Morgunblaðið - 08.12.2016, Blaðsíða 85
ÍSLENDINGAR 85
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Skipulags-, arkitekta- og verk-
fræðistofuna ehf. í Reykjavík.
Gestur hefur haldið fyrirlestra um
skipulagsmál og byggingarlist hér á
landi og erlendis, hefur ritað fjöl-
margar greinar um þessi mál í blöð
og tímarit, var ritstjóri Stefnis um
skeið og var útgefandi og ritstjóri
tímaritsins Arkitektúr og skipulag
(AVS) í tvo áratugi.
Gestur stofnaði Útimarkaðinn á
Lækjartorgi með Kristni Ragnars-
syni arkitekt árið 1978 og starf-
ræktu þeir hann þar til Reykja-
víkurborg hóf rekstur útimarkaðar á
þessu svæði.
Hann hefur átt sæti í stjórn Arki-
tektafélags Íslands, Kvenréttinda-
félags Íslands og félagsins Verk-
efnastjórnun. Hann var einn af
stofnendum umhverfissamtakanna
Lífs og lands og síðar formaður
þess. Þá var hann formaður Skipu-
lagsfræðingafélags Íslands um skeið
og forseti Rotaryklúbbsins Reykja-
vík miðborg. Þá hefur hann setið í
ýmsum nefndum, m.a. á vegum
Reykjavíkurborgar og ríkisins.
Gestur er fyrsti háskólakennari í
skipulagsfræðum hér á landi og hef-
ur um árabil rætt og ritað um mik-
ilvægi skipulags á umhverfismótun,
samspil mannlífs og umhverfis og
gæði, hagkvæmni og tækni í gerð
íbúðabygginga: „Við erum því miður
enn að byggja allt of dýrt íbúðar-
húsnæði fyrir ungt fólk. Í þokkabót
er svo þetta húsnæði oft illa unnið, of
oft með myglusveppi og tæknilega
illa gert. Okkur skortir því enn upp-
lýsta umræðu og gagnrýni á gerð,
kostnað og gæði íbúðarhúsnæðis.“
Þá hafa Gestur og Árni Gunnars-
son, fyrrv. alþm. og framkvæmda-
stjóri NLFÍ í Hveragerði, unnið að
sínu sameiginlega áhugamáli um
heilsuþorp fyrir Íslendinga, með
augastað á Flúðum og á Spáni.
Fjölskylda
Kona Gests er Guðbjörg Garðars-
dóttir, f. 23.9. 1952, bókasafns- og
upplýsingafræðingur. Hún er dóttir
Garðars Ingimarssonar bifvéla-
virkja og Magneu Jónsdóttur hús-
móður, sem er látin.
Dóttir Gests og Guðbjargar er
Guðrún Sóley, f. 4.9. 1987, bók-
menntafræðingur sem sér með fleir-
um um Morgunútgáfuna á Rás 2.
Synir Gests og f.k.h., Ernu Ragn-
arsdóttur, eru Ragnar Kristján, f.
4.8. 1964, kennari á Eyrarbakka,
kvæntur Hildi Jónsdóttur og eiga
þau níu börn, og Ólafur Hrólfur, f.
4.12. 1969, forritari í Reykjavík, en
kona hans er Jódís Bjarnadóttir og á
hann tvær dætur auk þess sem Jódís
á tvo syni frá fyrra hjónabandi.
Stjúpsonur Gests og sonur Guð-
bjargar er Sveinn Björnsson, f.
17.12. 1970, verkfræðingur í Reykja-
vík, en kona hans er Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir og eiga þau saman einn
son auk þess sem Sveinn á dóttur frá
fyrra hjónabandi og Sveinbjörg á
tvær dætur frá fyrra hjónabandi.
Systkini Gests: Valdimar, f. 13.8.
1926, d. 2.4. 2008, yfirflugumferðar-
stjóri í Reykjavík; Ingileif Steinunn,
f. 8.8. 1931, húsfreyja á Bólstað í
Bárðardal; Kristján Guðmundur
Ólafsson, f. 15.6. 1937, d. 28.10. 1963,
menntaskólanemi.
Foreldrar Gests: Ólafur Bergþór
Hjálmarsson, f. 26.8. 1903, d. 30.8.
1986, bóndi og síðar efnisvörður hjá
Olíuverslun Íslands, og k.h., Ragn-
heiður Guðmundsdóttir, f. 25.10.
1902, d. 7.4. 1991, húsfreyja.
