Morgunblaðið - 08.12.2016, Qupperneq 98
98 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
alvöru grillaður kjúklingur
Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585
Opið alla daga kl. 11-22
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Kristín Lárusdóttir, sellóleikari,
kennari, kvæða- og raftónlistar-
maður, gaf nýverið út aðra sólóplötu
sína, Himinglæva. Platan er sjálf-
stætt framhald af fyrstu plötu henn-
ar Hefring, sem hún gaf út haustið
2013 með eigin tónsmíðum, útsetn-
ingum og sellóleik. „Hefring og
Himinglæva eru dætur sjávar-
gyðjunnar Ránar og jötunsins og
sjávarkonungsins Ægis,“ segir
Kristín. Hún segist hafa mikinn
áhuga á íslenskum menningararfi,
náttúru og veðráttu, sem spilar
stóran þátt í tónlistarsköpun henn-
ar. „Ægir átti níu dætur og nafn
hverrar og einnar táknaði mismun-
andi einkenni og bylgjur hafsins.
Tvær af þeim voru Hefring og Him-
inglæva; Hefring er rísandi alda en
Himinglæva er þar sem maður get-
ur séð himininn speglast í hafinu.“
Kristín er nýkomin heim frá
Berlín, en hún hefur dvalið mikið í
Þýskalandi undanfarna tvo vetur.
„Ég hef verið að spila þó nokkuð
mikið úti í Þýskalandi, og reyndar
einnig verið með tónleika í Finn-
landi, og það hefur gengið af-
skaplega vel. Það hefur nánast alltaf
verið fullt á tónleikum sem ég hef
spilað á og fólk virðist vera bara
mjög hrifið, sem ég er afar þakklát
fyrir og ánægð með,“ segir Kristín.
„Ég er líka mikið að reyna að
koma mér á framfæri með því og ná
mér í sambönd. Ég hef ekki enn
fengið neinn umboðsmann eða út-
gáfufyrirtæki og geri því flestallt
sjálf í kringum útgáfuna mína, tón-
leikabókanir og kynningu. Varðandi
geisladiskinn minn sé ég sjálf um
útsetningar og upptökur á lög-
ununum mínum en hef þó fengið
hjálp við hljóðblöndun og master-
ingu. En mér finnst mjög gaman og
gera flestallt sjálf varðandi tónlist-
arferlið og sköpunina.“
Stundum mikið hark
Það að koma sjálfri sér og tónlist
sinni á framfæri segir Kristín geta
verið erfitt og gjarnan mikið hark.
„Það eru margir veggir sem maður
labbar á og mörg nei sem maður
fær. En það gerði mér gott að drífa
mig út til Berlínar, því þótt það sé
einnig mikið hark erlendis finn ég
fyrir miklum áhuga og virðingu frá
fólki þótt lítið peð sé og algerlega
ókunn úti í hinum stóra heimi. Fólk
í Þýskalandi og Finnlandi er mjög
forvitið um mann og óhrætt við að
prufa að sjá og hlusta á eitthvað
nýtt,“ segir Kristín.
„En undanfarin tvö ár hef ég í
rauninni ekki verið mikið að skapa
og sinna tónlistarsköpuninni, fyrir
utan tónleikahald, vegna þess starfs
sem ég hef verið að vinna við, að
koma mér á framfæri. En það kem-
ur vonandi bráðum meira svigrúm
til þess trúi ég. Núna er viss bolti
farinn að rúlla og tengslanet komið
af stað hjá mér sem bætist bara
vonandi við.“
Mikil gróska í íslenskri tónlist
Kristín hefur spilað og unnið með
fjölda tónlistarmanna, svo sem Sig-
ur Rós, Svavari Knúti, amiinu, Pétri
Ben og fleirum. Hún hefur spilað á
selló frá því að hún var átta ára
gömul en byrjaði í hefðbundnu for-
skólanámi um sex ára aldur. „For-
eldrar mínir töldu það dýrmætt og
mikilvægt að setja okkur systurnar
í tónlistarnám, það væri mikilvægt
veganesti út í lífið. Sem það varð
fyrir okkur báðar,“ segir Kristín,
sem er klassískt menntaður selló-
leikari. „Mamma lærði sjálf aðeins á
píanó en pabba dreymdi alltaf um
að læra en hafði ekki tök á því. For-
eldrar mínir vildu því að við syst-
urnar fengjum að læra og færum
ekki á mis við tónlistarnámið og
dýrmæti þess.“ Kristín hefur að
auki menntað sig í barokktónlist,
gömbuleik og djassi en einnig í raf-
tónlist.
„Í dag er mikil gróska í tónlistar-
lífinu á Íslandi og ferðamenn hafa
margir, auk náttúrunnar, áhuga á
Íslandi vegna tónlistarinnar, tungu-
málsins, sögu og margs fleira. Ég
fæ t.d. oft spurningar í Þýskalandi
um það hvernig eigi að bera fram
hitt og þetta á íslensku og hvaðan
tungumálið komi. Ég fæ einnig
spurningar um sögu bókmenntanna
og hvers vegna svo margir góðir
tónlistarmenn komi frá Íslandi. Ein-
hverra hluta vegna eru þó almennir
kennarar og tónlistarkennarar ekki
hátt settir þegar kemur að launa-
málum, og ef þeir vilja fá betri laun
þurfa þeir að selja einhver réttindi á
móti, sem er mér algerlega óskilj-
anlegt,“ segir Kristín.
