Berklavörn - 01.06.1945, Page 63

Berklavörn - 01.06.1945, Page 63
Siglingar eru nauðsyn. Fátt er nauðsynlegra fyrir þá þjóð, sem vill vera sjálf- stæð, og þyggir eyland, en að eiga sín eigin skip til þess að flytja vörur að landinu og afurðir frá þvi. Samgöngurnar eru undirstaða framleiðslunnar og sú þjóð, sem getur ekki séð sér fyrir nauðsynlegum samgöng- um án utanaðkomandi aðstoðar, getur vart talizt fullkom- lega sjálfstæð, enda hefir reynslan sýnt, að þegar þjóðin missti skip sín, gat hún ekki haldið sjálfstæði sinu. Það fyrirtæki, sem þjóðin á sjálf og ávallt hefir verið rek- ið með hagsmuni þjóðarinnar fyrir augum, vill enn sem fyrr leitast við að vera í fararbroddi um samgöngumál lands- ins, og þannig styðja að því að tryggja sjálfstæði hins unga íslenzka lýðveldis. H.f. Eimskipafélag Islands BERKLAVÖRN

x

Berklavörn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Berklavörn
https://timarit.is/publication/1220

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.