að Guðný væri
komin heim úr vinnunni hljóp hún
yfir á Neðri-Bakka til að fá sér að
borða með henni. Hún forðaðist
Bjarna eins og heitan eldinn – sér-
staklega þegar hann var
kominn vel við skál. En
dag einn kom að því að
örlögin urðu ekki umflú-
in.
Þegar Bebba kom ein
heim undir kvöldmat sat
Bjarni við eldhúsborðið.
Öskubakkinn var fullur af
stubbum og það var enn
minna eftir í brennivíns-
flöskunni en vanalega á
þessum tíma dags. Hann
þreif í Bebbu, tók þétt með annarri
hendinni utan um mittið og spurði
hvort hún ætlaði ekki að gefa hon-
um eitthvað að éta.
„Er Guðný ekki heima?“ spurði
Bebba og losaði sig frá honum en í
þann mund kom Guðný uppáklædd
inn í eldhús og sagðist vera að fara
í bíó með vinkonu sinni. Bebba gæti
ekki komið með því að myndin væri
alls ekki við hæfi 12 ára barna.
Bjarni sem að jafnaði var fámáll
var nú óvenju málglaður og lá hátt
rómur. Hann skipaði Bebbu að
koma og gefa sér að borða, hann
væri orðinn svangur og vinnudag-
arnir hefðu lengst eftir að hann
þurfti að sjá fyrir henni. Ekki væri
einfalt að hafa hana í fæði og hús-
næði, því hún væri bæði plássfrek
og gráðug.
„Mamma þín skildi þig eftir og
borgar ekkert með þér. Þú þarft að
vinna fyrir þér, krakki. Drífðu þig í
að gefa mér eitthvað að éta.“ Að
jafnaði skipti Bjarni sér mjög af
Guðnýju og gerði athugasemdir ef
hún fór út á kvöldin en í þetta sinn
lét hann sem ekkert væri – Guð-
nýju væri velkomið að fara út af
heimilinu. Óttaslegin leit Bebba á
Guðnýju sem klæddi sig spennt í
skóna áður en hún dreif sig í bíóið.
„Sestu bara í fangið á honum.
Hann róast við það,“ hvíslaði
Guðný í þann mund sem hún hljóp
niður tröppurnar og út á plan þar
sem vinkonan beið hennar.
……………..
Þegar amma Sigríður kom af
sjúkrahúsinu í Reykjavík trúði
Bebba því að gamla konan
sæi til þess að Bjarni léti
hana í friði. Amma gisti í
kompunni hjá þeim Guð-
nýju og þó að hún væri
ekki orðin sextug var
heilsan farin að gefa sig og
hún var upp á börnin sín
komin með framfærslu.
Bjarni tryggði húsaskjól
og fæði en Guðný keypti
fyrir hana neftóbak sem
var það eina sem gamla
konan lét eftir sér. Hún var lagin í
höndunum og prjónaði bæði og
heklaði. Hún las allar bækur sem
hún komst í og ósjaldan lenti
Bebba í því að bækur vantaði í
töskuna þegar hún mætti í skólann.
Oftast fundust þær undir kodd-
anum hjá ömmu hennar.
Ekki fór það framhjá dótturdótt-
urinni að amman glímdi við andlega
erfiðleika og ekki var óalgengt hún
legði sig eftir hádegi og svæfi jafn-
vel lungann úr deginum. Til að
hressa ömmuna við spilaði hún við
hana og hjálpaði til við heimilis-
störfin. En amman var ekki mikill
bógur og Bebba sá að vænlegast
var að vera sem minnst heima til
að forðast Bjarna.
En engu skipti þótt amman væri
í húsinu. Bjarni var kominn á
bragðið og hélt áfram að nota hana
með þeim hætti sem hann gerði
þegar Guðný fór í bíóið. Hann virt-
ist stundum hikandi við að láta slag
standa en freistingin var of mikil.
Ítrekað hljóp Bebba öskrandi út úr
húsinu og lætin í henni gátu varla
hafa farið framhjá Gunnari á hæð-
inni eða nágrönnunum þegar þeir
sáu hana jafnvel koma berfætta, fá-
klædda og í miklu uppnámi út úr
húsinu. En þó að fólkið heyrði
hugsanlega öskrin þá virtist enginn
heyra bænirnar.
Smám saman fékk Bebba kjark
til að kalla Bjarna öllum illum nöfn-
um, jafnvel fyrir framan ömmu sína
eða aðra viðstadda, en ekki gat hún
með neinu móti komið orðum að því
hvað hann hefði gert henni. En eft-
ir því sem reiði stúlkunnar braust
meira út þeim mun ósáttari varð
gamla konan við framkomu stúlk-
unnar. Hún bar sig aumlega yfir
ástandinu við Gunnar á neðri hæð-
inni.
„Krakkinn er að gera hann
Bjarna kolvitlausan. Djöfulgang-
urinn í henni freistar hans og það
er ekki nóg með að hún hafi rústað
lífi Blómeyjar heldur er hún að
gera allt brjálað hér. Þetta ástand
er að gera útaf við mig.“
Annað heyrði Bebba ekki af sam-
tali þeirra en þetta dugði henni til
að meta það sem svo að amma
hennar yrði ekki sú sem kæmi
henni til bjargar.
Bebba hafði verið á Reyðarfirði í
nærri tvö ár þegar hún flúði enn og
aftur heimilið vegna ágengni
Bjarna en að því kom að hún áttaði
sig á því að í stað þess að standa
undir húsvegg og bíða eftir aðstoð
almættisins yrði hún að leita til ein-
hvers sem hún gat treyst.
