Fréttatíminn - 04.06.2016, Qupperneq 30
GOTT
UM
HELGINA
Hátíð hafsins stútfull
af skemmtun
Furðufiskasýning, sjóræningar, sjávarréttir,
Sirkus Íslands og ótal margt fleira á Hátíð hafsins
um helgina.
Sprett úr spori
á Hlíðarenda
Á morgun klukkan ellefu hefst hið
árlega Valshlaup þar sem ungir
sem aldnir eru hvattir til þátt-
töku og hlaupið er tíu kílómetra
frá bílastæðinu við Hlíðarenda út
að Ægisíðu og til baka meðfram
ylströnd Nauthólsvíkur. Keppt
verður í karla- og kvennaflokki
og verðlaun veitt fyrir fyrstu þrjú
sætin í báðum flokkum. Búist er við
ágætis veðri og því kjörið tækifæri
til hreyfingar undir sólinni.
Hvar? Valsheimilinu, Hlíðarenda.
Hvenær? Laugardaginn klukkan
11.
Hvað kostar? 1000 - 2000 kr.
UR_ óperan frumsýnd
á Íslandi
Fyrsta ópera Önnu Þorvalds
tónskálds, UR_, verður frum-
sýnd á Íslandi í Norðurljósasal
Hörpu í kvöld. Óperan er í leik-
stjórn Þorleifs Arnars Arnars-
sonar. Hugðarefni Önnu í fyrstu
óperu sinni er upphaf heimsins
eins og það birtist í grænlenskri
goðafræði, leið mannsins aftur
að uppruna sínum og hvern-
ig hann hefur fjarlægst rætur
sínar.
Hvar? Norðurljósasal Hörpu.
Hvenær? Laugardaginn kl. 8.
Hvað kostar? Verð frá 5.500 kr.
Barnasýningin Vera
og vatnið
Á morgun, klukkan 15, fer fram
aukasýning á Veru og vatninu, sýn-
ingu eftir hópinn Bíbí & Blaka um
veruna Veru. Fylgst verður með
tilraunum hennar og upplifunum
í veðri og vindum. Verkið er ætlað
börnum á aldrinum eins til fimm
ára og fjölskyldum þeirra.
Hvar? Tjarnarbíói.
Hvenær? Sunnudaginn kl. 15.
Hvað kostar? 2.500 kr.
Götupartí og markaðir
Á Laugavegi á milli Macland og
Bravó verður blásið til útimark-
aðar. Listafólk, plötusnúðar og
veitingafólk kemur saman að bjóða
upp á góða stemningu og selja
af sér spjarirnar, listina sína og
veitingar. Á sama tíma, nokkrum
skrefum neðar á Laugaveginum,
selja 19 glæsikvendi af sér spjarirn-
ar á Loft Hostel.
Hvar: Laugaveginum á milli
Macland og Bravó og Loft Hostel.
Hvenær: Milli klukkan 11- 18.
Heilsið upp á kanínurnar
Birgit Kositze kanínubóndi opnar
kanínubúið fyrir gesti og gang-
andi. Búið er á Syðri-Kárastöðum,
skammt norðan Hvammstanga.
Handverksmenn og konur verða
á staðnum að vinna úr beinum,
hornum og hrosshári. Einnig mæt-
ir Guðmundur Ísfeld frá Jaðri sem
smíðar glæsilega hnífa.
Kaffi og kleinur verða á boðstólum
sem Kvenfélagið Freyja sér um. Það
verða tónlistaratriði frá bændum í
nágrenninu og að sjálfsögðu
er frábær skemmtun
að skoða kanínurn-
ar, klappa þeim og
kynnast.
Hvar: Syðri-
-Kárastöðum.
Hvenær:
Laugar-
daginn frá
klukkan 13-
17.
Sýningar
Plast í hafinu: Umhverfisstofnun
kynnir hvað hver og einn getur gert
til að minnka mengun af völdum
plasts.
Sjóslys við Ísland 1870-2009:
Ljósmyndasýning og fróðleikur um
þau sjóslys sem hafa átt sér stað á
slóðum við Ísland í gegnum árin.
Listasafn Reykjavíkur: 2 fyrir 1 í
Listasafnið um helgina.
Fiskur dagsins: Franska listakon-
an Josée Conan kynnir japanskar
aðferðir við að prenta fiska-
munstur.
Matur
Veitingahúsin við Granda; Bryggjan
brugghús, Coocoo’s Nest, Texas-
borgarar og Bergsson mathús verða
með sérstakan matseðil í tilefni
hátíðarinnar. Það verður einnig
kokkað á pallinum á Sjóminjasafn-
inu og boðið upp á fiskismakk við
Grandagarð.
Skemmtun fyrir börnin
Sjávarklasinn: Í húsi Sjávarklasans
verður teiknismiðja fyrir börnin,
skipasmíðastöð, ískrapvél og raf-
stýrðir toghlerar.
Fljótandi sjóræningjakaffihús:
Vegfarendum gefst tækifæri til að
kíkja um borð í Sæbjörgina þar sem
sjóræningjar og skipstjóri taka á
móti manni.
Bryggjusprell: Þrautir, keppn-
ir, leikir og allskyns uppákomur
á höfninni fyrir unga sem aldna.
Boðið verður upp á andlitsmáln-
ingu og björgunarsveitin Ársæll
setur upp línubrú.
Langsokkur skipstjóri og Svabbi
sjómaður skemmta börnum á sviði
Grandagarðs.
Furðufiskasýning: Ótrúlegustu
og furðulegustu dýr sjávar verða til
sýningar í Grandagarði.
Bryggjuveiði: Efnt verður til
bryggjuveiði krakka á Verbúðar-
bryggju. Krakkarnir eru hvattir til
að koma með sínar eigin stangir ef
möguleiki er á. Verðlaun í boði fyr-
ir stærstu fiskana.
Sirkus Íslands og Latibær mæta á
sviðið í Grandagarði og skemmta
allri fjölskyldunni.
Tónlist
Á útisviði á Grandagarði troða ýms-
ir tónlistarmenn upp. Það verður
harmonikkuhádegi í Hörpunni
og tríóið Harmóníur kemur fram í
sama húsi. Sjómannalögin duna og
íslensk dægurlög við höfnina.
Nánari upplýsingar og dagskrá má nálgast á hatidhafsins.is
30 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
Gaman Ferðir fljúga með WOW air / www.gaman.is / gaman@gaman.is
Gaman Ferðir bjóða upp á tónleikaferðir við allra
hæfi. Kíktu á gaman.is og skoðaðu úrvalið.
GAMAN
Á TÓN-
LEIKUM!
BEYONCE
London 1-3 júlí
149.900 kr.
Verð á mann miðað við 2 í herbergi
RIHANNA
London 24-26 júní
119.900 kr.
Verð á mann miðað við 2 í herbergi
LIONEL RICHIE
London 1-3 júlí
129.900 kr.
Verð á mann miðað við 2 í herbergi
Frá
Frá
Frá