Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 12

Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 12
Hún segir það skelfilegt að kon- ur, og raunar karlar einnig, þurfi að draga sig hreinlega úr samfélaginu af ótta við að sæta ofsóknum af þessu tagi. Aðspurð hvað sé til ráða svarar Alda Hrönn, að lykillinn sé að til- kynna allt til lögreglunnar. „Við getum bara hvatt fólk til þess að tilkynna þetta í hvert skipti. Það er mikilvægt að tilkynna smávægi- legasta ónæði. Það styrkir mála- reksturinn, sérstaklega ef maður ætlar að fá nálgunarbann,“ segir Alda Hrönn sem áréttar þó að það sé verið að vinna í mikilvægum úr- bótum í lögum hvað þetta varðar. Tekur líf yfir á lúmskan hátt Stígamót gerðu gangskör að mála- f lokknum á dögunum, með- al annars vegna þrýstings fórn- arlamba eltihrella. „Við höfum lengi haft vonda sam- visku yfir því að komast ekki yfir allt sem við vildum gera. Þar sem nauðganir, sifjaspell og vændi eru þau ofbeldisform sem við vinn- um með dagsdaglega hefur það orðið útundan að ráðast í vit- undarvakningu um kyn- ferðislega áreitni, staf- rænt ofbeldi af ýmsum toga,“ útskýrir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga- móta. „Það þarf að koma því til skila að ofbeldi án snertingar getur verið mjög gróft og það getur tekið yfir líf fólks á lúmskan hátt. Vanmáttur hefur einkennt um- ræðuna. Það þarf að bæta lagaum- hverfi, þó það eitt og sér muni ekki leysa neinn vanda. Lögin um kynferðislega áreitni eru til dæmis til fyrirmyndar, en þau eru lítt þekkt og þeim er sjaldan beitt. En það þarf að koma lögum yfir eltihrella,“ segir Guðrún. Ekki ásættanlegt að bregðast ekki við Guðrún segir fæsta meðvitaða um úrræði og ekki síst alvarleika mál- anna. Hún segir það ekki ásættan- legt að lögreglumenn bregðist ekki við, sérstaklega vegna þess að oft liggja fyrir áþreifanleg sönnunar- gögn. „Ég veit að innan lögreglunn- ar hefur áherslum verið breytt til þess að mannskapur sé til staðar til þess að fást við þessi mál.“ Guðrún segir fæsta meðvitaða um úrræði og ekki síst alvarleika málanna. „Það ber að taka þessum málum mjög alvarlega, því þó brota- þolar sæti ekki líkamlegu ofbeldi, þá getur verið um mjög alvarlegar ofsóknir að ræða,“ segir Guðrún sem segir að það sé ekki ásættan- legt að fórnarlömb slíkra ofsókna mæti algjört úrræðaleysi eins og fórnarlömbin upplifa í dag. Alexandra var sautján ára gömul þegar hún talaði fyrir rælni við eltihrelli sem átti eftir að ofsækja hana í fjögur ár og hóta að ræna barninu hennar. Alexandra Arndísardóttir, rúmlega tvítug kona frá Akranesi, segist hafa gert þau mistök að hafa spurt eltihrellinn sinn á Facebook hver hann væri, eftir að hann bað hana um að vera vinur sinn á samskipta- miðlinum. „Hann átti svo eftir að ofsækja mig í fjögur ár eftir það,“ segir Alexandra sem segist hafa liðið eins og hún hefði gengið á vegg þegar hún leitaði aðstoðar hjá lögreglunni vegna ofsókna sem hún mátti þola. Alexandra segir ofsóknirnar hafa byrjað á vefnum þegar hún var 17 ára gömul en hún er 21 árs í dag. Hægt og rólega fór áreitið að færast yfir í stanslaust ónæði, meðal annars með linnulausum símhringing- um auk þess sem hana grunar að hann hafi setið um sig. „Að lokum var hann bara farinn að anda í sím- ann,“ segir Alexandra um það hvernig ofsóknirnar stigmögnuðust. Alexandra reyndi að útiloka hann á samskiptamiðl- um, en allt kom fyrir ekki, hann bjó til nýjar síður og sendi henni endalaust skilaboð. Spurð hverskonar skilaboð var um að ræða, útskýrir hún að þetta hafi oft snúist um það hvað hún væri falleg, að hann ætl- aði að giftast henni og svo framvegis. Eltihrellirinn er um 10 árum eldri en hún sjálf, eða í kringum þrí- tugt, og í mikilli fíkniefnaneyslu að hennar sögn. Það var ekki fyrr en ofsóknirnar breyttust í ljótar hótanir sem Alexandra fór að óttast um eigið öryggi. Ekki síst vegna þess að hún átti það til að sjá hann í nærumhverfi sínu. „Hann hótaði að taka af mér strákinn minn, sem var eins árs þarna,“ útskýrir Alexandra og bætir við að hann hefði tekið brjálæðisköst í hvert skiptið sem hún reyndi að slíta samskiptunum. Þá var hún farin að óttast manninn, en síðar átti eftir að koma í ljós að fjöldi kvenna segjast hafa lent í ofsóknum af hálfu mannsins. „Þegar ég leitaði til lögreglunnar sagðist hún ekki geta gert neitt þar sem maðurinn væri andlega veik- ur,“ segir hún og bætir við: „Ekki að það hafi fengið mig til þess að líða betur.“ Alexandra segist hafa fundið fyrir algjöru úrræðaleysi hjá lögreglunni. Hún segir að það eina sem virkaði að lokum var að veita honum enga athygli. Þannig hafi tækninýjung á Facebook gert meira gagn en lögreglan; sem var að öll skilaboð frá þeim sem hún þekkti ekki fóru í inni í sérstaka síu, þannig að hann gæti ekki séð hvort hún hefði skoðað skilaboðin. Nokkuð sem notendur Facebook ættu að kannast vel við. „Hann er núna búinn að láta mig í friði síðan síð- asta haust, maður vonar bara að það haldi áfram,“ segir Alexandra, vongóð að lokum. Ofurlítið spjall endaði með ofsóknum í fjögur ár Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðing- ur lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Mynd | Rut www.rmm.is LISTRÆNN STJÓRNANDI: VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON 16. - 19. júní 2016 í Hörpu Reykjavík Midsummer Music 4 DAGAR · 7 TÓNLEIKAR · 18 MAGNAÐIR LISTAMENN HÁTÍÐARPASSI AÐEINS 12.000 KR. MARGVERÐLAUNUÐ TÓNLISTARHÁTÍÐ KRISTINN SIGMUNDSSON Söngvar förusveins 17. júní kl. 20 í Eldborg TAI MURRAY Der Wanderer Grand finale 19. júní kl. 20 í Norðurljósum VIKTORIA MULLOVA Gangandi geimfari 16. júní kl. 20 í Norðurljósum H G M @ H G M .IS „Absolutely unmissable“ Reykjavík Grapevine „Einn af hápunktum tónlistarársins“ Fréttatíminn 12 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.