Allir nemendur einstakir
Kristín hefur kennt tónlist í 20 ár
og þykir afar vænt um nemendur
sína. „Hver einn og einasti nemandi
er einstakur og mikilvægur í mínum
huga og dásamlegur á sinn hátt. En
krakkar eru mismunandi og glíma
við ýmislegt eins og fullorðna fólkið,
hvort sem er óöryggi, kvíði, þrá-
hyggja, tourette, þunglyndi, of-
virkni eða einelti. Því er svo dýr-
mætt að fá að fylgjast með þeim og
leiðbeina þegar þau styrkjast og
þroskast í gegnum tónlistarnámið.
Þau læra að takast á við ögrandi
verkefni, læra samhæfingu, sjálfs-
aga, takast á við tilfinningarnar í
gegnum tónlistina, læra tillitssemi í
samspili og fá aukið sjálfstraust.
Það er til dæmis ekki lítil æfing
fyrir barn og ungling að þurfa að
spila fyrir framan fullt af fólki og á
sama tíma að ná að einbeita sér og
gera vel. En samt þarf ávallt að
vega að tónlistarskólunum, og það
sem verst er, að tefla heilbrigð-
iskerfinu gegn tónlistarskólunum og
listinni almennt. Allt helst þetta í
hendur og styrkir hvert annað. Vel-
gengni í einum geira er hagur ann-
ars geira og svo öfugt, og því þurf-
um við að hlúa bæði vel að
heilbrigðiskerfinu sem og tónlist og
öðrum geirum í landinu.
Það sem er síðan mikilvægt í
þessu er að foreldrar hafi val fyrir
börnin sín til þroska og menntunar.
Hvort sem þeir telja tónlist, íþróttir,
vísindi, dans, smíðar eða eitthvað
annað mikilvægt fyrir börnin sín.“
Tónlistarnám dýrmætt veganesti
Tónlistarkonan Kristín Lárusdóttir gefur út sína aðra sólóplötu, Himinglæva Finnur fyrir mikl-
um áhuga erlendis Segir það mikilvægt fyrir börn að styrkjast og þroskast í gegnum tónlistarnám
Morgunblaðið/RAX
Náttúrubarn Kristín Lárusdóttir hefur spilað á selló frá átta ára aldri og sækir innblástur m.a. í íslenska náttúru.
Í tilefni af þremur sýningum í
Hafnarhúsinu þar sem listamenn-
irnir Yoko Ono, Erró og Richard
Mosse takast á við stríðsátök og
vonir um heimsfrið hefur síðustu
fimmtudaga verið boðið upp á frið-
arfundi. Í kvöld klukkan 20 er kom-
ið að friðarfundi á vegum Félagsins
Ísland-Palestína undir yfirskrift-
inni „Friður og ólífur“.
Á fundinum leitast Gunnar Ax-
elsson og Falasteen Abu Libdeh við
að svara því hvernig hægt sé að
stuðla að friði með því að tína ólíf-
ur. „Sl. ár hafa fjölmargir íslenskir
sjálfboðaliðar á vegum félagsins
starfað við ólífutínslu í Palestínu.
Stór hópur fór héðan á vegum fé-
lagsins í október. Gunnar og Fala-
steen kynna starfið við ólífuupp-
skeruna, sýna myndir og tala um
friðsamleg mótmæli með ólífu-
tínslu,“ segir í tilkynningu.
Friður og ólífur í Hafnarhúsinu
Von Eitt verkanna sem Yoko Ono sýnir.
Aðalfundur Hins íslenzka fornleifa-
félags 2016 fer fram í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafns Íslands í dag kl. 16.
Að fundarstörfum loknum flytur
Guðrún Alda Gísladóttir fornleifa-
fræðingur erindi undir yfirskriftinni
„Höfuðkambar: um hárgreiður fyrri
alda á Íslandi“ og er fyrirlesturinn
öllum opinn.
„Kambar sem fundist hafa hér á
landi eru allstórt og mikilvægt safn
forngripa. Kambar endurspegla
menningarleg einkenni og samtíma
sinn betur en margir aðrir forn-
gripir sem oft skortir greinileg ein-
kenni sem breytast í tíma og er því
erfitt er aldursgreina, sé samhengi
þeirra óljóst. Heildstæð gerð-
fræðiflokkun og
samantekt um
kamba mun því
koma að gagni
við að varpa ljósi
á samhengi og
aldur minja þar
sem upplýsingar
um uppruna eru
brotakenndar.
Kambar eru
margir hagleiks-
verk og úr fjölbreyttum efniviði og
taka miklum breytingum á því tíma-
bili sem hér verður til umfjöllunar,
frá landnámi til um 1800,“ segir í til-
kynningu, en rannsóknina vann
Guðrún með Mjöll Snæsdóttur.
Um hárgreiðslu fyrri alda á Íslandi
Guðrún Alda
Gísladóttir