Morgunblaðið - 08.12.2016, Page 104
Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Sig-
ríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran
syngja á jólatónleikum í Seltjarnar-
neskirkju í kvöld kl. 20. Um meðleik sjá
Lenka Mátéová orgelleikari og Sig-
urður Halldórsson sellóleikari.
Jólatónleikar í
Seltjarnarneskirkju
FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 343. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Aðstoðarmaður Trump rekinn …
2. 15 ára játar morðin í Kristiansand
3. „Okkur þykir þetta fyrirkomulag …
4. „Ég átti satt að segja ekki von á þessu“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Jólatónleikar tónleikaraðarinnar Á
ljúfum nótum verða í Fríkirkjunni í
dag kl. 12 til styrktar Bráðamóttöku
Landspítalans. Fram koma Hanna
Dóra Sturludóttir, Einar Clausen,
Ágúst Ólafsson og Lilja Eggertsdóttir
ásamt hljómsveit og kór.
Hátíðarstund í Frí-
kirkjunni í hádeginu
Á föstudag Austan og norðaustan 8-15 m/s. Rigning eða slydda,
en yfirleitt þurrt norðvestan- og vestanlands. Hiti 0 til 8 stig, mild-
ast syðst á landinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 10-18 m/s og rigning eða
slydda á norðanverðu landinu. Mun hægari vindur og rigning með
köflum sunnan heiða, einkum suðaustanlands. Hiti 0 til 8 stig.
VEÐUR
„Ég er sannarlega stoltur
hvernig okkur hefur gengið
síðustu átján mánuði.
Strákarnir hafa verið frá-
bærir og vissulega er
skemmtilegt að mæta í
vinnuna þegar vel gengur,“
segir Aðalsteinn Eyjólfsson,
þjálfari þýska 2. deildarliðs-
ins TV Hüttenberg. Liðið
kom upp úr 3. deild í vor og
er nú aðeins tveimur stigum
á eftir toppliði 2. deildar
eftir 15 umferðir. »2
Strákarnir hafa
verið frábærir
Ásgeir Sigurgeirsson hefur verið
ósigrandi í efstu deild Þýskalands í
skotfimi með loftskammbyssu í vet-
ur. Hann býr þó á Íslandi en fer í
þriggja daga keppnisferðir til Þýska-
lands til að skjóta fyrir lið sitt, Ötlin-
gen. Þetta er þriðja tímabil hans með
liðinu. „Mér finnst mjög skemmtilegt
að fara þarna út að keppa. Þarna eru
áhorfendur sem hafa mikinn hávaða,
þannig að þetta er að-
eins öðruvísi stemn-
ing,“ segir Ásgeir.
»4
Hávaði á deildaleikjum í
skotfimi í Þýskalandi
„Mér hefur liðið mjög vel hjá Eskils-
tuna. Þetta er frábær klúbbur og gott
umhverfi. Ég taldi best fyrir mig á
þessum tímapunkti að vera þarna
áfram. Þar líður mér vel og ég hef rými
til að þroskast enn meira,“ segir Glód-
ís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, sem hefur samið á ný við
Eskilstuna, eitt besta lið Svíþjóðar,
þrátt fyrir áhuga frá Englandi. »1
Taldi best fyrir mig að
vera þarna áfram
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Erfiðlega hefur gengið að mynda
ríkisstjórn undanfarnar vikur.
Gunnar Geir Vigfússon lætur það
ekki á sig fá og bíður rólegur eftir
því að mynda enn eina ríkisstjórn Ís-
lands, en enginn hefur myndað eins
margar og hann.
Gunnar G. Vigfússon er enginn
venjulegur ljósmyndari heldur hefur
hann sérhæft sig í opinberum ljós-
myndatökum og myndar mest
prúðbúið fólk. Hann hefur til dæmis
myndað embættistökur forseta Ís-
lands frá 1976, alls 11 sinnum, op-
inberar heimsóknir forseta Íslands
innanlands og opinberar heimsóknir
erlendra þjóðhöfðingja og annarra
sérstakra gesta hingað til lands auk
sendiherra erlendra ríkja, þegar
þeir afhenda forsetanum trún-
aðarbréf sitt.
