Morgunblaðið - 08.12.2016, Síða 87
DÆGRADVÖL 87
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Sýningaropnun í Gallerí Fold,
laugardaginn 10. desember, kl. 15
Allir velkomnir
Ísland fyrir börn og fullorðna
Boðskort
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16
Linda Ólafsdóttir
Sýning á frumteikningum úr barnabókinni Íslandsbók barnanna
eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur.
Bókin er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og
Fjöruverðlaunannna.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki pína fjölskyldumeðlimi til þess
að vera þér sammála eða lúta vilja þínum. Ef
þú fæst ekki við það sem þú hefur áhuga á
getur lífið svo sannarlega verið fúlt.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er komið að því að vinur þinn verður
að endurgjalda þér greiða og þitt að koma
honum í skilning um það. Reyndu að eyða
einhverjum tíma í einrúmi og safna kröftum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert eins og milli steins og
sleggju í ákveðnu máli. Reyndu samt að halda
ró þinni og ræddu við traustan vin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Því betur sem þú rannsakar málin
þeim mun fljótari ertu að vinna þau og nærð
betri árangri. Einhver hefur allt á hornum sér
– ekki taka það nærri þér. Gakktu í burtu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Geðillska gærdagsins hefur vikið og þú
ert eins og nýsleginn túskildingur. Losaðu þig
við óþarfa drasl og dót og hnýttu lausa enda.
Þú munt finna hversu frelsandi það er.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hafðu hugfast að þarfir fólks eru mis-
munandi svo það sem er þér fyrir bestu þarf
ekki að eiga við um aðra. Orð sögð í hita
leiksins draga dilk á eftir sér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að vera háttvís ef þú stingur
upp á umbótum í vinnunni. Þér finnst desem-
ber besti mánuður ársins og nýtur þess að
botn að stússast fyrir jólin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu það ekki skemma fyrir þér,
þótt einhverjir neiti að taka þig alvarlega og
vilji slá öllu upp í grín. Félagslífið stendur í
blóma, þú hefur aldrei verið vinsælli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þar sem vinnan hefur tekið allt of
mikið af tíma þínum undanfarið er kominn
tími til að hitta vini og vandamenn og njóta
aðventunnar. Þú stendur á öndinni vegna
upplýsinga sem þér berast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Eitthvað fyndið mun ýta þér upp
úr hjólfarinu sem þú ert ofan í. Þú átt það til
að mikla hlutina fyrir þér. Þú hefur of mikið á
þinni könnu, komdu verkunum yfir á fleiri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Rómantíkin lætur á sér kræla, en
úr allt annarri átt en þú áttir von á. Þú ert í
essinu þínu í vinnunni og gerir allt til að auð-
velda öðrum verkin.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eyddu ekki óþarfa orku í að hugsa um
það sem miður fór. Gerðu áætlun. Hlustaðu
ekki á úrtölur annarra, gríptu tækifærið strax
og snúðu hlutunum þér í hag.
Ólafur Steránsson hefur orð áþví, að stundum séu fyr-
irsagnir í Mogga flott stuðlaðar og
renni vel í vísu:
Yfirtaks bjartsýnn á aðventu verð,
þó umlyki skammdegið svarta,
því bílasala’ er á blússandi ferð,
og bankamenn hættir að kvarta.
En Kerlingin á Skólavörðuholt-
inu lætur sér fátt um finnast:
Sökkva mega í Satans dý
sótraftar af ýmsu tagi,
bölvað er að búa í
bavíanasamfélagi.
Ég tek nú bara svona til orða,
ætlaði alls ekki að tala illa um bav-
íana. Ég get ekki ímyndað mér að
samfélag þeirra sé jafn spillt og
okkar.
Sá Gamli gat ekki orða bundist:
„Ýmsu tagi, kerling, ýmsu tagi!
Vandaðu þig kerling!“
Og Kerlingin lét ekki standa upp
á sig:
Kannt að skjalla káta frú,
kitla, digga og róta,
skrambi ertu skondinn nú
skítseiðið mitt ljóta!
Ingólfur Ómar Ármannsson er
áhyggjufullur: „Loksins, segi nú
ekki annað:
Eftir baks og óratíð
enda á þrætur binda.
