Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 70

Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 70
70 . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016 BÆKUR UNNARSTÍGUR 3 Hinn fjórtán ára gamli Grétar Örn, sonur Eiríks Finns og Guð- laugar, vaknaði ekki með látum heldur rólega, og hélt í fyrstu að eitthvað hefði dottið úr hillu í her- bergi Auðuns Gunnars, eldri bróð- ur síns, þar sem hann og yngsti bróðirinn gistu þessa nótt. Það tók hann smástund að átta sig á að- stæðum en hann fann fyrir ein- hverju sléttu sem lá skáhallt yfir þeim bræðrum. Hann grunaði í fyrstu að þetta væri loft herberg- isins og hélt þá að þakið hefði gef- ið sig undan snjóþunga. Grétar fann að það var allt blautt í kring- um hann og ætlaði að kveikja ljós. Hann þreifaði meðfram gafli rúms- ins eftir rofa sem þar var fyrir les- ljósið ofan við rúmið en fann bara fyrir snjó. Rofinn var ekki þarna lengur. Sjö ára bróðir Grétars, Smári Snær, var vaknaður og spurði hvað væri að gerast. Þá áttaði Grétar sig á að eitthvað þrengdi að húsinu að utan. Eins og risastór greip hefði læst sig um heimili þeirra og kreisti það nú hægt og rólega. Herbergið virtist fara minnkandi. Hvorugur var slasaður en þeir voru hins vegar lokaðir inni í þessu litlu rými og Grétar fann hvernig innilokunarkenndin heltók hann. Hann varð að beita sig hörku til að halda ró sinni, leyfa ekki hræðsl- unni að ná yfirhöndinni, aðallega bróður síns vegna. Þeir heyrðu einhver kunnugleg hljóð og Grétar taldi þau koma frá gröfu sem væri á ferð um götuna. Hann botnaði ekkert í því hver væri að þvælast um á vinnuvél um hánótt en hljóð- ið róaði hann að einhverju leyti. Þá áttaði hann sig á því að hljóðið kom ekki að utan heldur úr rúm- inu, frá fótboltaspili sem gekk fyrir rafhlöðum og var í eigu eldri bróð- ur þeirra. Í öllum látunum hafði kviknað á því og það lá einhvers staðar í rúminu hjá bræðrunum. Grétar náði að krækja í það en gat með engu móti slökkt á því og það pirraði hann óendanlega. Svo tók hann eftir svolítilli ljós- skímu sem barst inn um gat ofan við fótagafl rúmsins. Hann gat með erfiðismunum troðið höfðinu og öxlunum út um gatið. Hann hélt að hann sæi þá fram á ganginn, en svo var ekki. Ljósið kom að utan og barst inn um gluggann á her- berginu við hliðina. Grétar botnaði ekki neitt í neinu, allt var einhvern veginn á vitlausum stað. Þar sem enginn virtist heyra í þeim ákvað Grétar að reyna að komast út úr prísundinni og leita að hjálp. Hann fann meira fyrir gremju en hræðslu á þessari stundu og fannst óþol- andi að ná ekki sam- bandi við foreldra sína sem hann taldi að svæfu værum svefni annars staðar í húsinu. Hann náði að smeygja efri hluta líkamans út um litla gatið og hífði sig svo upp í gegnum það. Glufan var svo þröng að hann reif bolinn sinn og rispaðist á fótum við að smokra sér þar í gegn. Hann kallaði til litla bróður síns og sagði honum að bíða kyrr í herberginu og reyndi að róa hann eftir fremsta megni. Þegar augun höfðu aðlagast myrkrinu sá Grétar sér til skelfingar að hitt herbergið var fullt af braki. Líkt og þar hefði orðið kröftug sprenging. Hann ákvað að freista þess að fara út um glugga á herberginu við hliðina og reyna svo að komast inn í húsið annars staðar frá. Hann kallaði aftur til Smára og sagði honum að hreyfa sig hvergi, hann ætlaði rétt að skjótast og ná í for- eldra þeirra. Glerið í glugganum var mölbrotið og festingin laus svo hann komst auðveldlega út í snjó- inn. Um leið og hann sökk upp að lærum í blautum snjónum heyrði hann Gunnar frænda sinn og ná- granna kalla til sín og spyrja hvort allt væri í lagi. „Já, ég ætla bara að hlaupa og vekja mömmu og pabba,“ svaraði Grétar og hljóp fyrir hornið. Þá sá hann að þakið var farið af húsinu. Þá fyrst áttaði hann sig á því að þakið hafði ekki bara gefið sig undan snjóþunga, eins og hann hafði haldið, og þeir Smári voru ekki þeir einu sem höfðu lent í hremmingum. Eitthvað miklu alvarlegra hafði gerst. Í nokkrar sekúndur stóð Grétar Örn stjarfur í hálfgerðu losti. Gunnar var horfinn aftur inn. Hann var aleinn. Einn í einhverri undarlegri, hvítri veröld þar sem ríkti graf- arþögn. Bjargarlaus. Hann ráfaði í átt að húsi Guð- jóns frænda síns en hélt jafnvel að hann stefndi í öfuga átt því húsið var hvergi að sjá, aðeins enda- lausar snjóöldur. Hann gekk upp á eina þeirra, þar sem heimili þeirra Guðjóns og Bjarnheiðar átti að vera, og þegar hann leit til hliðar sá hann að efri hæðin á því húsi hafði flotið með flóðinu tugi metra frá grunninum. Í minningu Grétars var blanka- logn en mikil snjókoma. Að minnsta kosti fannst honum mikil kyrrð yfir öllu. Hann hélt áfram ferðinni eins og í leiðslu. Þá heyrði hann kallað til sín: „Hver er þetta?