Fréttatíminn - 04.06.2016, Side 10
Enginn maður hefur verið dæmd-
ur hér á landi fyrir að hrella aðra
manneskju og brjóta þannig gróf-
lega gegn friðhelgi einkalífs við-
komandi en þó er ljóst að eltihrellar
eru stigvaxandi vandamál, þá ekki
síst vegna nýrra tækni og nálægð-
ar sem skapast á internetinu. Þetta
kemur meðal annars fram í samtali
við yfirlögregluþjón lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, Öldu Hrönn
Jóhannsdóttur, og talskonu Stíga-
móta, Guðrúnu Jónsdóttur.
Fréttatíminn hefur rætt við
nokkrar konur sem allar lýsa grófu
langvarandi ofsóknum sem hafa
breytt hegðunarmynstri þeirra.
Allar eiga þær það sameiginlegt að
vera varar um sig, að berjast við
kvíða og haga lífi sínu af ótta við
ofsóknir eltihrellanna – jafnvel þó
mörg ár séu liðin frá því ofbeldinu
lauk. Það er ljóst að ofbeldið er gíf-
urlega flókið og djúpstætt.
Vilja drottna
Aðeins tvær konur vildu koma
fram undir nafni og lýsa reynslu
sinni. Hinar óttuðust að ofsóknirn-
ar tækju sig upp aftur ef þær veittu
eltihrellinum minnstu athygli; þó
slík athygli sé ekki sú sem hrellun-
um hugnast, enda þrífast þeir best í
myrkum skúmaskotum og þrúgandi
þögn. Tilgangur eltihrellanna er
misjafn samkvæmt sérfræðingum;
sumir þeirra eru ástsjúkir á meðan
aðrir vilja einfaldlega drottna yfir
fórnarlömbum sínum. Þá er þriðji
hópurinn sem verður heltekinn
Ofsóknir eru vaxandi
vandamál í tæknisamfé-
lagi. Einstaklingar ofsækja
ókunnugt fólk árum saman
án þess að þeim sé refsað
fyrir háttsemi sína.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Eltihrelling refsilaus glæpur
Eltihrelling er alvarlegt vandamál í íslensku samfélagi, en svo virðist sem lögin nái afar sjaldan í skottið fólki sem ofsækir einstaklinga sem þeir þekkja lítið sem ekkert.
af frægðarmennum og eru til slík
dæmi hér á landi.
Öll mál sem snúa að nálgunar-
banni, sem hafa ratað fyrir Hæsta-
rétt Íslands, snúa að fyrrverandi
mökum. Þar er oft um líkamlegt
ofbeldi að ræða og oftar en ekki
eru börn í spilinu. Aftur á móti
eru nær engin dæmi, eftir því sem
Fréttatíminn kemst næst, um að
eltihrellar, sem eiga engin tengsl
við fórnarlömb sín, hafi verið úr-
skurðaðir í nálgunarbann – nema
um sé að ræða mál er snúa að opin-
berum starfsmönnum, svo sem lög-
reglumönnum og starfsfólki barna-
verndanefnda.
Konurnar tvær, sem Fréttatím-
inn ræddi við, eru fórnarlömb
tveggja eltihrella sem höfðu engin
tengsl við þær. Fjölmargar konur
hafa sakað mennina tvo um að of-
sækja sig og því er ljóst að gerendur
af þessari tegund eru fáir, á meðan
fórnarlömbin eru mörg.
Fangar óttans
Þetta eru ekki endilega „venjuleg-
ir“ brotamenn, þetta eru líka menn
sem hafa ekki neinn brotaferil,“
segir Alda Hrönn sem segir elti-
hrella vel þekkt fyrirbæri víða um
heim og tekur undir að ákveðin
brotalöm séu í lögum á Íslandi
þegar kemur að þessari tegund af-
brota. Það sýnir sig helst að engum
hefur verði refsað fyrir að brjóta
með svo grófum hætti á friðhelgi
einkalífs annarrar manneskju.
„Við höfum þó fengið ákveðin
vopn í þessari baráttu, meðal
annars með lögum um nálgunar-
bann og brottvísun af heimili. Það
skipti miklu máli. Við teljum þó að
ganga þurfi lengra í að tryggja úr-
ræði er varðar eltihrella til þess að
fullnægja skuldbindingum Íslands
hvað Istanbúl-samninginn varðar,“
segir Alda Hrönn. Istanbúl-samn-
ingurinn snýr að forvörnum og
baráttu gegn ofbeldi á konum og
heimilisofbeldi og var samþykktur
hér á landi 2011. Alda segir að lög-
reglan hafi óskað eftir því að það
verði skerpt á þessu atriði í lögum
til þess að auðvelda þeim að vernda
einstaklinga sem mega þola ofsókn-
ir.
