Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 45
um háloftin. Meira um það, þegar ég
kem heim. Það er ekki fyrir mælskan
mann að segja heila ferðasögu í fáum
orðum.
Við fulltrúarnir á þingi S. I. B. S.
höfum mikið að gera. Stórir viðburð-
ir eru í aðsigi. Fjársöfnunin hefur
gengið fram yfir vonir og nú þegar
er fært að hefjast handa með bygg-
ingu vinnuheimilis. Ég hef skoðað
staðinn og teikningarnar og lízt
prýðilega á hvorttveggja. Það verður
byrjað á því að byggja smá íbúðar-
hús, en fyrst um sinn verða braggar
notaðir fyrir vinnuskála.
Þetta er okkar fyrirheitna land.
Hin eina friðlýsta höfn. Þarna og að-
eins þarna gefst okkur tækifæri til
að eignast heimili. Þarna getum við
verið saman, þú og ég, þangað til
dauðinn aðskilur okkur. Undrar þig
nokkuð, þó að mér yrði við eins og ég
sæi dagsbrún eftir langa, myrka nótt.
Enda þótt ég hafi reynt að dylja það
fyrir þér, hefur mér sannarlega okki
verið rótt, þegar ég hef hugsað til
þess, að þú ættir að hrekjast frá mér
á næstunni og þar með væri öll von
um samvistir okkar að engu orðin.
En nú ljómar dagur og lífið brosir
á ný. Aðeins stutt bið og svo fáum
við að vera saman á meðan við lifum
bæði.. . Með þessa von ríkasta í hoga
kveð ég þig, ástin mín.
DAGSTOFA í REYKJALUNDI
Ljósm. F. Ckiiisen.
BERKLAVÖRN
29