Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 43

Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 43
í bréfinu, hann var bara skálkaskjól. Bless- aður, góði pabbi, hún hafði alltaf verið eftirlætið hans, hann mundi ekki amast við að hún kæmi heim, en hann hafði ævin- lega verið borinn ráðum. Gremjan yfir bréfunum hafði sezt svo að í hug hennar, að hún hafði ekki fengið sig til að svara þeim. Og enn hafði hún engar ráðstafanir gert til að útvega sér at- hvarf. Þetta hafði hún ætlað að segja lækninum en brostið þrek til þess, og hún hafði ennfremur ætlað að minna hann á, hvernig til hafði tekizt, þegar hún útskrif- aðist af hælinu áður. Of snemma byrjaði hún að vinna og heilsa hennar bilaði á ný. Þá hafði hún sjálf verið ódeig og þeir, sem næst henni stóðu, höfðu fremur örvað hana en latt til vinnu. Mamma hennar, sem sjálf var hraust og harðgerð hafði ráðið þær báðar í fiskvinnu og látið hana fylgja sér eftir, hvernig sem viðraði. Þeg- ar svo kom í ljós að vinnan hefði orðið henni um megn, varð mömmu hennar það efni til mikils málskrafs, hvílíkt ábyrgðar- leysi læknarnir sýndu með því að útskrifa af hælunum fólk, sem ekki hefði hreysti til að vinna. Nei, hún vildi ekki um þetta hugsa. það var aðeins til að ýfa upp gremju hennar og hryggð, heldur flýja á náðir vanda- lausra. Hún velti fyrir sér, hvaða störf hún gæti helzt unnið. Hún gæti tekið að sér inn- heimtu, létta afgreiðslu- eða verksmiðju- vinnu; en þó helzt saumaskap. Bindandi starf væri óhentugt fyrst í stað. Ef hún tæki heim sauma- eða handavinnu gæti hún fremur hagað sér eftir því, sem starfs- þol hennar leyfði, og tekið sér hvíld, þegar hún væri þreytt og slöpp. En hana vantaði heimili. Hún mátti ekki til þess hugsa að hýrast ein í einhverri herbergisholu og eiga enga aðhlynningu vísa, ef hún veikt- ist. Hún hafði stundum talað um þetta við Böðvar, en það var eins og honum fyndist ekkert liggja á. „Þú verður ekki látin fara á næstunni, fyrst þú átt ekki að neinu heimili að hverfa“, sagði hann jafnan. Svo hafði hún látið tímann, líða í fyrir- hyggjuleysi og þó ugg. Hvað mundi Böðvar segja nú? En hann var fjarri, hafði farið suður á sambandsþingið og yrði viku eða meira í ferðinni. — Nú var hælið langt að baki henni. Hún gekk eftir tjarnarbakka, þar, sem strjálir viðarrunnar spegluðust í vatninu. Það var dimmóskulegt og kalt, þéttur rign- ingarúðinn sat eins og héla á steinum og stráum. Svona var lífið alloftast, myrkt og nöt- urlegt. Enginn bjarmi, sem lýsti leiðina framundan, enginn varmi, sem yliaði hröktum vegfaranda----------Hvers vegna halda svo fast í það? Örvænta og stríða, líða óbærilegar þrautir, bera þungar á- hyggjur og algert vonleysi, en lifa þó — -----Ekki þurfti mikið út af að bera til þess að öllu væri lokið. Hún gæti misstigið sig hérna á tjarnarbakkanum, hún vissi um hyl við bakkann.--------- Nei, það var of hryllilega opinskátt. Ef henni aðeins yrði verulega kalt---- — Nú var hráslagarigning. Hún þyrfti ekki annað en að fara úr kápunni og losa um kjólinn, svo að regndroparnir skyllu á nöktu höundi hennar og vindurinn næddi um brjóst hennar. Veðrið var að færast í aukana. Hún kæmi heim rennvot og skylfi af kuldaflogum og svo----------. Hún hristi höfuðið yfir hugsunum sín- um. Þetta var brjálsemi, óþolandi aum- ingjaskapur. Henni var nær að taka Drop- laugu, stofusystur sína sér til fyrirmynd- ar, hún bar þungbær veikindi með bros á vör og æðraðist aldrei. Þrátt fyrir allt var þó dýrmætt að hafa fengið bata. Bak við úrræðaleysi hennar og kvíða djarfaði fyrir von um betri tíma. BEEKLAVÖRN 27.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Berklavörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.