Kostað hefur stapp og stríð
stjórn að reyna að mynda.“
En Kristjana Sigríður Vagns-
dóttir hefur sig yfir dægurþrasið:
Fjallahringurinn, baðaður sólar-
geislum:
Fínsæll hrollur fór um mig,
er fór ég í mitt ból.
Sólin blessuð signdi sig,
senn eru komin jól.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
heldur sig við jörðina:
Alger snilld þessi yfirstétt
og yndisleg þessi dómara frétt
í Hæstarétti hafa menn rétt
til að hagræða reglunum sínum.
Nú hlýt ég að mega hundsa slatta af
mínum.
Guðrún Bjarnadóttir tekur undir
með sínum hætti:
Lítið var en lokið er, –
lífsins reglum
hendum burt og hagnað neglum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af bavíönum, hæstarétti
og hóstnótt að baki
Í klípu
„VIÐ ERUM MEÐ SJÖ DAGA
KÆLITÍMABIL – EF ÞÚ SKYLDIR
SKIPTA UM SKOÐUN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERT ÞÚ UNGI MAÐURINN SEM ÆTLAR
AÐ KAUPA BÓNDABÆINN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að ástin er
tímalaus.
AHA! HVAÐ?
ÉG SÁ AÐ
ÞÚ DILLAÐIR
RÓFUNNI ÞEGAR
ÞÚ SÁST MIG.
HEIMSKA
RÓFA!
ÞÉR
LÍKAR
VIÐ MIG!
ÉG NÁÐI Í ÞETTA HÁLSMEN
ÚR SKÍRA GULLI HANDA ÞÉR Í
FRAKKLANDI!
EN FÍNT! HVAÐ
KOSTAÐI ÞAÐ?
EINN LIÐSMANN! EN HANN
SNÝR AFTUR ÞEGAR HANN ER GRÓINN
SÁRA SINNA!
LÍKFRYSTING EHF.
Margir kannast við skopteikn-ingar Hugleiks Dagssonar.
Hugleiki er ekkert heilagt og hann
lætur ekkert tækifæri ónotað til að
ganga fram af lesendum. Fjöldi bóka
hans hefur komið út á ensku og blas-
ir við ferðamönnum, sem rata inn í
bókabúðir, þannig að útbreiðslan
einskorðast ekki við Ísland.
x x x
Manuel Bogner, sem skrifar umvísindi og ýmislegt annað á vef
þýska tímaritsins Die Zeit, kann
greinilega að meta teikningarnar.
Um helgina birtir hann stutta grein
með fjölda teikninga á vef Die Zeit.
x x x
Þar segir hann að á síðu Hugleiksblasi við mynd af vingjarnlegum
manni, sem brosi afslappaður í
myndavélina, en innra með honum
hljóti eitthvað myrkt að leynast.
„Ein af bókum hans heitir „Ættir þú
að hlæja að þessu“ og einmitt þá til-
finningu vekja margar skopmynda
hans,“ skrifar Bogner. „Í þeim er
tekið á alvarlegum málum á borð við
neyð flóttamanna eða mismunun
gagnvart fötluðu fólki – og gráu
bætt ofan á svart. Kannski finnst
ekki öllum það fyndið og sumum
jafnvel stuðandi. Í öllu falli vekja
þær til umhugsunar.“
x x x
Ein teikninganna sem birtar eru ávefsíðu Die Zeit sýnir mann-
eskju á syllu á háhýsi. Hún hótar að
fara fram af nema hún fái teikn frá
Guði, bara eitthvert teikn. „Stökktu
bara!“ segir þá rödd að ofan. Þetta
er svartur húmor, en sennilega sak-
lausasta teikningin á síðunni.
x x x
Á vefsíðunni hjá Die Zeit eiga les-endur þess síðan kost að láta
vita hvernig þeim líka teikningarnar
og skopskyn Hugleiks. 17.693 les-
endur höfðu tekið afstöðu þegar Vík-
verji skoðaði síðuna í gær. 79%
þeirra kunnu að meta skopmyndir
Hugleiks, 12% létu sér fátt um finn-
ast og 9% fannst þær of illkvittnar.
Bækur Hugleiks hafa verið gefnar
út á ensku eins og áður sagði. Sam-
kvæmt þessu gæti hann átt sóknar-
færi hjá bókaþyrstum Þjóðverjum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla
hann í lofsöng.
(Sálm 69:31)
mbl.is