Úr frændgarði Gests Ólafssonar
Gestur
Ólafsson
Ingileif St. Ólafsdóttir
húsfr. í Önundarfirði
Guðrún J. Guðmundsdóttir
húsfreyja í Rvík
Guðmundur Bjarnason
b. í Önundarfirði
Ragnheiður Guðmundsdóttir
húsfr. í Önundarfirði og í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Álftafirði
Bjarni Jónsson
hreppstj. í Álftafirði
Valdimar
Ólafsson
yfirflug-
umsjónarstj.
í Reykjavík
Ólafur Eggert Guðmundsson
húsgagnasmiður
Kristján
Guðmundsson
bóndi á
Kirkjubóli
Þórunn
Valdimarsdóttir
sagnfr. og
rithöfundur
Soffía
Hákonardóttir
húsfr. á Hrafna-
gili í Laxárdal
Pétur Laxdal
Guðvarðarson
húsasmíðameistari
á Sauðárkróki
Sigurjón
Pétursson
forseti
borgarstjórnar
Kristín Ólafsdóttir
fyrrv. borgarfulltrúi,
söngvari og varaform.
Alþýðubandalagsins
Halldór Kristjánsson
rithöfundur og alþm.
Guðmundur Ingi Kristjánsson
skáld frá Kirkjubóli
Kristján Bersi Ólafsson
fyrrv. skólameistari í Flensborg
Ásthildur Ólafsdóttir
skólaritari í Hafnarfirði
Ólafur Þ.
Harðarson
prófessor í
stjórnmála-
fræði við HÍ
Ólafur Þ.
Kristjánsson
skólastjóri í
Hafnarfirði
Guðbjörg Torfadóttir
húsfr. í Önundarfirði
Björn Zakkaríasson
bóndi í Önundarfirði
Guðbjörg Björnsdóttir
húsfr. í Önundarfirði
Hjálmar Guðmundsson
skipasm. og b. í Önundarfirði
Ólafur Bergþ. Hjálmarsson
bóndi í Önundarfirði og
síðar efnisvörður í Rvík
Ólöf Jónsdóttir
húsfr. í Önundarfirði
Guðmundur Einarsson
smiður og b. í Önundarfirði, systursonur
Halldórs í Grafargili, langalangafa Gunnars
Ásgeirssonar stórkaupmanns, og afi Friðrikku,
ömmu Einars Odds Kristjánssonar alþm.
Guðmundur
Jón Pálsson
bóndi í
Önundarfirði
Hákon
Pálsson
bóndi á Hóli í
Önundarfirði
Óskar Vigfússon fæddist íHafnarfirði 8.12. 1931. Hannvar sonur hjónanna Epiphan-
íu Ásbjörnsdóttur og Vigfúsar Vig-
fússonar sjómanns.
Afasystur Óskars voru Guðbjörg,
amma Gunnars Guðbjartssonar,
framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs
landbúnaðarins, og Bjarnveig, amma
Sturlu Böðvarssonar, fyrrv. ráð-
herra. Foreldrar Vigfúsar voru Vig-
fús Vigfússon, bóndi á Kálfárvöllum í
Staðarsveit, og Sólveig, systir
Brands, móðir Kristínar, konu Helga
Pjeturss jarðfræðings.
Foreldrar Epiphaníu voru Ásbjörn
Gilsson, útgerðarmaður í Ólafsvík, og
k.h., Hólmfríður Guðmundsdóttir,
systir Sólveigar móður Karvels Ög-
mundssonar útgerðarmanns.
Eiginkona Óskars var Nicolína
Kjærbech Vigfússon og eignuðust
þau þrjú börn.
Óskar ólst upp í Hafnarfirði en
dvaldi hjá Guðbrandi Vigfússyni, föð-
urbróður sínum, og konu hans, Elínu
Snæbjörnsdóttur í Ólafsvík, 1940-47.
Hann lauk barnaskólaprófi frá Lækj-
arskóla í Hafnarfirði.
Óskar var verkamaður hjá Rafha
og Venusi í Hafnarfirði 1947-48, há-
seti á ýmsum skipum 1948-68, var
verkamaður við hafnargerð í
Straumsvík 1968-71 og skrif-
stofumaður hjá Sjómannafélagi
Hafnarfjarðar og Verkamannafélag-
inu Hlíf 1971-76.
Óskar sat í stjórn Sjómannafélags
Hafnarfjarðar frá 1966, var formaður
þess frá 1973 og formaður Sjómanna-
sambands Íslands 1976-94 en sat í
stjórn þess til 2005.
Óskar sat í Verðlagsráði sjáv-
arútvegsins frá 1977, í síldarútvegs-
nefnd frá 1978, í stjórn og varastjórn
Fiskveiðasjóðs frá 1982 og í ráðgjaf-
arnefnd um stjórn fiskveiða 1983-90.