„Ég myndaði fyrstu opinberu
heimsókn Margrétar Danadrottn-
ingar til Kristjáns Eldjárns 1973 og
fyrsta ríkisstjórnarmyndin, sem ég
tók, var af fráfarandi stjórn Ólafs
Jóhannessonar 1976. Sama dag tók
ég mynd af nýrri ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar,“ segir Gunnar.
Ljósmyndarinn á ekki langt að
sækja fyrirmyndina. Hann lærði
ljósmyndun hjá föður sínum, Vigfúsi
Sigurgeirssyni, og tók við af honum
eftir að hafa unnið með honum lengi.
Vigfús myndaði til dæmis þjóð-
stjórnina 1939, utanþingsstjórnina
1942 og síðan margar ríkisstjórnir
þar til hann hætti. „Þetta er langur
tími en frá 1976 hef ég myndað 45
ríkisstjórnir með mannabreyt-
ingum.“
Gunnar segir að ekki sé erfitt að
mynda ríkisstjórn. „Þetta er alltaf
sama uppstillingin,“ segir hann og
bætir við að fyrirsæturnar séu ávallt
ljúfar sem lömb. „Það hafa aldrei
komið upp nein vandamál.“
Ríkisstjórnir koma og fara og
breytingar eru gerðar af og til.
Gunnar segist aðeins muna eina
dagsetningu í þessu sambandi. „Mér
er minnisstæðust ríkisstjórnin sem
mynduð var 8. febrúar 1980,“ rifjar
hann upp. „Þá lá við að mynduð yrði
utanþingsstjórn en Gunnar Thor-
oddsen klauf sig frá Sjálfstæð-
isflokknum og myndaði mjög umtal-
aða ríkisstjórn.“ Hann bætir við að
Kristján Eldjárn forseti hafi verið
mjög ánægður með myndun stjórn-
arinnar og Halldóra, eiginkona hans,
hafi boðið sér að setjast með þeim
inn í stofu og skála við þau í tilefni
dagsins. „Þegar ég kom inn stóð
Kristján upp, heilsaði mér innilega
og sagði: „Jæja, Gunnar minn Geir.
Hvernig finnst þér að vera búinn að
sameina Sjálfstæðisflokkinn í nafn-
inu þínu?““
Alltaf til taks
Stjórnmálin eru óútreiknanleg en
Gunnar hefur alltaf verið til taks,
þegar ríkisstjórn hefur verið mynd-
uð. „Svo undarlega vill til að ég hef
alltaf verið heima á þessum tíma,“
segir hann og leggur áherslu á að
hann hafi aldrei þurft að gera sér-
stakar ráðstafanir til þess að geta
mætt á Bessastaði á réttum tíma.
„Reyndar þurfti ég einu sinni að
breyta um gang vegna þess að
breyting á ríkisstjórn var fyrirhuguð
en svo varð ekki af henni á þeim
tíma. Núna er ég til dæmis nýkom-
inn úr fríi og ekkert á förum á næst-
unni, því tilbúinn hvenær sem er.“
Staðan sem slík er ekki opinber
staða heldur er kallað á Gunnar þeg-
ar á þarf að halda. „Þetta er hefð,“
segir hann og bætir við að gott sé að
hafa festu á hlutunum. „Filmusafnið
og myndirnar eru á einum stað og
auðvelt að grípa til mynda ef þarf.“
Gunnar segir að starfið sé alltaf
jafn skemmtilegt og bendir á að þó
uppstillingin sé alltaf eins séu engar
tvær myndir eins. Hann á sér enga
uppáhalds ríkisstjórn og bíður alltaf
rólegur eftir þeirri næstu. „Ég var
spenntur til að byrja með enda
merkilegt að fá að mynda ríkis-
stjórnina en þetta er komið upp í
vana. Ég mynda bara ríkisstjórn
þegar á þarf að halda.“
Auðvelt að mynda ríkisstjórn
Gunnar Geir Vigfússon hefur myndað fleiri ríkisstjórnir en nokkur annar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ríkisstjórnir Gunnar Geir Vigfússon ljósmyndari hefur myndað 45 ríkisstjórnir með mannabreytingum og hanga myndirnar uppi í Stjórnarráðshúsinu.
FYLGIR BLAÐINU Í DAG!