Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 65
. 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 BÆKUR 1983 heimsótti Gunnar bresku hafnarborgina Newcastle og eftir að hafa kynnt sér hve efnahags- aðgerðir Thatchers höfðu leikið at- vinnulíf borgarbúa grátt komst hann svo að orði: „Þá vil ég heldur inflation en þessar hörmungar“ (Guðni Th. Jóhannesson: Gunnar Thoroddsen, 555). Þá deildu stjórnarliðar um end- urskoðun samninga við álverið í Straumsvík. Hjörleifur Guttorms- son iðnaðarráðherra gagnrýndi eigendur þess fyrir að hækka bók- fært virði erlendra aðfanga (oft kallað „hækkun í hafi“) til að kom- ast hjá hækkun raforkuverðs sem var tengt við afkomu verksmiðj- unnar. Aðrir stjórnarliðar, einkum framsóknarmenn, óttuðust að slík óbilgirni myndi hindra frekari fjár- festingu í stóriðju en að lokum tókst að semja um rúmlega 100% hækkun raforkuverðs og tengingu þess við markaðsverð á áli. Stjórnin sat í nærri þrjú og hálft ár – lengur en fyrri þriggja flokka stjórnir – og um margt hefur gagnrýni á hana fyrir bága hag- stjórn ekki verið alls kostar sann- gjörn. Þannig var t.d. ríkissjóður rekinn hallalaus tvö ár í röð í fyrsta sinn síðan í tíð viðreisnar. Enda var hún vinsæl meðal al- mennings allt fram á lokaskeið hennar þegar verðbólgan var sann- arlega farin úr böndunum, a.m.k. ef marka má reglubundnar skoð- anakannanir sem voru nýnæmi á valdatíma hennar. Að auki náðu þeir sjálfstæðismenn sem studdu stjórnina í andstöðu við flokksfor- ystuna fádæma árangri í próf- kjörum fyrir kosningar 1983. Á meðan galt formaðurinn, Geir Hallgrímsson, afhroð og féll í kjöl- farið af þingi. Þá kom í hlut næstu ríkis- stjórnar, samstjórnar Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks undir forystu Steingríms Hermannsson- ar, að skera upp herör gegn verð- bólgu með sársaukafullum aðgerð- um fyrir launþega. Þessir tveir flokkar höfðu allt frá þriðja ára- tugnum (þá reyndar Íhaldsflokk- urinn) talist höfuðandstæðingar í íslenskum stjórnmálum og margir framsóknarmenn tileinkað sér fræg ummæli Tryggva Þórhalls- sonar frá 1924, „allt er betra en íhaldið“. Flokkarnir höfðu ein- göngu myndað tveggja flokka sam- steypustjórnir 1953, 1956 og 1974 en nú var öldin önnur því allt frá 1983 til loka þess tímabils sem hér er til umfjöllunar, 2009, var ein- ungis tvisvar efnt til stjórnarsam- starfs að afloknum kosningum án atbeina þeirra beggja, þ.e. 1991 og 2007. Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar 1983-87 fylgdi ekki einarðri, hægrisinnaðri peninga- stefnu í anda Thatchers, niður- skurður ríkisútgjalda var t.a.m. mun mildari og einkavæðing tak- mörkuð við sölu Landsmiðjunnar 1984 og hlutabréfa í Flugleiðum og Eimskipafélagi Íslands 1985. Sjálf- stæðisflokkurinn var engu að síður stærri flokkurinn, þótt Steingrími hefði verið falið að gegna embætti forsætisráðherra vegna veikrar stöðu Geirs Hallgrímssonar, og gætti nú meira áhrifa frjálshyggju í stefnu hans með umsvifum svo- nefnds Eimreiðarhóps. Þetta voru einstaklingar sem höfðu gefið út samnefnt tímarit á áttunda ára- tugnum undir einkunnarorðunum „Kjölfesta frjálshyggjunnar er trú- in á manninn“ og áttu þrír þeirra eftir að verða næstu flokks- formenn, Þorsteinn Pálsson (1983- 91), Davíð Oddsson (1991-2005) og Geir Haarde (2005-09). Skýr hægristefna var t.d. við lýði í innleiðingu frjálsari markaðs- hátta. Allan lýðveldistímann hafði verið miðstýrt verðlagseftirlit með ýmiss konar opinberum afskiptum af verðmyndun á markaði, m.a. með því að grípa til verðstöðvunar til að reyna að halda aftur af verð- bólgu. Í ársbyrjun 1984 voru þann- ig afnumdar ýmsar takmarkanir á álagningu í verslun í þeirri von að virk samkeppni héldi aftur af verð- hækkunum. Neytendasamtök þreyttust þó seint að benda á að ansi víða væri slík „virk sam- keppni“ ekki fyrir hendi. Áhrifa peningastefnu mátti greina í efl- ingu innlends fjármagnsmarkaðar með stofnun Verðbréfaþings Ís- lands 1985 (nefndist Kauphöll Ís- lands 2002) og þegar viðskipta- bönkum var veitt aukið frelsi til að ákvarða vexti 1986. Ennfremur innleiddi stjórnin strax í upphafi mjög harkalegar aðgerðir á vinnu- markaði, afnam vísitölubindingu launa (þá voru eingöngu inn- og útlán verðtryggð skv. Ólafslögum), felldi gengið um 15%, bannaði verkföll um hríð og framlengdi kjarasamninga einhliða. Launþegar urðu fyrir einni mestu skerðingu á kjörum og rétt- indum í sögunni, ekki síst þar sem hún varð um líkt leyti og þjóð- arbúið sigldi vegna fyrrnefnds aflasamdráttar inn í djúpa kreppu. Haustið 1984 skipulögðu BSRB og Félag bókagerðarmanna verkfall sem hafði lamandi áhrif á þjóðlíf því það náði m.a. til allra helstu fjölmiðla landsins. Verkfallið skil- aði hins vegar litlum kjarabótum en olli sundrungu innan verkalýðs- hreyfingarinnar þar sem ASÍ studdi það ekki enda höfðu félagar þess orðið fyrir minni kjaraskerð- ingu. Aðgerðir stjórnarinnar leiddu til þess að verðbólgan lækkaði nið- ur í 25% að jafnaði 1983-87 og hafði þá ekki verið lægri síðan á öndverðum áttunda áratugnum. En aðgerðirnar voru sársauka- fullar, einkum fyrir opinbera starfsmenn og lántakendur. Árið 1984 var t.d. áætlað að sá sem keypti meðalstóra þriggja her- bergja íbúð þyrfti að greiða 125% kaupverðsins þegar háir raunvext- ir höfðu stökkbreytt lánunum. Tíu árum áður hafði verðbólgan leikið fasteignalánið svo grátt að kaup- andinn hefði greitt að raunvirði helming af umsömdu verði íbúðar- innar. Ljósmynd/Sögufélagið Vísindi Árið 1984 var á dagskrá Sjónvarps umræðuþáttur þar sem banda- ríski hagfræðingurinn Milton Friedman sat fyrir svörum. Meðal þátttak- enda var Ólafur Ragnar Grímsson stjórnmálafræðingur sem gagnrýndi áherslur hans á peningahyggju og einkavæðingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.