Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 101
MENNING 101
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2016
Díana Rós A. Rivera
dianarosarivera@gmail.com
Sigrún Jónsdóttir, tónskáld og
hljóðfæraleikari, sendi frá sér plöt-
una Hringsjá í ágúst á þessu ári.
Platan er frumraun Sigrúnar sem
sólólistamanns en hún flutti lög af
plötunni á tveimur viðburðum á
Airwaves í nóvember síðastliðnum.
Sigrún hefur lengi verið viðloðandi
íslensku tónlistarsenuna auk þess
sem hún hefur leikið m.a. með
Björk, Sigur Rós og Florence and
the Machine.
Það má með sanni segja að Sig-
rún spanni vítt svið í tónlistinni.
Hún lærði á klarínett sem barn og
fór svo að læra á básúnu á ung-
lingsárunum. „Um leið og maður
er búinn að læra á eitt hljóðfæri
getur maður farið að spila á alls
konar,“ segir hún.
Ekki margar stelpur sem
spila á brasshljóðfæri
En hvernig fer Sigrún Jónsdóttir
á Íslandi að því að spila með tón-
listarmönnum úti í heimi?
„Það var frekar fyndið, tilviljanir
í bland við annað, “ segir Sigrún.
Þannig hafi það verið árið 2007
þegar Björk var að leita að málm-
blásturshljóðfæraleikurum í
Wonderbrass-hljómsveitina fyrir
tónleikaferð sína Volta World
Tour. „Það eru ekki það margar
stelpur sem spila á brasshljóðfæri
á Íslandi, sérstaklega ekki árið
2007 og hvað þá á aldursbilinu sem
Björk var að leita eftir, á milli tví-
tugs og þrítugs. Ég var 17 ára á
þeim tíma og kom því ekki til
greina í fyrstu en svo vantaði bás-
únuleikara og ég var fengin til að
vera með.“
Í kjölfarið var svo haft samband
við hana og hún fengin til liðs við
Florence and the Machine á þeirra
tónleikaferðalagi. „Þetta hefur
meira og minna gerst vegna þess
að ég er stelpa og hef sérhæft mig
í að spila á hljóðfæri sem er al-
gengara að strákar leiki á og fólki
finnst skemmtileg tilbreyting að
sjá stelpur spila á þannig hljóð-
færi.“
Hún bætir við að tónlistar-
samfélagið á Íslandi sé lítið og
þegar t.d. Sigur Rós vantaði bás-
únuleikara hafi fólk ekki verið
lengi að benda á hana. „Þetta er
svona maður þekkir mann á Ís-
landi, bransinn hérna heima er svo
heimilislegur.“
Að vera hinum megin
við borðið
Eftir þessa miklu reynslu lang-
aði Sigrúnu að halda áfram í tón-
listinni en prófa eitthvað nýtt og
hóf hún nám á nýmiðlabraut við
Listaháskóla Íslands. „Án þess að
gera lítið úr því þá er maður sem
hljóðfæraleikari svo mikið í því að
vinna verkefni fyrir aðra. Maður er
mikið að redda öðrum í því sem
þeir eru að búa til. Mig langaði að
búa eitthvað til þar sem ég mundi
stjórna og ráða og ég væri að
skapa. Mig langaði að prófa að
vera hinum megin við borðið.“
Á útskriftartónleikum Sigrúnar
var flutt verk eftir hana fyrir fjóra
hljóðfæraleikara, klarínett, víólu,
selló og kontrabassa, auk þess sem
hún vann rafverk úr sama efniviði.
Sigrún spilaði ekki sjálf og tókst
því þarna á við alveg glænýtt hlut-
verk sem tónsmiður. „ Ég fékk
bara að hlusta og vera áhorfandi.
Það var mjög góð tilfinning.“
Ný smáskífa væntanleg
Hún hélt áfram við tónsmíðarnar
og eins og áður kom fram gaf hún
út sína fyrstu plötu, Hringsjá, í
ágúst. Þar fetar hún enn á nýjar
slóðir því að auk þess að semja
verkið syngur hún, sem hún segist
alltaf hafa verið feimin við. „Ég er
orðin svo vön því að vera alltaf
með hljóðfærið fyrir framan mig.
Maður verður berskjaldaðri þegar
maður syngur. Ég þurfti að syngja
á tónleikaferðalaginu með Florence
and the Machine en ég fann svo
sterkt að mig langaði að prófa að
gera það sjálf.“
Sigrún heldur ótrauð áfram í
tónlistinni en hún hlaut nýlega
styrk frá Hljóðritasjóði Stefs til út-
gáfu á nýrri smáskífu sem kemur
út á morgun. Útgáfutónleikar
verða svo haldnir 18. desember á
Húrra. „Þetta verður í annað sinn
sem ég kem fram með mína tónlist,
ég hef aðeins einu sinni gert það
áður, á Airwaves núna í nóvember,
sem var mikil áskorun fyrir mig.
Það er alla vega nóg á döfinni,“
segir Sigrún. Þess má að lokum
geta að hlusta má á Hringsjá á
slóðinni: https://soundcloud.-
com/beinteins89/sets/hringsja.
Morgunblaðið/RAX
Berskjaldaðri „Ég er orðin svo vön því að vera alltaf með hljóðfærið fyrir framan mig. Maður verður berskjaldaðri
þegar maður syngur,“ segir tónskáldið, básúnuleikarinn og söngkonan Sigrún Jónsdóttir.
„Tilviljanir í
bland við annað“
Sigrún Jónsdóttir, tónskáld og hljóðfæraleikari, sendir
frá sér nýja smáskífu Hefur leikið með Björk, Sigur Rós
og Florence and the Machine á tónleikaferðalögum
Tónlistarhátíðin Secret Solstice
verður haldin í fjórða sinn dagana
16. til 18. júní 2017 í Reykjavík.
Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa
upplýst að meðal tónlistarmanna og
hljómsveita sem fram koma eru
Foo Fighters, The Prodigy, Rich-
ard Ashcroft, Dubfire, Pharoahe
Monch, Foreign Beggars, Dusky og
Kerri Chandler.
The Prodigy á Sec-
ret Solstice 2017
Stuð Elektrósveitin Prodigy á tónleikum
sínum í Höllinni árið 2004.
Dómnefnd Hins
íslenska glæpa-
félags tilkynnti í
gær hvaða fimm
bækur eru til-
nefndar til Blóð-
dropans 2017
fyrir bestu
glæpasögu ársins
2016. Í stafrófs-
röð höfunda eru
tilnefnd Arn-
aldur Indriðason fyrir Petsamo;
Jónína Leósdóttir fyrir Konuna í
blokkinni; Lilja Sigurðardóttir fyr-
ir Netið; Ragnar Jónasson fyrir
Drunga og Yrsa Sigurðardóttir fyr-
ir Aflausn.
Alls komu út fimmtán glæpasög-
ur á þessu ári og hafa þær aldrei
verið fleiri. Í dómnefnd eru Krist-
ján Jóhann Jónsson, Guðrún Ög-
mundsdóttir og Vera Knútsdóttir.
Blóðdropinn verður venju sam-
kvæmt afhentur í júní.
Tilnefnd til Blóð-
dropans 2017
Yrsa
Sigurðardóttir
FANGAR
HINN SANNA
ANDA JÓLANNA
Miðasala og nánari upplýsingar
SÝND KL. 6, 9
SÝND KL. 8, 10
SÝND KL. 5.40
SÝND KL. 8, 10.45 SÝND KL. 6