Fréttatíminn - 04.06.2016, Síða 38
Karlotta Laufey keyrir á nýju
mótorhjóli í sveitina þar sem
hún starfar aðra hverja viku.
Hina vikuna nýtur hún lífs-
ins í miðbænum og treður
upp sem gítarleikari í spand-
exgalla. Hún er heimilislaus
í augnablikinu en tekur
lífinu létt og flúrar sjálfa sig
viðbótum í tattúsafnið.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
svanhildur@frettatiminn.is
„Ég var að klára að tattúera sjálfa
mig rétt í þessu. Þess vegna er ég
svona sein,“ útskýrir Karlotta Lauf-
ey Halldórsdóttir sem er oftast köll-
uð Lotta. „Ég er að prófa mig áfram
í að teikna og flúra. Síðustu daga
hefur setið í mér sú hugmynd að fá
mér gamla köttinn minn á lærið. Ég
lét að því verða áður en ég held aft-
ur upp í sveit.“
Lotta starfar aðra hverja viku á
veitingastað á sveitabæ undir Eyja-
fjöllum. Hina vikuna rúllar hún í
bæinn á mótorhjólinu sínu og nýt-
ur þess að vera í fríi. „Ég elska að
eiga þessa tvo ólíka heima, sveitina
og miðbæinn. Aðra vikuna er ég
með túperað hár í spandexgalla að
troða upp í miðbænum, hina er ég
í sveitinni að kíkja á rollurnar í fjár-
húsinu.“ Pabbi Lottu kenndi henni á
gítar og spilaði hún lengi með rokk-
hljómsveitinni Vicky sem var ein
af fáu stúlknarokkhljómsveitunum
á þeim tíma. Hún var einnig með-
limur rokk- og metalhljómsveitinni
Dimmu í tvö ár.
Um þessar mundir er Lotta heim-
ilislaus og f lakkar milli íbúðina
þegar hún er í bænum. „Allt dótið
mitt er læst í gámi einhversstað-
ar. Ég kom heim eina vikuna og þá
hafði blöndunartækið inni á baði
sprungið og sjóðandi vatn lak út um
allt, þetta var eins og gufubað.“ Hún
er þó ekki að stressa sig á kringum-
stæðum, það er ekki í hennar eðli.
Í sumar ætlar Lotta að ferðast til
Frakklands og njóta lífsins og ekki
í kortunum að skjóta rótum. „Ég er
langt frá þeim pælingum að fjár-
festa í íbúð og eignast börn. Ég var
loksins að kaupa mér nýtt mótor-
hjól, mér hundleiðist að keyra bíl.“
„Aðra vikuna er ég
kannski í spandexgalla
að troða upp í
miðbænum, hina er ég
komin í sveitina að kíkja
á rollurnar í fjárhúsinu.“
Úr spandex-
gallanum í fjárhúsið
Lotta fjárfesti í
nýju og stærra
mótorhjóli til
þess að halda í
við hóp strák-
anna sem hún
hjólar með.
Mynd | Hari
Gígja á Brúðubílnum
Að mati Gígju Hólmgeirsdóttur sviðslistamanns er hún með besta
sumarstarfið: Að keyra Brúðubílinn. Á mánudaginn er fyrsta sýn-
ing Brúðubílsins í Hallargarðinum og segir Gígja eitt það mik-
ilvægasta við starfið að vera stundvís: „Brúðubíllinn má aldrei
byrja of seint.“ Auk þess þarf bílstjórinn að vera frábær í að bakka
bílnum og rata milli sýningarstaða. Á hverjum stað sér bílstjór-
inn um að setja upp leikmyndina, tengja rafmagn í bílinn og gera
klárt svo sýningin geti byrjað. „Þetta er algjört draumastarf og að
fá að hitta öll þessi börn á hverjum degi er galdur.“ Bílstjórinn er
líka reddari ef eitthvað kemur upp á. Brúðubíllinn er útileikhús og
tengjast vandamálin oft veðri: „Ég set plastpoka á hátalarana ef
rignir, eða hleyp til ef brúðurnar fjúka úr bílnum í roki.“
Óhefðbundin sumarstörf
Rúntað með brúður
og sýslað með kísil
Á sumrin skipta margir um starfssvið: Ljóðskáld selja pylsur, unglingar
reyta arfa og lögfræðinemar laga kaffi. Fréttatíminn tók púlsinn á
nokkrum óhefðbundnum sumarstörfum.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Gefur kísil með annari og gleði með hinni
Starf Sturlaugs Haraldssonar sem gleðigjafa í Bláa lóninu felst meðal
annars í að gefa gestum kísil, taka myndir af þeim ofan í lóninu og ein-
faldlega „mingla“. „Maður verður að þora að tala við fólk, geta gert grín
að sér og hafa gaman. Margir gleðigjafar eru í leiklist, leiklistarnemar eru
oft góðir að tjá sig. Ég er samt ekki leiklistarmenntaður, bara nógu hress.“
Sturlaugur sinnir starfinu mikið ofan í lóninu og segir gesti oft ekki átta
sig á að hann sé starfsmaður og haldi að hann hafi tekið upp hjá sjálfum
sér að útdeila kísil til þeirra. „Það eina erfiða er að halda uppi góðri orku á
löngum vöktum.“ Sturlaugur hefur eytt ófáum stundum ofan í lóninu, en
jarðsjórinn hefur löngum verið talinn góður fyrir húðina: „Ég er með full-
komna húð eftir þrjá mánuði í þessu starfi,“ segir Sturlaugur glettinn.
