Berklavörn - 01.06.1945, Page 17

Berklavörn - 01.06.1945, Page 17
BERKLAVÖRN | 7. éra. | Utgefandi: Samband Ísíenzkra berklasjúklinga 1 | ÁVARP Samband íslenzlcra berklasjúlclinga var stofnað 24. okt. 1938. Sjö ár eru Hðin, síðan tœpir þrír tugir sjúklinga úr berklahœlum landsins og sjúlcrahúsum lieylcja- víkur, komu saman að Vífilsstöðum til að skipuleggja þau samtök, sem síðan eru orðin landskunn. Þessi samtök hafa va.tið að árceði og bjartsýni með ári livcrju, aflað sér viðurkenningar og vinscelda hjá þjóðinni oy fengið í lið með sér stnrfs- krufta margra ágœtismanna, Öll þjóðin, félög sem einstaklingar, liafa af mikilli rausn styrkt S. í. B. S. með /járframlögum og Alþingi veitt því eftirtektarverða viðurkenningu, sem seint verður metin að fullu. Aðalmarkmið S. 1. B. S. hefnr frá upphafi verið það uð ráða fram úr erfiðu félagslegu vandamáli, er valclið hefur áhyggjum, sorg og efnatjóni hér á landi, sem annars staðar. Þetta vandamál er að tryggja, svo sem bezt má verða, framtíð þeirra berklasjúklinga, sem brottskráðir eru af heilsuhœlum, iryggja líf og heilsu þcirra, sem glatað liafa miklu af starfsþoli sínu og eru eklci samkeppnisfœrir á aimennum vinnumarkaði. Girða fyrir það, að sjúklngar, sem náð hafa bata fyrir starf áqœtra lcekna og góða aðhlynningu á heilsuhœlum, komi jafnharðan aftur sjúlcir á hcelin vegna þess að þeim voru eigi btiin lífskjör við þeirra hcefi. Hindra þessa ódæma sóun mikillu verðmœta með byggingu VINNUHEIMILIS BERKLASJÚKLINGA. Hinn 1. febr. 1945 tók Vinnulieimili S. 1. B. S. að Reykjalundi í Mosfellssveit til starfo. Þá hefst merkur þáttur í sögu íslenzkra lieilbrigðismála. Langþráðum áfanga er náð, cn langt er þó enn á vegarenda. Byrjunin er myndarleg, en mnrgt cr þó ógert. Enn vantar rúm fyrir fjölda veiklaðra manna, karla og kvenna, sem þrá að verða sj&lfbjarga, þrátt fyrir lamað vinnuþol. Þjóðarhagur krefst þess, að haldið verði áfram að btjggja í Reykjalundi. S. I. B. S. mun halda verkinu áfram, unz komið er á leiðarenda, enda treystum vér því, að þjóðin muni sem jafnan áður, sýna málinu þann skilning, sem sæmir menningarþjóð. Takmarkið er: Ljúkum byggingarfravikvæmdum í Reykjalundi sem fyrst. í miðsi jórn S. í. B. S. Maríus Helgason, Oddur Ólafsson, Árni Einarsson, Eiríkur Albertsson, Ólafur Björnsson, Sxmundur Einarsson, Ásberg Jóiiannesson.

x

Berklavörn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.