Morgunblaðið - 08.12.2016, Side 90
90 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Í skáldsögunni Verjandinn eftir Ósk-
ar Magnússon segir frá Stefáni
Bjarnasyni hæstaréttarlögmanni,
sem glímir við heiftúðugt forræðis-
mál. Íslensk móðir flýr til Íslands frá
Bandaríkjunum með dóttur sína, en
föður stúlkunnar hafði verið dæmt
forræði vestan hafs. Hann ræður
fyrrverandi sérsveitarmann til að ná
í dóttur sína, en sú aðgerð fer úr-
skeiðis og Stefán tekur að sér að
verja föðurinn sem ákærður er fyrir
barnsrán.
Óskar Magnússon þekkir vel til
málareksturs fyrir dómstólum hér á
landi, þar sem hann starfaði sem lög-
fræðingur áður en hann fór út í fyr-
irtækjarekstur og sneri sér síðan að
skáldskap. Augljós líkindi eru svo
með málinu sem rakið er hér í upp-
hafi og máli James Brian Grayson og
Donald Feeney, sem hugðist ræna
dóttur Grayson og íslenskrar konu í
upphafi tíunda áratugar síðustu ald-
ar, en Óskar var einmitt verjandi
Grayson á sínum tíma.
Fyrsta íslenska réttardramað
- Verjandanum hefur verið lýst
sem fyrsta íslenska réttardramanu
og þótt eitt af því fyrsta sem maður
læri í blaðamennsku sé að segja aldr-
ei „fyrsta“ eða „stærsta“ er það
kannski ekki fjarri sanni.
„Ég fór beinlínis af stað með það í
huga að skrifa slíka bók. Þeir sem
skrifað hafa bækur þar sem lög og
réttur hafa komið fyrir á und-
anförnum árum hafa skrifað með
blaðamann sem aðalpersónu eða lög-
reglumann þó að Yrsa hafi verið með
Þóru lögfræðing sem aðalpersónu.
Munurinn á þessari bók og þeim
sem komið hafa út síðustu áratugina
er að í henni er löglærður maður að
skrifa um lögfræðing. Það þekkjum
við frá útlöndum þar sem þessir
frægu rithöfundar eru löglærðir,
eins og sá sem minn forleggjari hef-
ur verið svo óskammfeilinn að líkja
mér við, eða réttara sagt líkja við
mig,“ segir Óskar og hlær. „Þeir eru
löglærðir, hafa unnið við lög-
mennsku og eru jafnvel lögmenn
þannig að þeir eru að skrifa um
nokkuð sem þeir þekkja og skilja til
botns og það er það sem ég er að
reyna þarna.
Það eru oft langar ræður fyrir
rétti í þeim bókum og það eru oft
langar, langar yfirheyrslur. Mér hef-
ur reyndar oft þótt aðdáunarvert
hvað þeir geta haldið manni við efnið
í löngum ræðum eða sérstaklega í
löngum köflum þar sem er verið að
spyrja og gagnspyrja endalaust. Það
er samt einn grundvallarmunur sem
gerir þetta heldur verra fyrir ís-
lenska rithöfunda en fyrir útlenska
eða útlenska lögfræðinga og hann
liggur í kviðdómnum. Erlendur höf-
undur hefur úr svo miklu að moða því
hann er að tala við kviðdóminn og þá
er hann að höfða til tilfinninga og
getur talað ekki mjög lögfræðilega.
Hér á landi gefur dómarinn ekki
mikið fyrir tilfinningar.
Í erlendum bókum eru óteljandi
lýsingar á því þegar lögmaðurinn
snýr sér að kviðdómnum, búinn að
stúdera þennan kviðdómanda og
hinn kviðdómandann, og þetta er
rosalega stór þáttur í öllum þessum
bókum. Til þess að bæta það upp að
við höfum ekki kviðdóm nota ég fjöl-
miðla, fjölmiðlafólk. Í þessari bók er
fjölmiðlafólk alltaf viðstatt og það er
alltaf eitthvað að gerast sem tengist
fjölmiðlum – það er í raun alltaf verið
að tala við það fólk. Einhvers staðar í
bókinni segir að almenningsálitið
skipti máli og þótt það eigi ekki að
hafa það þá hefur það áhrif á dóm-
arann. Þegar þú ert ekki að tala
harða lögfræði ertu kannski að tala
til þeirra sem eru viðstaddir í rétt-
arsalnum og það er þá mest fjöl-
miðlafólk sem síðan ber út boðskap-
inn í sínum fjölmiðlum og þaðan fer
hann til almennings og þaðan von-
andi til dómarans, eða það er í það
minnsta hugmyndafræðin sem ég er
að leika mér með.“
Sagan skáldskapur en
aðstæður raunverulegar
Líkindin með máli Grayson og
Feeney sem rakið er í upphafi dyljast
engum, þótt þeir kumpánar heiti
núna Mason og Fenway, en það eru
ekki nema líkindi því málið sem Stef-
án glímir við í Verjandanum þróast í
allt aðra og æsilegri átt.