Henni kom það snjallræði í hug
að mikilvægasti bandamaður henn-
ar væri eflaust skólastjórinn góð-
hjartaði. Ekki einungis bæri hann
hag barnanna fyrir brjósti og væri
nýlega búinn að verðlauna hana
fyrir góðar framfarir í skólanum
heldur var hann augljóslega ekki í
sama liði og Bjarni í pólitík og átt-
aði sig eflaust á því að móðurbróðir
hennar væri ekki góður maður.
Næst þegar henni ofbauð rauk
Bebba af stað til skólastjórans.
Drjúgur spölur var að heimili hans
en hana bar hratt yfir því tilhugs-
unin um að hjálp væri handan við
hornið létti henni sporin.
Bebba var búin að bíta á jaxlinn
og þurrka tárin þegar hún bankaði
upp á. Kunnuglegur ilmur af ný-
bökuðum smákökum barst út þegar
skólastjórinn opnaði fyrir henni. Í
fjarska inni í fallega húsinu sá hún
konuna hans leggja heita plötuna
með smákökum á eldhúsborðið.
Bebbu sýndust þetta vera hálf-
mánar eins og Jóhanna afasystir
var vön að baka. Konan leit spyrj-
andi á eiginmanninn sem iðulega
þurfti að fást við einhver vandamál
tengd krökkunum í skólanum, ekki
síst börnunum sem komu úr borg-
inni og voru hálf ráðvillt.
Skólastjórinn spurði um erindið
þar sem hann stóð í gættinni og
hún sagðist þurfa að segja honum
frá Bjarna.
„Hvað með Bjarna?“ spurði
hann.
Þegar hún loks komst í gang
með að deila frásögn sinni var eins
og allar flóðgáttir himins opnuðust.
Hún fór að hágráta, dró ekkert
undan og sagði honum í smáat-
riðum hvað á hefði gengið á Neðri-
Bakka í nærri tvö ár.
Brúnaþungur virtist skólastjór-
inn hlusta á hvert orð en frásögnin
tók langan tíma og stúlkunni var
augljóslega orðið mjög kalt þar sem
hún stóð berfætt í vaðstígvélunum.
„Þú verður að hjálpa mér,“ sagði
hún og leit brostnum augum á
manninn sem hún bar svo mikla
virðingu fyrir.
„Bíddu augnablik,“ sagði hann og
lokaði dyrunum á meðan hann fór
aftur inn í húsið. Vongóð lét Bebba
hugann reika á meðan hún beið á
tröppunum, velti fyrir sér hvað
tæki nú við og hvort skólastjórinn
og konan hans myndu kannski
leyfa henni að búa hjá þeim á með-
an leitað væri annarra lausna.
Hann birtist aftur en opnaði bara
í hálfa gátt svo að kuldinn ætti ekki
jafn greiða leið inn í húsið.
„Ég hringdi í Bjarna,“ sagði
hann, „og bar undir hann þessar al-
varlegu ásakanir. Hann er alveg
miður sín, niðurbrotinn maður og
yfir sig hneykslaður á því að þú
skulir launa honum húsaskjólið með
því að bera svona tilbúning á borð.
Hann vildi fá fullvissu mína fyrir
því að ég tryði þessu ekki upp á
hann,“ sagði hann og bætti því við
að hann vissi ekki til þess að Bjarni
hefði nokkurn tímann unnið manni
mein.
Skólastjórinn sagði ákveðinn að
það væri alvarlegt að bera rangar
sakir upp á fólk.
„Hættu nú þessum skáldskap,
Sigríður mín, og drífðu þig áður en
veðrið versnar.
Farðu heim.“
……………..
Fara heim? hugsaði hún þegar
hún gekk niður tröppurnar á húsi
skólastjórans. Hugsanirnar hring-
snerust í höfði hennar. Hvernig gat
hún klúðrað þessu? Hafði hún ekki
sagt allt? Hafði hún ekki opnað sig
og lýst fyrir honum þeim hryllingi
sem hún hafði upplifað á Neðri-
Bakka? Hafði hún ekki í fyrsta sinn
sagt einhverjum frá því hvernig
„Hættu nú þess-
um skáldskap“
Í Tvísögu segir Ásdís Halla Bragadóttir sögu móður sinnar og þeirra mæðgna.
Saga þeirra er full af gleði en líka djúpum harmi, vonum og vonbrigðum og
sannleika sem aldrei er einhlítur. Þegar hér er komið sögu er Bebba, móðir
Ásdísar Höllu, 12 ára og býr hjá móðurfólki sínu á Reyðarfirði. Blómey, móðir
Bebbu, fór til Reykjavíkur ásamt syni sínum og skildi Bebbu eftir eina á
Neðri-Bakka, heimili Bjarna, hálfbróður Blómeyjar.
Gulltryggðu jólagleðina í
CARAT Haukur gullsmiður O Hátúni 6a O s. 577 7740 O carat.is
Ekkert jólastress, nú getur þú
verslað í nýrri glæsilegri
netverslun okkar
carat.is
sendum frítt um land allt.
SAGA FLUGSINS
holabok.is / holar@holabok.is
Saga flugsins frá upp-
hafi flugtilrauna til
okkar dags - með ágripi
af flugsögu Íslands.
Snilldarverk af hálfu
Örnólfs Thorlaciusar,
þess mikla fræðimanns
á mörgum sviðum.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS