Berklavörn - 01.06.1945, Side 20

Berklavörn - 01.06.1945, Side 20
Hálldán Helgason, próf.: Hugsjónir og samtök Hálfdan Helgason 1. febrúar 19U5 — það er dagur. sem engan veginn virðist frábrugðinn öðrum dögum fljótt á litið. Og þó mun hann, er tímar líða, hljóta nokkra sérstöðu meðal minningardaga vorra, þar sem hann mark- ar ein mikilvægustu tímamót í sögu heil- brigðismála þjóðarinnar. Þann dag tók til starfa vinnuheimili S. I. B. S. að Reykja- lundi í Mosfellssveit. En með stofnun þess heimilis var nýjum og þýðingarmiklum áfanga náð í baráttunni við hinn mikla vá- gest, berklana, sem svo margur maður hef- ur orðið að lúta í lægra haldi fyrir á liðn- um áratugum. Hugsjónin mikla, að geta fullnægt starfslöngun og treyst starfsþol þeirra manna, sem hefðu náð þeirri heilsu að teljast verkfærir á ný, þótt nokkrum takmörkum væri háð, hafði rætzt. Fögur og vistleg íbúðarhús höfðu risið af grunni og önnur voru í smíðum. Vinnuskálar, fyr- ir konur og karla, stóðu opnir verkfúsum sjúklingum, svo að þeim gæfist kostnr á að fá fullnægt starfslöngun sinni og jafn- framt endurheimta að fullu þá heilsu, er aftur gerði þeim kleift að taka til starfa úti í hinum ytra heimi. Gleði hinna fyrstu vistmanna fyrir auknu frelsi og nýjum möguleikum til sigui’s í baráttunni við hinn mikla óvin, lýsti út úr hverju andliti. Mikilsverðum áfanga hafði verið náð. Allar framkvæmdir í Reykjalundi hafa kostað of fjár, eins og við var að búast. En hin mikla stofnun hvílir þó á enn traustari og mikilsverðari máttarstoðum en þeim, er bæði mölur og ryð fá grandað. Því að hugsjónir og samtök voru hin raun- verulegu öfl, se.m þetta óskabarn allra berklasjúklinga fyrst og fremst á tilveru sína að þakka. Vér, sem njótum fullkomins heilbrigðis, hugsum vissulega allt of sjaldan til þeirra, sem heyja áralanga baráttu við berkla- veikina, fjarri ástvinum sínum og átthög- um, sviftir störfum sínum og frelsi um lengri eða skemmri tíma, eða fyrir fullt og allt. Það voru þá heldur ekki vér, hinir heilbrigðu, sem hófumst handa, til þess að hrinda þessu mikla velferðarmáli allrar þjóðarinnar í framkvæmd. Það voru hug- sjónamenn úr hópi sjúklinganna sjálfra, sem urðu fyrri til og vöktu oss hina. Þeir hófu starfið, með tvær hendur tómar, en brennandi í andanum. Þeir hétu á liðveizlu alþjóðar og þjóðin bar gæfu til þess að þekkja sinn vitjunartíma í þeim efnum. Hin mikla, fagra og mikilsverða hugsjón, að létta byrðar og bæta lífskjör hinna 4 BERKLAVÖRN

x

Berklavörn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.