Fréttatíminn - 04.06.2016, Síða 9
Gjaldeyrir.is er
tímasparnaður
fyrir alla
Pantaðu ferðagjaldeyrinn á gjaldeyrir.is og
gríptu hann með þér í nýja útibúinu okkar á
Keflavíkurflugvelli á leið út í heim.
Viðskiptavinir allra banka geta nýtt sér
þessa þjónustu.
Það verður ekki mikið þægilegra.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
6
-
1
2
6
8
| 9FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
Þeir sem skipta um
trú eru réttdræpir,
samkvæmt íslam
„Ég get ekki sótt kirkju í Noregi
og ekki heldur í Írak,“ segir Raisan
sem er 39 ára Íraki sem var dæmd-
ur í fangelsi fyrir liðhlaup en komst
undan til Noregs. Hann snerist
til kristinnar trúar fyrir tveimur
mánuðum.
Hann segir að Norðmenn setji
alla frá Suður Írak undir sama hatt
og sendi þá sjálfkrafa til baka. Þeir
sem verði fluttir héðan til Noregs
verði sendir þangað með hraðpósti,
án tillits til aðstæðna. Ástandið í
íröskum fangelsum sé þó hræði-
legt. Hann segir að þeir sem snúist
til kristinnar trúar eigi ekki sjö dag-
ana sæla í múslimskum löndum,
þeir séu í raun réttdræpir sam-
kvæmt íslam.
Engin landamæri
„Einn vinur okkar, Kúrdi sem
dvaldi lengi í Noregi og hefur
reyndar verið sendur þangað aftur,
vildi fá skírn í norsku kirkjunni en
fékk það ekki vegna þess að hann
var pappírslaus og ekki inni í kerf-
inu. Í Danmörku hafa stjórnmála-
menn skipt sér af starfi presta með
hælisleitendum og hvatt til þess að
enginn án gildra pappíra fái skírn,“
segir Kristín Þórunn Tómasdótt-
ir, prestur í Laugarneskirkju. Hún
segir að trúarafstaðan sé ekki at-
riði í starfi þjóðkirkjunnar með
hælisleitendum. „Við spyrjum ekki
um trúarlegan bakgrunn þeirra
sem koma á Seekers fundina okk-
ar heldur bjóðum alla velkomna.
Sumir hælisleitendur sem koma í
starfið okkar vilja taka skírn, því
það er áþreifanlegt og sýnilegt
skref í þá átt að tilheyra samfé-
laginu sem þau vilja vera hluti af.
Þau sem vilja skírast fá fræðslu og
undirbúning hjá presti og þetta
verður því mikilvægt og merk-
ingarbært fyrir þau. Við lítum ekki
á skírnina sem stjórnsýsluaðgerð
heldur leið til að miðla náð Guðs
og kærleika sama hvernig stendur
á – því að í guðsríkinu eru engin
landamæri,“ segir hún.
Hissa á Norðmönnum
„Þeir sem vilja skírast þurfa að
sækja fræðslu til mín sex sinnum
áður en af skírninni getur orðið.
Fræðslan fjallar um Biblíuna, boð-
orð Móses, líf Jesús, fyrirgefn-
inguna og merkingu hennar, hina
heilögu þrenningu, faðirvorið og
trúarjátninguna,“ segir Toshiki
Toma.
Hann segist vera mjög hissa á
þeirri afstöðu norsku kirkjunnar að
skíra ekki flóttamenn til kristinn-
ar trúar ef þeir eru ekki með vega-
bréf. Hann hafi stundum boðið upp
á styttri fræðslu vegna þessa svo
hælisleitendur geti látið skírast ef
til stendur að senda þá til Noregs.
Ég lít svo á að skírnin sé á grund-
velli guðlegrar náðar en ekki eitt-
hvað sem hann geti haft stjórn á.
Allir þessir menn koma frá Suður Írak og hafa skipt um trú á Íslandi.
Raisan segir að þeir sem snúist til
kristni eigi ekki sjö dagana sæla.