Fréttatíminn - 29.07.2016, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 29. júlí 2016
Jón Atli Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
La Sagrada Familia kirkjan í
Barcelóna hefur verið í byggingu í
ein 147 ár og áætlað er að byggingar-
framkvæmdum við hana ljúki að
fullu á fyrsta þriðjungi þessarar
aldar.
La Sagrada Familia þykir mik-
ilfengleg bygging frá sjónarmiði
arkitektúrs. Bygging hennar hef-
ur verið samfelldur 147 ára gjörn-
ingur. Að vissu leyti óskar maður
þess að hann endi aldrei. Það er
líkt og byggingarframkvæmdirnar,
sveittir verkamennirnir, steypuryk-
ið og stillansarnir séu trúariðkun í
sjálfu sér; tærasta birtingarmynd
tilbeiðslunnar. Ör ferðamanna-
straumur til Barcelona á hverju ári
er ekki síst þessu verki í vinnslu að
þakka. La Sagrada Familia er vin-
sæll áningarstaður ferðamanna.
Í framtíðinni á fólk sjálfsagt eftir
að vekja máls á því að það hafi nú
heimsótt Barcelóna á meðan kirkj-
an var enn ókláruð.
Flugvöllur geðþekka kanslarans
Forsvarsmenn byggingarfram-
kvæmda á Berlin Brandenburg
Willy Brandt flugvellinum, eins og
hann heitir fullu nafni, horfa sjálf-
sagt öfundaraugum til kollega sinna
í Barcelóna. Því þeir hafa held-
ur betur þurft að ganga í gegnum
hreinsunareldinn við byggingu á
sínu himnamusteri.
Alþjóðaflugvöllurinn sem heitir
í höfuðið á kanslaranum geðþekka
og á að þjóna Berlín og nágrenni er
ætlað að þjónusta 34 milljónir far-
þega á ári hverju sem myndi gera
hann að þriðja stærsta f lugvelli
Þýskalands. Bara ef það tækist nú
að klára hann.
Í fyrstu átti flugvöllurinn að leysa
af Tegel og Schönefeld alþjóðaflug-
vellina í Berlín. En það er ljóst að
þegar og ef framkvæmdum við
flugvöllinn lýkur, að hann gerir
það ekki. Fjölgun ferðamanna sem
koma til Berlínar er of mikil til að
þær spár rætist.
Flugvöllur kanslarans geðþekka
átti fyrst að opna árið 2010. En lé-
legt skipulag við byggingu hans,
fúsk og spilling gerðu þau áform að
engu. Árið 2014 var því lýst yfir að
flugvöllurinn skyldi opna árið 2017
en eftir opinbera rannsókn á vegum
þingsins í Brandenburg líta menn
nú vongóðir til ársins 2019 eftir því
að geta afhent brottfararspjöldin og
selt rakspíra, Toblerone og gúmmí-
bangsa á flugvallarprísum.
Öll ljós kveikt en enginn heima
Heildarkostnaður við byggingu
f lugvallarins kemur til með að
verða tæpir sjö milljarðar evra
þegar upp er staðið. Það er langt
fram úr þeim kostnaðaráætlunum
sem lagðar voru fram í upphafi og
hefur þetta valdið miklum deilum
innan Evrópusambandsins sem ber
mikinn hluta kostnaðarins.
Þjóðverjar súpa hveljur yfir
tölunum en það er kannski einna
helst spillingarangi framkvæmd-
anna sem kemur á óvart og veld-
ur skattgreiðendum talsverðri
gremju. Spilling er yfirleitt ekki
mikið vandamál í þýsku hagkerfi
og kemur landið yfirleitt jákvætt út
úr könnunum varðandi hana. Enda
á spillingin rætur sínar að rekja til
Rotterdam þar sem móðurfyrirtæki
Imtech, fyrirtæki sem heitir Royal
Imtech, er með höfuðstöðvar sínar.
Imtech er með mikla starfsemi í
Þýskalandi og meðal bygginga sem
Imtech hefur komið að fyrir utan
flugvölling má nefna höfuðstöðvar
BND sem er utanríkisleyniþjónusta
Þýskalands og Óperuhúsið í Köln.
Imtech bar meðal annars ábyrgð
á uppsetningu brunavarnakerfis á
flugvellinum sem virkaði ekki auk
20 þúsund annarra atriða sem telja
Síhrynjandi nýbyggingar
Martraðarkennd byggingarsaga Willy Brandt flugvallarins í Berlín.
allt frá grófri vanrækslu til fjárkúg-
unar og mútustarfsemi.
Það sem gerði menn rjóða í kinn-
um af skömm var sú staðreynd að
sökum mistaka við rafkerfi flug-
vallarins var ekki hægt að slökkva
ljós í flugstöðvarbyggingunum og
loguðu þau svo dögum skipti áður
en brugðið var á það ráð að klippa á
vírana. Á listanum langa er líka að
finna tilraun til manndráps þar sem
reynt var að eitra fyrir starfsmanni
Imtech sem ljóstraði upp um glæpi
fyrirtækisins. Starfsmaðurinn varð
alvarlega veikur eftir að hafa drukk-
ið kaffibolla á byggingarsvæðinu og
kennir fyrirtækinu um að hafa að
eitrað kaffið fyrir sér. Það mál er nú
rekið fyrir þýskum dómstólum.
