Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 33
einhverju leyti endurtaka það, sem í grein
hans stendur; en sjaldan er góð vísa of
oft kveðin eins og þar segir.
Þrátt fyrir miklar rannsóknir víða um
heim, hefur því miður ekki tekizt ennþá að
finna neitt það lyf, sem grandað geti
bei-klasýklinum, án þess um leið að vera
skaðlegt mannslíkamanum.
Aðferðirnar í baráttunni gegn berkla-
veikinni rnunu því enn um hríð verða þær
sömu, sem undanfarið hafa verið notaðar
hér á landi og erlendis, þ. e. a. s. að leita
uppi og lækna þá, sem veikir eru og auka
mótstöðuþrótt hinna heilbrigðu.
Bólusetning heilbrigðra gegn berkla-
veiki, svokölluð Calmettevaccination er
kennd við franskan lækni, Calmette að
nafni, sem fann upp þessa bólusetningar-
aðferð og var fyrsta bólusetningin gerð af
honum í Frakklandi 1922. í byrjun var það
reyndar ekki bólusetning í orðsins eigin-
legu merkingu, þar eð bóluefnið var gefið
inn, en seinna var horfið frá því, og er því
nú alltaf dælt inn í húðina.
1927 var fyrsta bólusetningin gerð í
Danmörku og hefur þessi bólusetningarað-
ferð rutt sér meira og meira til rúms,
ekki hvað sízt á Norðurlöndum, og skipta
þeir sem bólusettir hafa verið í heiminum
nú sennilega milljónum. Árangur sá sem
fengizt hefur og ritað hefur verið um í
læknarit t. d. í Danmörku, Noregi og Sví-
þjóð, er allir,’ á einn veg um ágæti bclu-
setningarinnar.
Nú mega menn ekki halda, að það sé
nóg að bólusetja fólk og þá sé öllu óhætt
og engin hætta á að maður geti fengið
berklaveiki. Svo auðvelt er það því miður
ekki. Engin bólusetning, hvorki t. d.
gegn kúabólu eða öðrum sjúkdómum veitir
algert ónæmi gegn viðkomandi sjúkdómi.
Calmettevaccination er aðeins einn liður í
þeim þætti berklavarnanna, að auka við-
námsþrótt manna gegn berklasýklunum,
og getur verið sá þáttur, sem ríður bagga-
muninn um það, hvort sá sem smitast,
verður alvarlega veikur af berklum, eða
yfirvinnur smitunina.
Lesendum ,,Berklavarnar“ er kannske
kunnugt, að þeir sem eru jákvæðir við
berklapróf, eru álitnir standa betur að
vígi gegn berklasmitun, en þeir neikvæðu.
Tilgangur Calmettevaccinationarinnar er
er að gera þá neikvæðu jákvæða við berkla-
próf, og því eru einungis þeir neikvæðu
bólusettir. Bólusetningin er í sjálfu sér
smitun með ákaflega vægum kúaberkla-
sýkli. Þessi smitun sem er algjörlega
hættulaus, jafnvel nýfæddum börnum, hef-
ur það í för með sér, að sá sem er bólu-
settur verður jákvæður og fær í sig þau
mótefni, sem menn álíta að myndist ? lík-
amanum við yfirunna berklasmitun.
Það hefur sýnt sig, að þar sem jákvætt
og neikvætt fólk hefur búið við sömu kjör
og verið í sérstakri smitunarhættu, þá hafa
BERKLAVÖRN
17