Hann sat í miðstjórn ASÍ frá 1977, í
sambandsstjórn Alþjóðasambands
flutningaverkamanna frá 1982, í full-
trúaráði Sjómannadagsins í Reykja-
vík og Hafnarfirði 1970-85 og í stjórn
Hrafnistu til dauðadags.
Óskar lést 23.3. 2006.
Merkir Íslendingar
Óskar
Vigfússon
85 ára
Vilborg Kristín Jónsdóttir
80 ára
Eðvarð Lárus Árnason
Gerða Ásrún Jónsdóttir
Jón R. Ólafsson
Unnur Jónsdóttir
75 ára
Gestur Ólafsson
Jensína Stefánsdóttir
70 ára
Jose Francisco Terrazas
Jón Örn Marinósson
Kristinn A. Jóhannesson
Oddný J. Eyjólfsdóttir
Sigríður Sigursteinsdóttir
Soffía Vala Tryggvadóttir
Þorkell Þórðarson
Þorvaldur Rafn Valsson
Þóra Sverrisdóttir
60 ára
Ásdís Rósa Baldursdóttir
Guðmundur Þ.
Gunnlaugsson
Már Vilbergs Vilbergsson
Nikulás Úlfar Másson
Rósa Þórðardóttir
Sigrún Alda Júlíusdóttir
Sigurbjörg Karlsdóttir
50 ára
Adam Roman Stpiczynski
Agnar Hólm Jóhannesson
Elisabeth J. Zitterbart
Hrafnhildur Einarsdóttir
Ingi Þór Sigurðsson
Marek Szulc
Ómar Ellertsson
Þórður Waldorff
Þórlaug Másdóttir
40 ára
Arnar Hólm Ármannsson
Atli Rúnar Hermannsson
Birgir Steinn Björnsson
Ðuro Beic
Erlingur Ingi Brynjólfsson
Gabriel Estocado Cumayas
Gústav Smári Guðmundsson
Haraldur Freyr Haraldsson
Owen
Haukur Dalmann Jensson
Íris Sigurbjörnsdóttir
Jennifer Louise McNamara
Joseph Cati-An Doro-On
Jón Óskar Gunnlaugsson
Skarphéðinn Aðalsteinsson
Þóra Gunnlaug Briem
30 ára
Adam Dominik Lazarczyk
Arnar Kári Hallgrímsson
Arturas Krupinskas
Guðmundur Freyr
Aðalsteinsson
Guðrún Elsa Bragadóttir
Halldóra Halldórsdóttir
Jón Brynjar Ólafsson
Rimantas Pikelis
Sveinn Héðinsson
Örn Ingi Magnússon
Til hamingju með daginn
30 ára Örn ólst upp á
Húsavík og í Grímsey, býr
á Akureyri, starfar hjá
Slippnum á Akureyri og
stundar nám í vélstjórn
við VMA.
Systkini: Daníela M.
Ólafsdóttir, f. 1994; Lilja
Sif Magnúsdóttir, f. 1993,
og Bjarni R. Magnússon,
f. 1998.
Foreldrar: Magnús Þór
Bjarnason, f. 1963, og Ás-
gerður Arnardóttir, f.
1966.
Örn Ingi
Magnússon
40 ára Skarphéðinn ólst
upp á Húsavík, býr á Ak-
ureyri, lauk sveinsprófi í
húsasmíði og hefur verið
lögreglumaður í 17 ár.
Maki: Sólveig Péturs-
dóttir, f. 1978, læknir.
Börn: Sólveig Lára, f.
2006; Grétar Ólafur, f.
2006, og Eyþór Að-
alsteinn, f. 2014.
Foreldrar: Aðalsteinn
Jónasson, f. 1946, d.
1984, og Sólveig Þórð-
ardóttir, f. 1950.
Skarphéðinn
Aðalsteinsson
40 ára Jón Óskar býr í
Reykjanesbæ, lauk
sveinsprófi í rafvirkjun,
starfar hjá Johan Rönning
og er formaður Rafiðn-
aðarfélags Suðurnesja.
Maki: Særún Björg Karls-
dóttir, f. 1985.
Dætur: Kamilla Rún, f.
2008, og Júlía Sara, f.
2011.
Foreldrar: Gunnlaugur
Rúnar Óskarsson, f. 1953,
og Þorbjörg Guðrún Jóns-
dóttir, f. 1957.
Jón Óskar
Gunnlaugsson
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is
Ertu í söluhugleiðingum?
Guðrún Antonsdóttir
Lögg.fasteignasali
Ég sel hratt og vel.
Mikil reynsla og þekking.
Hringdu núna, 697 3629
ég svara í símann.