Fréttatíminn - 04.06.2016, Qupperneq 61
„Ég er mjög hrifin af línulegri dagskrá.
Ég horfi mikið á RÚV og sé þannig alls-
konar hluti sem ég vissi ekki að ég hefði
áhuga á. Það er það fallega við „venju-
legt“ sjónvarp. Mér finnst mjög gaman
að kíkja aðeins á þýsku stöðvarnar og
halda þýskunni minni við.
Uppáhaldssjónvarpsþættirnir mínir
eru Survivor og ég hafði mjög gaman af
The Good Wife. Annars virðist ég svo-
lítið hafa fest bara í árinu 2003, The OC
eru ennþá mjög ofarlega á lista hjá mér.
Mér finnst vandræðalega gaman að
horfa á My 600 lbs life, en í hverjum
þætti er akfeitu fólki fylgt eftir í ár eftir
að það fer í hjáveituaðgerð. Það er svo
gaman að sjá fólk takast á við vanda-
málin sín, sem eru oftast allt önnur en
ofþyngd.
Helst vil ég horfa á bíómyndir sem ég
get speglað sjálfa mig í og eru svolítið
hægar og þöglar. „Brynhildur vill bara
horfa á myndir með skrýtnum skrúfum
eins og hún sjálf er,“ segir kærastinn
minn.
Ég þoli eiginlega ekki Netflix. Maður
gerir ekkert nema fletta í gegnum enda-
laust af efni og enda á að slökkva á sjón-
varpinu og fara bara að lesa. Kannski er
það öllum fyrir bestu.“
Sófakartaflan
Brynhildur Bolladóttir,
lögfræðingur og verkefnastjóri
Föst í árinu 2003
Hrifin af línulegri dagskrá Brynhildur horfir
mikið á RÚV og sér þannig allskonar hluti sem
hún vissi ekki að hún hefði áhuga á.
Mynd | Hari
Sykursæt ástarsaga
Netflix Maid in Manhattan.
Sykursæt mynd með Jennifer
Lopez og Ralph Fiennes í aðalhlut-
verkum. Marisa Ventrua er einstæð
móðir og vinnur sem þerna á flottu
hóteli á Manhattan. Einn daginn
verður myndarlegur þingmaður á
vegi hennar á hótelinu og Marisa
villir á sér heimildir. Þingmaðurinn
er ekki lengi að falla fyrir Marisu en
hann veit í raun enginn deili á
henni og hefur ekki hugmynd um
að hún sé þerna á hótelinu þar sem
hann dvelur sem gestur.
…sjónvarp21 | amk… LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2016
Íslenskt bíósumar
hefst á RÚV
RÚV Brim sunnudag klukkan
22.15. Íslensk bíómynd frá árinu
2010 eftir Árna Ólaf Ásgeirsson.
Ung kona ræður sig sem háseta á
bát þar sem fyrir er samheldin
áhöfn fullskipuð karlmönnum. Hún
kemst svo að því að plássið sem
hún fékk losnaði vegna voveiflegra
atburða og nærvera hennar fer illa
í þá sem eru á skipinu fyrir.
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson,
Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur
Egilsson og Víkingur Kristjánsson.
Magnaður danskur
spennutryllir
Netflix A Hijacking. Rafmögn-
uð spennumynd sem fjallar um
danska flutningaskipið MV Rosen
sem sómalskir sjóræningjar ræna á
Indlandshafi. Skelfilegar aðstæður
taka við þar sem skipverjar berjast
við að halda lífi á meðan eigandi
skipsins reynir að ná samkomulagi
við sjóræningjana sem krefjast
þess að fá milljónir dollara í
lausnargjald. Aðalhlutverk: Søren
Malling, Johan Philip Asbæk, Dar
Salim, Amalie Ihle Alstrup, Linda
Laursen, Hassan Abdullahi Mussa
og Abdullah Jamal Mohamed.
Leituðu uppi
sæðisgjafann
Netflix The Kids Are All Right.
Dramatísk og skemmtileg mynd
með frábæru leikkonunum Annette
Bening og Julianne Moore í
aðalhlutverkum. Nic og Jules eiga
tvö börn með hjálp sæðisgjafa.
Börnin, sem forvitin eru um
uppruna sinn, ákveða einn daginn
að finna sæðisgjafann og mæta
með hann heim til mæðra sinna,
öllum að óvörum. Atburðarásin
þegar sæðisgjafinn er kominn inn í
myndina verður nokkuð skrautleg.
Vönduð mynd sem tilnefnd var til
fernra Óskarsverðlauna.