Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 28
áður en starfsemin byrjaði, en vitað var
þó að það yrði gert síðar.
Fyrstu 3 mánuðina dvöldu 20 vistmenn
að Reykjalundi. Þeir unnu að ýmsum störf-
um, sem verður nánar getið síðar, 41/2
stund daglega að meðaltali. Flestir þeirra
höfðu lítið eða ekkert unnið áður um lengri
tíma, en þrátt fyrir það voru afköstin mjög
sæmileg, og öllu betri en búizt hafði ver-
ið við. Veikindadagar voru fáir. 1 vist-
mannanna var sendur á heilsuhæli vegna
versnunar. Rekstur heimilisins var dýr
þessa fyrstu 3 mánuði, um 25 kr. á dag
fyrir hvern vistmann, tekjur hrukku ekki
fyrir gjöldum. Eftir fyrstu 3 mánuðina
fjölgaði vistmönnum, er seinni húsin voru
tekin í notkun og nú eru þar 38. Unnið
hefir verið í sömu greinum og áður. Veik-
inda dagar eru fleiri nú en fyrstu 3 mán-
uðina og stafar það einkum af umferða-
sjúkdómum. 2 vistmenn hafa verið braut-
skráðir eftir 6—7 mán. dvöl, báðir við
góða heilsu og allmikið starfsþol. 1 vist-
maður hvarf aftur á heilsuhæli með
óbreytta heilsu. Starfsþol vistmanna hefir
yfirleitt. aukizt mjög við vinnuna. Ekki
ber á að vistmenn þreytist við vinnuna og
það vill frekar brenna við, að þeir vilji
vinna lengur en ákveðið er heldur en skem-
ur.
Eftir svo skamman tíma er ekki unnt
að birta nákvæmar skýrslur, hvorki um
rekstur heimilisins né vei’kstæðanna. Er
starfað hefir verið í eitt ár, verða ná-
kvæmar skýrslur gerðar og birtar þeim,
sem hlut eiga að máli.
Guðmundur Geirdal:
Reykjalundur
í Ijósum Reykjalundi
er Ijúft að eiga skjól,
þeim, sem skapadísin skaut
í skuggann undan sól.
Hér streymir orlcuylur
í æskubrjóstin hrjáð.
Yfir þau úr geirni guós
er geislafjörvi stráð.
í víöum fjallafaömi
á fegurö lífsins völd;
leiftrar hennar litadýrð
um landsins morgna og kvöld.
Og hér á æslcan heima,
sem hreysti og þroska ann,
hafði og barizt hraustast þar,
sem hvítur loginn brann.
Hún býr sér vonaborgir
í blárri draumafirrð. —
Vinir leiðast arm í arm
í aftans ró og kyrrð.
í Ijúfum Reykjalundi
er lífið yndisfrítt.
Við hans trausta bróðurbarm .
er batavonin knýtt.
M u n ið e f t i r
HAPPDR/ETTI Sl'BS
12
BERKLAVÖRN