Eins og getið er var Óskar verj-
andi Graysons og hann þekkti því vel
til málsins, en hann segist ekki vera
að skrifa um það mál, sem sannast
náttúrlega á framvindunni í bókinni,
þó að sagan sé mjög raunveruleg að
hans mati. „Auðvitað er ég að leika
mér með persónur og skreyta þær á
tiltekinn hátt og þótt söguþráðurinn
sé skáldskapur eru ýmsar aðstæður
raunverulegar. Rannsóknarlögregla
ríkisins var til dæmis á milli bílaverk-
stæða í Kópavogi, sem var náttúrlega
fráleitt, en þær lýsingar eru mjög ná-
kvæmar,“ segir Óskar en bætir svo
við eftir smá umhugsun, „En kannski
ekki það sem stóð á skiltunum á bíla-
verkstæðunum. En að ímynda sér
það að það skuli geta gerst, bara fyr-
ir pólitík – það þurfti að koma húsi í
notkun.
Samskipti lögmanna og dómara og
samskipti lögmanna og lögreglu voru
líka svona og ég held kannski að þau
séu það að sumu leyti enn, en ég er
ekki að segja að þetta sé slæmt. Ég
held að það sé alltaf best, hvort sem
það er í dómsmálum eða öðru, að
menn læsist aldrei í þvergirðings-
hætti, að alltaf séu einhverjir kanalar
til að leysa mál. Það er líka svolítið
verið að segja það í minni frásögn að
ef menn nálgast mál með opnum hug
eru stundum til ótrúlegar lausnir og í
þessari sögu kemur fyrir ein lausn
sem er merkileg í tilviki sem er eig-
inlega óleysanlegt.“
Forræðismál eru nánast
óleysanleg mál
- Glíman á milli þeirra Mason og
Helenu er harðvítug og þeirra nán-
ustu taka þátt í henni af krafti og
heift. Samt er það svo að barnið sem
allt á að snúast um gleymist nánast,
það er í sögunni, en enginn staldrar
við og hugsar hvað sé því fyrir bestu
– en þannig finnst manni það einmitt
oft vera í forræðisdeilum.
„Á þessum tíma var samt komið í
lög að hagur barnsins skyldi vera í
fyrirrúmi, en eins og sést á öllu sem
ég lýsi í bókinni er barnið í algjöru
aukahlutverki. Ég er samt ekkert að
reka áróður, það er enginn sérstakur
boðskapur um að feður eigi að fá
börn eða að mæður eigi að fá börn.
Boðskapurinn er miklu frekar sá að
forræðismál eru nánast óleysanleg
mál, þegar allt er stál í stál er engin
patentlausn til. Það er það sem er
verið að segja.
Menn hafa reynt að búa til alls
konar lausnir síðan en við erum enn
að horfa upp á mál þar sem tekist er
á um börn á milli landa og þau mál
eru náttúrlega langerfiðust. Þeir sem
hafa gefið sig í það að sinna málum af
þessu tagi, jafnvel sérhæft sig í því –
ég veit ekki hvernig tilfinningar svo-
leiðis fólk hefur. Ég var ekki oft með
svona mál, en þau eru rosalega erfið,
óbærilega erfið, og ég tók þau ekki að
mér nema þau bærust til mín vegna
einhverra sérstakra tengsla.“
- Undir lokin á bókinni þegar upp
úr hefur soðið allhressilega fer Stef-
án lögmaður austur í sveitina til for-
eldra sinna, á æskustöðvarnar, og
um leið og hann kemst út úr borginni
verður allt betra. Einhvern veginn
fannst mér þú vera að lýsa sjálfum
þér svolítið þar, þó að Stefán Bjarna-
son eigi annars fátt sameiginlegt með
Óskari Magnússyni, enda hefur þú
búið í Fljótshlíðinni mörg undanfarin
ár.
„Ég held að það sé óhætt að viður-
kenna það að maður fær annað
sjónarhorn fyrir austan og öðruvísi
andrúmsloft og öðruvísi viðhorf
fólks. Það gengur meira að segja svo
langt að ég hef orðið gaman af fugl-
um,“ segir Óskar og skellir upp úr,
„og hef ort um fugla. Ég er bæði far-
in að hafa áhuga á fuglum og hef ver-
ið sóknarnefndarformaður í tíu ár.
Einhvern tímann hefði einhver vinur
minn látið loka mig inn við þessar að-
stæður, eða að minnsta kosti haft af
þessu verulegar áhyggjur.
Í Verjandanum vildi ég líka tengja
Stefán síðustu bók, en hann er ein af
persónunum í Látið síga piltar og
þeir koma fleiri aðeins við sögu sem
þar voru. Það er ég að gera vegna
þess að mér þótti vænt um þá og þeir
eru ágætlega lukkaðir. Mig langar til
að vera lengur samferða þeim áfram
og kannski getur það orðið.“
- Þú sérð semsé fyrir þér að þú
munir skrifa fleiri bækur um Stefán.
