Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 49
www.tskoli.is
Langar þig að læra að búa til tæknibrellur í þrívídd, sauma ík, búa til þína heimasíðu, forrita eða
júga, læra að logsjóða og búa til verðlaunagrip úr málmi, gera tilraunir með rafmagn, teikna og
mála andlit? Tækniskóli unga fólksins býður upp á ölbreytt námskeið 13. - 16. júní og
20. til 24. júní fyrir fólk á aldrinum 12 –16 ára. Skráning og upplýsingar á tskoli.is
Medalíur og rósir
Saumuð er einföld ík.
Tæknibrellur & 3D
Efni er tekið upp í Green Screen
Rafrásarföndur
Rafeindarásir búnar til, lóðning með lóðbolta og eira.
Fatasaumur
Heimasíðan þín
HTML, CSS og myndir.
Leitin að andlitum – myndlist
Framtíðarugmenn
Tækniskóli unga fólksins
tskoli.is/taekniskoli-unga-folksins | endurmenntun@tskoli.is | Sími 514 9602
Forritun - tungumál framtíðarinnar Ljósmyndanámskeið
3D hönnun í Inventor
Grunnatriði í forritun, skemmtileg verkefni.
Tækniteiknun, hanna brú og setja hana saman.
Áhersla lögð á opinn hug og ölbreytt vinnubrögð.
Kynnast ugtengdum störfum, júga sjálf.
Ljósmyndun og myndvinnsla fyrir byrjendur.
Stálrós, kertastjaki og medalía smíðuð.
og unnið í After Eects forritinu.
Kassabílar og rallý
Sumarör með myndavél
Lögð er áhersla á einfaldleika, léttleika og jákvæðni.
Smíða sinn eigin kassabíl.
Aldrei hafa fleiri þátt-takendur eða lið skráð sig leiks í hjól-reiðakeppnina WOW Cyclothon sem fram
fer dagana 14. til 17. júní næstkom-
andi. Rétt tæplega 1200 þátttak-
endur í 123 liðum hafa skráð sig til
leiks en ræst verður frá Egilshöll
og endað í Hafnarfirði.
Einn af þátttakendunum í ár
er bandaríski hjólreiðakappinn
George Hincapie. Sá er enginn au-
kvisi en hann hefur meðal annars
unnið það sér til frægðar að hafa
klárað erfiðustu hjólreiðakeppni
heims, Frakklandshjólreiðarnar,
alls 17 sinnum og verið liðsfélagi
þriggja sigurvegara í keppninni,
Spánverjans Alberto Contador,
Ástralans Cadel Evans og frægasta
hjólreiðakappa sögunnar, Lance
Armstrong, en Hincapie hjólaði
sjö sinnum með honum til sig-
urs – sigrar sem síðar voru teknir
af honum vegna frægasta lyfja-
hneykslis íþróttasögunnar.
Hincapie sjálfur viðurkenndi
sjálfur árið 2012 að hafa neytt
ólöglegra lyfja á árunum 2004
til 2006 og sagði þá í yfirlýsingu
að hann hefði metið það sem
svo að allir notuðu ólögleg lyf og
það væri eini möguleikinn til að
ná í fremstu röð. Hann sæi hins
vegar mikið eftir þeirri ákvörðun.
Hincapie var dæmdur í sex
mánaða bann sama ár og hætti
sem atvinnumaður. Í samtali við
amk... vill hann lítið tjá sig um sitt
eigið dópmál – segist hafa skrifað
bók um það, langt sé síðan það
kom upp, hann hafi orðið vitni að
miklum breytingum og telur sjálf-
ur að hann eigi mikinn þátt í þeim
breytingum.
Hincapie segir að Ísland hafi
lengi verið á lista yfir lönd sem
hann hafi langað til að heim-
sækja og þegar tækifærið gafst
gat hann ekki sleppt því. „Lítur
út fyrir að vera virkilega fallegt
land og er nokkur leið betri til að
skoða það en á hjóli,“ segir hann
og bætir við að hjólreiðar séu svo
sérstök íþrótt. „Ein erfiðasta en
jafnframt fallegasta íþrótt verald-
ar. Það besta við hana er að allir
geta stundað hana. Hraðinn er
mismunandi en sársaukinn og feg-
urðin er sú sama.“
Ekki er hægt að sleppa Hincapie
án þess að minnast á Lance Arm-
strong. „Auðvitað vissi ég að hann
neytti ólöglegra lyfja og hans mál
hafði áhrif á marga á mismunandi
hátt. En hann var óttalaus keppn-
ismaður sem var tilbúinn til að
gera allt til að vinna.“
George Hincapie Hann telur mesta afrek sitt hafa verið að hafa klárað 17 Frakklandshjólreiðar, fengið að skoða heiminn á hjóli og unnið
nokkra sigra í keppnum. Mynd | Nordic Photos/Getty Images
Ísland var á listanum yfir lönd
sem mig langaði til heimsækja
George Hincapie, sem hefur keppt 17 sinnum í Frakklandshjólreiðunum og unnið liðakeppnina
með þremur ólíkum meisturum, keppir í WOW Cyclothon sem hefst 14. júní næstkomandi
Súrsætir sigrar Hincapie hjólaði með
Lance Armstrong í öllum hans sigrum í
Frakklandshjólreiðunum – sigrum sem voru
teknir af honum vegna lyfjahneykslis.
Hjólakraftur styrktur í ár
Í ár renna þeir fjármunir sem safn-
ast í áheitasöfnun WOW Cyclot-
hon til Hjólakrafts en samtökin
hafa það að markmiði að virkja
börn og unglinga sem eiga í bar-
áttu við lífsstílssjúkdóma og hafa
ekki fundið sig í hefðbundnum
íþróttagreinum. Hjólakraftur hef-
ur vaxið og dafnað frá stofnun
samtakanna sem sést líklega best
á því að árið 2014 tók eitt Hjóla-
kraftslið þátt í WOW Cyclothon
en í ár verða þau 16 og hjóla nú í
sínum eigin Hjólakraftsflokki inn-
an keppninnar.
…heilsa9 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016