Miðlar sjálfsást til Garðbæinga
Myndlistarkonan Kristín Dóra ræddi við Fréttatímann í apríl um sjálfs-
ástarátak sitt sem staðið hefur yfir í tvö ár. Átakið fólst í að hætta að
rakka sjálfa sig niður og setja sjálfa sig í fyrsta sæti. Þetta sumarið
miðlar Kristín sjálfsástinni áfram: „Við erum þrjár vinkonur, sálfræði-
nemi, mannfræðinemi og ég, sem vinnum verkefni sem heitir Málglað-
ar á vegum Garðabæjar.“ Í sumar ætla þær því að miðla sjálfsást með
ýmsum leiðum, meðal annars með gerð hlaðvarps og þátttöku í ýms-
um viðburðum: „Það er margt sem við höfum lært um sjálfsást sem
við hefðum viljað vita fyrr.“ Því er markhópur Málglaðra yngra fólk og
vonast þær til að geta unnið með vinnuskólahópum. „Þetta er frá-
bært sumarstarf. Ég vil vera talsmaður sjálfsástar eins lengi og fólk vill
hlusta,“ segir Kristín.
Fylgjast má með hópnum í sumar á malgladar.tumblr.com
Mynd | Hari Brúðubílstjórinn Gígja segir sumarstarf sitt vera algjöran draum.
Kristín Dóra hefur verið í sjálfsástarátaki
í tvö ár, en miðlar nú ástinni áfram.
Sturlaugur mun eyða dögunum ofan í Bláa lóninu í sumar – og fá borgað.
„Við höfum verið að fljúga svo mikið í kross að við höfum varla hist í tvær vikur,“ segir
kærustuparið Jóhanna og Rebekka Rut, en þær vinna báðar sem flugfreyjur í sumar. Jó-
hanna er hjá WOW-air og Rebekka hjá Icelandair: „Ég í bleiku og hún í bláu,“ segir Jóhanna
brosandi. Því hafa báðar skilning á næturbrölti hinnar þegar þær vakna fjögur á morgn-
ana til að undirbúa sig fyrir morgunflug: „Við vöknum venjulega báðar og sú sem er ekki að
fara á vakt býr til hafragraut handa hinni á meðan hún gerir sig til, málar sig og setur upp
hárið. Svo skutlum við hvor annarri almennt í vinnuna, enda erum við á einum bíl,“ seg-
ir Rebekka Rut. Þennan morguninn eru þær hins vegar báðar í fríi, og hafa því tíma til að
njóta morgunsins saman með pönnukökum, drekaávexti og öllu tilheyrandi: „Við reynum
að vera alltaf með í það minnsta einn spennandi ávöxt við morgunverðarborðið,“ segir Jó-
hanna. Jóhann og Rebekka hafa verið saman í 7 ár, allt frá því þær voru saman í Versló, og
síðan hafa þær oft unnið saman, í flugfreyjustarfinu sem öðrum störfum. „Það gengur mjög
vel að vinna saman, því við erum með alveg sitt hvora eiginleika,“ segir Rebekka. Jóhanna
er lögfræðingur og Rebekka viðskiptafræðingur og stefna þær á að flytja á Íslandsbryggju í
Kaupmannahöfn í haust, þar sem Rebekka verður í mastersnámi í viðskiptafræði.
Morgunstundin
Önnur í bláu og hin í bleiku
Jóhanna og Rebekka Rut búa saman í Sjálandshverfinu í Garðabæ,
viðeigandi tenging við Danmörku þangað sem þær flytja í haust.
Mynd | Hari
38 | FRÉTTATÍMINN | Helgin 4. júní – 5. júní 2016
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
BARNA-
GLERAUGU
til 18 ára aldurs
frá 0 kr.
Miðast við endurgreiðslu frá
Sjónstöð Íslands.