Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 56

Fréttatíminn - 04.06.2016, Page 56
…ferðir kynningar 16 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016 Unnið í samstarfi við Urðartind Við bjóðum upp á góða gistingu í Norðurfirði á Ströndum, bæði er hægt að leigja herbergi og smáhýsi hjá okkur og öll okkar gisting er með sér baðherbergj- um,“ segir Arinbjörn Bernharðs- son, eigandi gistiheimilisins Urðartinds. Arinbjörn segir einstaka nátt- úrufegurð umkringja gistiheim- ilið. „Norðurfjörður er dæmi um stað sem enn hefur ekki verið troðinn undir af ferðamönnum, hérna er ágætis streymi af túrist- um en enginn örtröð. Kyrrðin er mikil hérna og náttúran engu lík. Í Norðurfirði er mikið af gönguleiðum, þú þarft ekki að keyra neitt heldur gengur bara út um dyrnar á gistiheimilinu og þú ert komin út í náttúruna að njóta.“ Norðurfjörður er miðpunktur ferðaþjónustu í Árneshreppi á Ströndum. „Hérna er sundlaug, veitingahús, verslun og siglingar á Hornstrandir. Svo iðar allt af lífi við höfnina þar sem eru 30 smábátar á strandveiðum á sumrin,“ segir Arinbjörn. Unnið í samstarfi við Vesturbyggð Sjómennskan er Vestfirðing-um í blóð borin og því er sjómannadagurinn hvert ár mikil hátíð. Í raun er varla hægt að tala um sjómannadag á Patreksfirði heldur væri nær að tala um sjómannaviku því hátíðar- höldin hófust á fimmtudag og lýkur á morgun, sunnudag. Um er ræða þétta dagskrá frá morgni til miðnættis alla dagana. Í dag, laugardag, verða tónleikar með karlakórnum Vestra í Patreks- fjarðarkirkju, boðið verður upp á módelsýningu, hátíðarsiglingu og kvöldinu er svo lokað með balli í félagsheimilinu undir taktföstum tónum Matta Matt, Stebba Jakobs, Stefaníu Svavars og stórhljómsveit. Á morgun, sunnudag, heldur veislan áfram með sjómanna- messu klukkan 11 þar sem sjómenn eru heiðraðir. Að athöfn lokinni verður skrúðganga frá kirkjunni að minnisvarða látinna sjómanna þar sem blóm verða lögð við minnis- varðann. Árlegur kappróður fer fram í höfninni og kvöldinu lýkur svo með hátíðarkvöldverði á Foss Hótel. Frábær skemmtun sem enginn er svikinn af. Unnið í samstarfi við gistihúsið í Rauðsdal Gistihúsið í Rauðsdal á Barðaströnd hafa hjónin Nanna Áslaug Jóns-dóttir og Gísli Ásbjörn Gíslason rekið í 20 ár. „Við byrj- uðum smátt en svo hefur þetta sífellt verið að vinda upp á sig. Nú rekum við gistihúsið með dyggri aðstoð barnanna okkar og búum hérna með bæði kindur og kýr,“ segir Nanna Áslaug en gistihús- ið í Rauðsdal er opið allt árið um kring. „Við bjóðum upp á bæði svefn- pokapláss og uppábúin rúm. Gistingin er í sérhúsi með 12 her- bergjum og aðgangur er að baði og eldunaraðstöðu. Bæði er hægt að gista í tveggja manna her- bergjum og svo fjögurra manna fjölskylduherbergjum. Morgun- matur er í boði fyrir þá sem það kjósa yfir sumartímann.“ Gistihúsið er fimm kílómetr- um vestan við Brjánslæk þar sem ferjan Baldur kemur að, 50 kílómetrar eru þaðan til Pat- reksfjarðar og 85 kílómetrar að Látrabjargi. „Það er mjög hentugt fyrir farþega Baldurs sem ætla að ferðast um sunnanverða Vestfirði að gista tvær nætur hjá okkur, til dæmis ef þeir hyggja á dagsferðir á Rauðasand eða Látrabjarg, við erum mjög vel staðsett fyrir slíkar ferðir,“ segir Nanna. Tvær sundlaugar eru í ná- grenni við gistihúsið í Rauðsdal og tvær heitar náttúrulaugar. „Í Flókalundi, sem er í 12 kílómetra fjarlægð, er sundlaug og heitur náttúrupottur. Svo er einnig sund- laug og heitur náttúrupottur á Krossholtum, sem er 6 kílómetr- um frá okkur. Góður matsölu- staður er einnig í Flókalundi og gott að geta vísað gestum mínum þangað í mat.“ Skemmtileg sandfjara er fyrir neðan gistiheimilið. „Nánast allir sem gista hjá okkur fara í góða gönguferð um fjöruna. Þegar vel viðrar á sumrin hafa ferða- menn jafnvel gjarnan fengið sér sundsprett í sjónum. Reiðskörð eru líka hér í næsta nágrenni og í góðu göngufæri eftir fjörunni. Gönguleiðir eru hérna í margar áttir og einmitt nýbúið að gefa út gönguleiðabók um þetta svæði hérna á Barðaströnd,“ segir Nanna. Gæðagisting við ysta haf Mikil kyrrð og náttúran engu lík Patreksfjörður undirlagður á sjómannadaginn Gisting í friðsælu og fallegu umhverfi á Barðaströnd Góð gisting fyrir fólk sem hyggur á ferðalög um sunnanverða Vestfirði Gistiheimilið er í friðsælu og fallegu umhverfi. Gistingin er í sérhúsi með 12 herbergjum. Róa, róa Keppt verður kappróðri í höfninni á sunnudaginn. Einstök náttúrufegurð er í Norðurfirði á Ströndum.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.