Glæpir og gegnsæi
Dómstólar í Hollandi sáu sér
vænstan kost í því að skipta fyrirtæk-
inu upp enda þótti ljóst að rekstur
þess líktist meira pýramídasvindli
en alþjóðlegu verktakafyrirtæki.
Skandallinn teygir anga sína víða
um þýskt efnahagslíf og alla leið inn
á æðstu staði stjórnmálanna.
Klaus Wowereit borgarstjóri
Berlínar til 13 ára neyddist til að
segja af sér í kjölfar hneykslisins
sem bygging flugvallarins er orðin.
Gagnrýni á Klaus Wowereit snerist
að mestu um hversu duglega hann
þótti verja kauðslegar og glæpsam-
legar framkvæmdir við flugvöllinn.
Núverandi borgarstjóri Berlínar,
Michael Müller, lýsti því yfir þegar
hann tók við embætti að meira
gegnsæi myndi ríkja varðandi flug-
völlinn sem kostar nú þýska skatt-
greiðendur 20 milljónir evra á dag.
Það er sami daglegi rekstarkostnað-
ur og er við að reka Tegel flugvöll-
inn í Berlín og þó er hann í fullum
rekstri. Með tilheyrandi rakspíra,
Toblerone og gúmmíbangsasölu.
Einn af kostnaðarliðum nýja
flugvallarins er vegna viðhalds og
þrifa. Þrátt fyrir að hann sé lok-
aður og engin starfsemi í gangi þá
sjá 50 manns um að halda honum
hreinum. Fyrir þremur árum síðan
flissuðu ráðamenn að ráðlegging-
um um að Tegel flugvellinum skyldi
ekki lokað þegar sá nýi yrði opnað-
ur – það væri hægt að nota Tegel
f lugvöllinn sem nokkurs konar
öryggisventil fyrir umfram flug-
umferð. Á þeim tíma stóð metnað-
ur til þess að opna nokkurs konar
tæknigarð sprotafyrirtækja í tölvu-
geiranum í Berlín á grunni þeirra
samgönguumbóta sem nýi völlur-
inn átti að fela í sér. Evrópskan kís-
ildal í samkeppni við Bandaríkin.
Það er skemmst frá því að segja að
sú hugmynd endaði ofan í skúffu.
Undir áhrifum
Það skyldi þó sýna aðgát þegar talað
er um flugvöllinn í anda þess gegn-
sæis sem núverandi borgarstjóri
Berlínar taldi svo mikilvægt. Daniel
Abbou, fjölmiðlafulltrúi flugvallar-
ins, neyddist til að taka pokann sinn
fyrr á árinu þegar hann tjáði fjöl-
miðlum að flugvallarframkvæmd-
in væri svínarí og að hann sæi ekki
fyrir sér að völlurinn myndi nokkru
sinni verða opnaður.
Karsten Mühlenfeld stjórnarfor-
maður flugvallarins tilkynnti í apr-
íl síðastliðnum að framkvæmdum
lyki í lok árs 2017 og þá væri hægt
að opna. Það stangast á við yfirlýs-
ingar fjölmiðlafulltrúans brottrekna
sem hefur lýst því yfir að enginn geti
gefið nákvæma tímasetningu á opn-
un vallarins án þess að vera undir
áhrifum fíkniefna. Stjórnmálamenn
á vinstri vængnum í Þýskalandi hafa
hrósað fjölmiðlafulltrúanum fyrir
hreinskilnina en þykjast líka skynja
það sem svo að hann sé dauðslif-
andi feginn að vera laus undan
þeirri kvöð að svara opinberlega fyr-
ir þessa mestu hörmung í gervallri
þýskri byggingarsögu.
Það væri fróðlegt að vita hvað
kanslaranum geðþekka, sem þetta
mannvirki heitir jú í höfuðið á,
þætti um þetta basl, manni sem
stóð vaktina í Vestur Berlín á þeim
umbrotatímum þegar heimsbyggð-
in stóð á barmi kjarnorkustyrjald-
ar í kalda stríðinu. Kannski er það
bara viðeigandi að völlurinn skuli
bera nafn hans.
Alþjóðaflugvöllurinn sem
heitir í höfuðið á kanslar-
anum geðþekka og á að
þjóna Berlín og nágrenni
er ætlað að þjónusta 34
milljónir farþega á ári
hverju sem myndi gera
hann að þriðja stærsta
flugvelli Þýskalands. Bara
ef það tækist nú að klára
hann.
Myndir | Getty
Heildarkostnaður við byggingu flugvallarins kemur til með að verða tæpir sjö milljarðar evra þegar upp er staðið.