Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 39

Berklavörn - 01.06.1945, Blaðsíða 39
Kristinn Stefanssoni ÁFENGIF) OG BERKLARNIR Kring um árið 1920 var haldinn al- þjóðalæknafundur í París. Á þessum fundi var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Vegna þess hve náið samband er á milli áfengisnautnar og berklaveiki, vill fundurinn lýsa yfir því, að hann leggur afar mikla áherzlu á að sameina barátt- una við berklaveikina, baráttunni móti áfengisnautninni". Vafalaust hafa ýmsir þekktir og jafn- vel heimskunnir læknar, setið þetta al- þjóðalæknaþing og er ályktunin fyrir þá sök mjög merkileg og full ástæða ti! að gefa henni gaum. Allir vita, að áfengisnautnin veldur oft basli og fátækt og þröngum og slæmum húsakynnum, en slíkar aðstæður mynda frjóan jarðveg fyrir berklasýkilinn. Á- fenginu fylgir og hverskonar óregla, vök- ur, óvarkárni og hirðuleysi um sjálfan sig og gagnvart öðrum. Loks er viðurkennt, ar sjúklingsins og jafnvel lækninum stund- um ósjálfrátt. Mikilvægi hinnar sálarlegu meðferðar hefur orðið ljósari síðustu áratugina fyrir ýmsar uppgötvanir á sviði sálar- og sál- sýkisfræði. Óljóst hugboð hefir orðið að vísindalegri þekkingu, og enn má gera ráð fyrir framförum í þessa átt. Ný þekking hefur verið dregin fram úr dj úpum manns- sálarinnar, og mun hagnýting hennar í þágu læknisfræðinnar verða stórum al- mennari í framtíðinni. Þá verður sálræn lækning markvissari og áhrifameiri en hingað til. BERKLAV ÖRN að áfengisnautnin veikir mótstöðuafl lík- amans og gerir hann oft berskjaldaðan fyrir strandhöggi berkla og annara sýkla. Þessi ályktun læknanna kemur því eng- um hugsandi rnanni á óvart. Hún er stað- festing- færustu sérfræðinga á því, sem sér- hver leikmaður í þessum efnum, þykist sjá af heilbrigðri skynsemi sinni og reynslu- þekkingu. En af því að sambandið milli áfengis- nautnar og berklaveiki er svona „náið“, hlýtur líka baráttan gegn nautn áfengra drykkja að vera sjálfsögð berklavörn. Ég veit ekki, hvort leyfilegt er að draga þá ályktun af samþykkt læknanna, að allar berklavarnir séu meira og minna kák, nema jafnframt sé hafizt handa af opin- berum aðilum um útrýming áfengis. Það kann að vera fullmikið sagt, en mun þó eigi fjarri sanni. En hitt 'virðist koma skýrt fram, að hinir vísu og slingu læknar þykjast ekki í vafa um það, að baráttan móti áfengisnautninni sé nauðsynleg berklavörn, ef æskilegum árangri á að verða náð. Ég beini máli mínu til íslenzku lækna- stéttarinnar og þó sér í lagi til berklalækn- anna. Hvernig væri t. d. að næsti aðalfund- ur Læknafélags íslands tæki þetta má! til rækilegrar athugunar og ynni á annan hátt að því að útrýma áfenginu úr lanci- inu ? Einstaka íslenzkur læknir gerir þetxa þegar, en frekar má það teljast til undan- tekninga. Mér skilst, að takmark læknavísindanna sé ekki það fyrst og fremst að hjálpa nátt- úrunni til að lækna krankleika mannanna, heldur miklu frekar hitt að vernda heil- brigði þeirra — forða þeim frá sjúkdóm- um. Fyrir því hlýtur það að vera þungur áfellisdómur á íslenzka læknastétt, ef hún sýnir andstöðu eða jafnvel fullkomið af- skiptaleysi í baráttunni móti áfengisnautn- inni. 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Berklavörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.