„Já, mér þykir það ekki ólíklegt.
Ég er ekkert bókmenntalega verser-
aður en ég ímynda mér að ef hinum
venjulega lesanda líkar við persónu,
finnst hún áhugaverð, sé hann alveg
til í að halda áfram að umgangast
hana þannig að ég bý mig undir það
að verjandinn eða lögmaðurinn lifi
eitthvað áfram.“
Raunverulegt réttardrama
Í bókinni Verjandinn skáldar Óskar Magnússon sögu inn í raunverulegar aðstæður
Morgunblaðið/Ófeigur
Skáldskapur Í skáldsögunni Verjandanum er höfundurinn, Óskar Magnússon, að leika sér með persónur og
skreyta þær á tiltekinn hátt, en þótt söguþráðurinn sé skáldskapur eru aðstæðurnar raunverulegar.
Björgvin Helgi Jóhannsson
gimbi18@gmail.com
Útgáfan Möller Records fagnaði
fimm ára afmæli sínu með útgáfu á
safndisknum Best of Möller Records
Vol. 1 sem sjá má á heimasíðu útgáf-
unnar, http://mollerrecords.com/. Á
disknum eru fjölbreytt lög úr raf-
tónlistarsenunni á Íslandi, allt frá líf-
legri danstónlist í rólega nánast dá-
leiðandi geimtónlist, gömul og ný
lög.
Möller Records er plötuútgáfufyr-
irtæki sem gefur aðallega út raf-
tónlist. Félagarnir Jóhann Óm-
arsson, einnig þekktur sem Skurken,
og Árni Grétar Jóhannesson Future-
grapher stofnuðu útgáfufyrirtækið
árið 2011. Á Best of Möller Records
Vol. 1 eru þrjátíu lög, öll einstök
hvert á sinn hátt og eftir mismun-
andi íslenska tónlistarmenn.
- Núna eru 5 ár síðan Möller Re-
cords var stofnað, hvað varð til þess
að tveir ungir tónlistarmenn ákváðu
að stofna útgáfufyrirtæki?
„Forlagið var stofnað af Future-
grapher og Skurken í Vesturbænum
heima hjá tónlistarmanninum Jó-
hanni undir miklu bjórþambi, Bón-
us-beikonsnakksáti og miklum
áhuga á raftónlist. Okkur vantaði
vettvang til að gefa út eigin tónlist
og ákváðum að stofna eigið útgáfu-
fyrirtæki. Þetta var í janúar 2011,“
segir Árni Grétar.
Árni segist hafa byrjað að semja
tónlist í tölvu þrettán ára gamall og
eiga því tuttugu ára afmæli í raf-
tónlist í þessum mánuði. „Ég notaði
ýmis forrit og ýmsar græjur, eins og
trommuheila, synthesizer og fleira
og hef gefið út undir mörgum nöfn-
um.“
Raftónlistarbransinn fer stækk-
andi um heim allan og ekki síst á Ís-
landi að sögn Árna. „Hér á landi er
hann orðinn mjög stór. Það er rosa-
lega fjölbreytt tónlistarlíf og raf-
tónlistin blómstar að mínu mati.
Fullt af stefnum hefur litið dagsins
ljós á undanförnum árum, t.d. cloud
rap, trap, dubstep og fleira og gaml-
ar stefnur hafa verið mótaðar betur
– bæði fyrir „Jón og Gunnu“ og
jaðarrotturnar,“ segir Árni.
- Möller Records hefur gefið út
ýmsa raftónlistarmenn í gegnum ár-
in. Hvað vakti fyrir ykkur með því
að taka saman safnplötu?
„Pælingin var fimm ára afmæli
Möller Records í ár, 2011-2016. Ég
og Steve Sampling, Stefán Ólafsson,
völdum lögin og þá lög frá öllum
þeim sem hafa gefið út hjá forlaginu
á þessum fimm árum. Sumir hafa
farið og fetað nýjar leiðir, eða eru í
dag að gefa út hjá öðrum, en þetta
er samt ein risastór fjölskylda. Allir
eru skyldir á einhvern hátt. Mikil
ást.“
- Raftónlist er auðvitað gríðarlega
stórt fyrirbæri. Hvernig tónlist-
arstefnur gefur Möller Records að-
allega út?
„Ég myndi segja að þetta væri
bara allt frá IDM, braindance,
weirdcore, house, techno og ambi-
ent. Þetta er bara svona samsafn af
helstu stefnum raftónlistarinnar.
Möller er nördalegri en flestar út-
gáfur. En samt gott stöff. Góð raf-
tónlist til að hafa heima í bakgrunni
og getur virkað á dansgólfinu.“
Ein risastór fjölskylda
Möller Records fagnar fimm ára afmæli með safnskífu
Morgunblaðið/Eggert
Afmæli Árni Grétar „Futuregrapher“ Jóhannesson og Frosti „Bistro Boy“
Jónsson eru höfuðpaurar útgáfunnar Möller Records sem stendur.