„Þetta eru svakalega alvarleg
brot,“ segir Alda Hrönn. „Og þó að
áreitið hætti, tímabundið, þá taka
þyngstu áhyggjurnar við. Þannig
verður sá, sem fyrir þessu verður,
fangi óttans,“ segir Alda Hrönn.
Hrefna I. Jónsdóttir var kúguð
og ofsótt af manni í fjölda ára
eftir að hann myndaði hana í
kynlífsathöfnum
„Það er náttúrulega mjög sér-
kennileg staða að þegar maður
kynnist fólki, byrjar í sambönd-
um, nýrri vinnu, eða eitthvað
slíkt, þá þurfi maður að upplýsa
að þeir geti búist við því að fá í
hendurnar kynlífsmyndband af
mér,“ segir Hrefna I. Jónsdóttir,
sem mátti sæta ofsóknum mun
eldri manns frá menntaskólaaldri
sem reyndi að lokum að neyða
hana í vændi, ella yrði mynd-
bandið gert opinbert.
Maðurinn, sem ofsótti hana í
tæpan áratug, komst í samband
við hana í gegnum netið. Hrefna
segir manninn, sem hún taldi
þá pilt á sínum aldri, hafa verið
næman, hrósað henni og látið
henni líða vel. Hún hafi þurft á
stuðningi að halda á þeim tíma
og því tekið vel í athyglina. Síð-
ar féllst hún á að hitta mann-
inn og kom þá í ljós að um var
ræða karlmann á miðjum aldri,
ekki ungan áhugasaman pilt.
Það breytti því ekki að Hrefna
upplifði sambandið sem eitthvað
jákvætt. Hrefna segir að það sé
flókið að útskýra hvað kom næst.
Hún féllst á að sofa hjá honum
í eitt skipti. Hún hafi upplifað
hann sem klett í sínu lífi og það
er meðal annars ástæðan fyrir
því að hún kenndi sér sjálfri um
að einhverju leyti hvernig fór.
Maðurinn brást trausti hennar
algjörlega og tók kynlífið upp
án hennar samþykkis. Þar með
hófst matraðakennt tímabil í lífi
Hrefnu. Maðurinn hótaði ítrekað
að birta myndbandið opinberlega
eða senda það á ástvini hennar
ef hún hitti hann ekki, eða væri í
samskiptum við hann. Að lokum
reyndi hann að neyða hana út í
vændi; það var þá sem hún braust
út úr ofbeldinu.
„Hann náði bara algjörum
tökum á lífi mínu,“ segir Hrefna
sem náði að brjótast undan ægi-
valdi mannsins árið 2005. Meðal
annars með aðstoð lögreglu.
„Það er samt sorglegt að segja
frá því að ég hringdi í lögregluna
um daginn, eftir að önnur kona
lenti í honum, og þá kom í ljós að
engar upplýsingar voru inni í kerfi
lögreglunnar um að ég hefði ósk-
að eftir aðstoð,“ segir Hrefna sem
telur að lögreglan verði að bæta
verklagsreglur þegar kemur að
eltihrellum.
Hún segir ofbeldið sem hún
mátti þola hafa verið mikið á
netinu. Þar hafi stærsti hluti
samskiptanna farið fram og hann
hafi neytt hana til þess að vera í
samskiptum við sig með hótun-
um. Hún framvísaði þeim upplýs-
ingum til lögreglu, meðal annars
hótunum um að hann myndi gera
myndbandið opinbert. „En þeir
sögðust aldrei geta gert neitt,“
segir hún, og lýsir upplifun sinni
þannig að lögreglan hafi verið
algjörlega úrræðalaus þegar það
kom að málinu. Nokkrar konur
hafa lýst því hvernig þessi sami
maður hafi ofsótt
þær og hefur ein
þeirra meðal
annars kært
hann til lögreglu
vegna ofsókna
og er það mál
í rannsókn.
Þá hefur
þriðja
konan
óskað
eftir
nálgunar-
banni
gegn
honum.
Reyndi að neyða
fórnarlambið
í vændi
Mynd | Rut
Mynd | Hari
10 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Við kynnumst
stórkostlegri náttúru,
dýralíf og hinum forna
menningarheimi Maya
indíána. Skoðum m.a.
píramída,gamlar
menningaborgir, syndum
í sjónum við næst
stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn.
Endum svo á lúxus hóteli
við Karabíska, þar sem
allt er innifalið.
568.320.-
á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið:
Flug, skattar, hótel með
morgunmat, islenskur
fararstjóri, allar ferðir og
aðgangur þar sem við á.
0 4 - 1 9 O k t ó b e r 2 0 1 6
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
MEXICO, BELIZE
& GUATEMALA
w
alla föstudaga
og laugardaga