“ Grétar sagði til sín og þá hrópaði maðurinn að hann yrði að hlaupa í skjól og finna hús þar sem hann gæti hringt í neyðarnúmer, stórt snjó- flóð hefði fallið á eyrina. Grétar sá ekki hver það var sem kallaði til hans. Hann heyrði heldur ekki lengur í litla bróður sínum. Þá var eins og rynni á hann æði. Hann hljóp af stað út í náttmyrkrið, ber- fættur á nærfötunum. Aðeins ein hugsun komst að: að hlaupa yfir á Brimnesveg til Magneu oddvita og Páls Önund- arsonar, foreldra Halldórs Gunn- ars, vinar hans. Grétar var nánast í annarlegu ástandi í þessari undraveröld. Í öllu myrkrinu sá hann samt skært ljós sem hann áttaði sig ekki á hvaðan barst. Eins og í leiðslu hljóp hann yfir endalausar snæöldurnar, fram hjá kirkjunni. Hann fann ekki fyrir kulda en nú var aðeins farið að blása aftur, hann var með vindinn í fangið og náði varla andanum í kófinu. Hann hægði aðeins á sér við kirkjuna. Þegar hann kom að samkomuhúsinu kom hann auga á gat á skúr skammt frá og stakk höfðinu þar inn andartak til að fylla lungun af súrefni. Adrenalínið sem flæddi um líkamann rak hann áfram. Áfram, fram hjá samkomu- húsinu og upp á Brimnesveginn. Hafnarstræti 41 Þorkell Yngvason vaknaði við bylmingshögg sem kom á hús þeirra bræðra við Hafnarstræti. Í kjölfarið fann hann óbærilegan kulda. Hann hrökk upp og hélt í fyrstu að þakið hefði fokið af hús- inu í óveðrinu. Hann fálmaði í myrkrinu í leit að slökkvaranum en svo rann það upp fyrir honum að líklega væri ekkert rafmagn á húsinu ef þakið hefði fokið af. Hann reis á fætur, fór fram á gang og kallaði á tvíburabróður sinn og Lilju. Ekkert svar. Þá varð honum litið út um gluggann en sá ekkert nema hvítt. Hann var enn ekki búinn að átta sig á því sem gerst hafði. Svo tók hann eftir því að dyrnar að herbergi Þorleifs voru ekki á sínum stað. Hann var enn utangátta þegar hann leit aft- ur út um gluggann og þá rann það upp fyrir honum að flóð hlyti að hafa fallið úr Eyrarfjalli. Skyndi- lega sá hann hreyfingu fyrir utan húsið. Þorkell barði í gluggann sem var nærri frosinn aftur, opn- aði hann og reyndi að greina hver væri á ferðinni. Þetta var Grétar Örn, sonur Eiríks Finns, sem þarna klofaði yfir risavaxna skafl- ana, berfættur og á nærfötunum einum klæða. Þorkell náði að opna gluggann og hrópaði að honum að koma sér strax í skjól í næsta hús og hringja í lögregluna, láta vita af flóðinu. Grétar Örn virtist í miklu uppnámi og sinnti í engu kalli Þor- kels heldur hljóp áfram og hvarf honum fljótlega sjónum í hríð- arkófinu. Þá kom eins konar fítonsandi yf- ir Þorkel. Í stjórnlausum tryllingi réðst hann á allt sem á vegi hans varð til að komast inn til bróður síns. Hann náði að brjótast inn á baðherbergið en sá þá að það var orðið helmingi minna en áður, veggurinn var kominn alveg upp að baðkerinu. Þá sá hann inn í her- bergi bróður síns og áttaði sig á að það vantaði hornið í herbergið þar sem rúm Þorleifs og Lilju hafði staðið. Þau voru horfin. Hann dró djúpt andann og reyndi að hugsa skynsamlega. Ekki dygði að fara út svona illa klæddur, svo hann fann til buxur, sokka og inniskó. Ekki var meira af fötum að hafa á efri hæðinni og neðri hæðin var kjaftfull af snjó. Þorkell braut glugga og bjóst til að stökkva til jarðar af annarri hæð. Fallið varð þó ekki mikið, þéttur snjórinn náði alveg upp að efri hæðinni. Þá heyrði hann angistaróp El- ínar, sem hrópaði á hjálp. Hann fraus í sporunum. Ópin nístu inn að hjartarótum. Hann stóð augna- blik ráðvilltur á götunni og reyndi að finna út hvert hann ætti að snúa sér. Bæði þjálfun hans og reynsla úr starfinu með björg- unarsveitinni gerðu að verkum að hann hljóp ósjálfrátt í átt til þeirra sem kölluðu á hjálp, Elínar og Gunnars. En þá mundi hann eftir bróður sínum. Hinum helmingnum af sjálfum sér. Hann yrði að hjálpa Þorleifi og Lilju. Þorkell kallaði til Elínar að hann gæti ekki komið til aðstoðar, hann þyrfti sjálfur að reyna að koma tveimur öðrum til bjargar. Í risastórri greip Morgunblaðið/RAX Nóttin sem öllu breytti heitir bók Sóleyjar Eiríks- dóttur og Helgu Guðrúnar Johnson um snjóflóðið á Flateyri 26. október 1995 sem varð tuttugu manns að bana. Í kaflanum sem hér fer á eftir er sagt frá íbúum á Unnarstíg 3 og Hafnarstræti 41. Tilvís- unum er sleppt. Snjóflóð Hornið hvarf af Hafnarstræti 41. Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið. Fást í öllum helstu matvöruverslunum og í fiskborði stórmarkaðanna. Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.