Fréttatíminn - 30.09.2016, Qupperneq 34
34 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Æfði í tvo tíma á
dag í hálft ár til að
verða Björn Borg
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Konan sem stendur hægra megin við Sverri Guðna-son leikara við afgreiðslu-borðið á kaffihúsinu í
Stokkhólmi kannast augljóslega
við hann. Hún horfir þannig á
hann, eins og hún eigi jafnvel að
heilsa honum; lítur á hann aftur
og aftur, horfir niður á borðið, og
verður pínulítið vandræðaleg á
meðan þau bíða saman eftir kaffi-
nu sínu.
Sverrir hefur á síðustu árum
orðið landsþekktur leikari í Sví-
þjóð. Hann hefur hann leikið í
myndum eins og Monicu Z, Flug-
parken og Gentlemen sem fengið
hafa góðar viðtökur. Fyrir hlut-
verk sín í Monicu Z og Flugpar-
ken fékk Sverrir sænsku kvik-
myndaverðlaunin Guldbagge og
var einnig tilnefndur fyrir hlut-
verk sitt í Gentlemen. Þá hefur
hann einnig leikið í Wallander-
þáttunum.
Fyrir nokkrum vikum var
frumsýnd í Svíþjóð myndin Den
allvarssama leken eftir skáldsögu
sænska rithöfundarins Hjalmars
Söderbergs, sem Sverrir leikur að-
alhlutverkið í. Steinsnar frá kaffi-
húsinu, utan á bíóhúsi við götuna
Sveavägen í miðborg Stokkhólms,
hanga auglýsingaspjöld um ást-
armyndina með ljósmyndum
af Sverri í faðmlögum við mót-
leikkonu sína. Við fleygjum okkur
niður við borð, lepjum kaffi og
Sverrir segir Fréttatímanum frá
störfum sínum og lífi.
Túlkar þjóðhetju
Sverrir leikur tennishetjuna Björn
Borg í mynd sem verið er að taka
upp um einvígi hans og Banda-
ríkjamannsins John McEnroes í
byrjun níunda áratugarins. Tök-
ur hafa staðið yfir á myndinni í
Tékklandi, Gautaborg og Monakó
og lýkur þeim brátt. Leikstjóri
myndarinnar er Daninn Jan-
us Metz og bandaríski leikarinn
og gjörningalistamaðurinn Shia
LaBoeuf leikur John McEnroe.
„Ég spilaði tennis í tvo tíma á dag
í hálft ár. Ég gerði í raun ekkert
annað þennan tíma, ég var bara
að æfa og borða vel því þegar mað-
ur spilar svona mikið tennis þá
fara kílóin af manni hratt. Ég er
auðvitað ekki orðinn jafn góður og
Björn Borg en ég er sæmilegur. Ég
ætla að halda áfram að spila eftir
myndina,“ segir Sverrir og undir-
strikar að hann hlakkar til að spila
með nútímalegan tennisspaða en
ekki litla, þunga, gamaldags tré-
spaðann sem hann hefur notað
í myndinni.
Borg talinn stærri en Zlatan
Til að undirstrika hversu stórt
nafn Björn Borg er í Svíþjóð þá
valdi sænska blaðið Dagens Nyhet-
er hann sem besta íþróttamann í
sögu Svíþjóðar í árslok 2014. Borg
var þar á lista á undan fótbolta-
manninum Zlatan Ibrahimovic
sem var ekki sáttur við þá niður-
stöðu og sagði að hann teldi að
hann ætti að vera í fimm efstu
sætunum yfir bestu íþróttamenn
Svíþjóðar frá upphafi. Sverrir er
því að túlka sænska þjóðhetju sem
hefur meðal annars hefur stofnað
sitt eigið fatamerki eftir að hann
lagði tennisspaðann á hilluna.
Þó Sverrir hafi æft sig mikið í tenn-
is út af Borg-myndinni – mótleik-
ari hans, Stellan Skårsgård, hefur
hælt honum í viðtali við Dagens
Nyheter fyrir hversu fljótt hann
komst upp á lagið með íþróttina –
þá þarf stundum að nota atvinnu-
menn við tökurnar á vissum sen-
um í myndinni. Ýmsum brögðum
er því beitt til að gera einvígi Borgs
og McEnroes sem trúverðugast.
Vildi ekki gegna herskyldu
Sverrir hefur eingöngu leikið í
Svíþjóð á liðnum árum enda hefur
hann búið í landinu frá því hann
var tólf ára. Sænska er því eins
og hans annað móðurmál. „Ég
fæddist í Lundi en fluttist aftur
til Íslands þegar ég þriggja ára.
Það tók mig svona mánuð að læra
sænsku þegar ég flutti hingað
aftur þegar ég var tólf. Ég var svo
fljótur að læra málið þannig að
það heyrðist ekki á mér að ég væri
ekki Svíi. En ég var kannski ekki
með orðaforðann á hreinu þannig
ég vissi ekki nöfnin á hlutunum.“
Sverrir var í Svíþjóð sem barn,
líkt og svo margir Íslendingar
hafa gert í gegnum árin, af því að
foreldrar hans, Bryndís Sverr-
isdóttir og Guðni Jóhannesson,
voru þar við nám og störf en hann
hefur ílendst.
Sverrir er gjarnan kallaður Svíi
með íslenskar rætur þegar talað
er um hann í sænskum fjölmiðl-
um. Hann er hins vegar ekki með
sænskan ríkisborgararétt, bara
íslenskan. „Ég er íslenskur ríkis-
borgari en ekki sænskur. Ég veit
ekki af hverju ég hef ekki sótt um
sænskan ríkisborgararétt; ég hef
kannski bara ekki séð tilganginn
með því. Þegar ég var yngri þá var
ennþá herskylda [hún var afnumin
árið 2010] og ég hugsaði að ég vildi
ekki vera sænskur ríkisborgari af
því ég vildi ekki ganga í herinn. Ég
er kannski að spá í fá mér sænsk-
an ríkisborgararétt núna til að
geta haldið sænsk þemapartí og
boðið upp á síld og spilað sænska
þjóðlagatónlist.“ Síðastliðin 25 ár
hefur Sverrir bara heimsótt Ísland
sem gestur, mest á sumrin og til
að vinna í unglingavinnunni þegar
hann var yngri.
Hann segist skilja að Svíar eigni
sér hann þar sem hann hafi bara
unnið í Svíþjóð. „En ég byrjaði að
leika á Íslandi sem barn en ég hef
ekkert leikið þar síðan. Ég hef oft
fengið boð um hlutverk í mynd-
um á Íslandi en ég hef ekki náð að
púsla því saman við þau verkefni
sem ég er með hér. En mig langar
að leika á Íslandi.“
Saga af ómögulegri ást
Myndirnar af faðmlaginu utan á
bíóhúsinu eru af karakter Sverris,
Arvid Stjärnblom, og persónunni
Lydiu Stille, sem leikin er af Kar-
in Franz Körlöf, úr Den allvars-
samma leken. Sverrir segir að
myndin sé „ómöguleg ástarsaga“
þeirra Arvids og Lydiu. Lydia er
gift þegar hún hefur ástarsam-
band við blaðamanninn Arvid.
Hún vill hins vegar ekki yfirgefa
manninn sinn og Arvid kvænist
konu sem hann elskar ekki. Þau
halda hins vegar áfram að hittast
þrátt fyrir þetta. „Þemað í bókinni
er eiginlega: „Maður velur ekki“.
Arvid lendir einhvern veginn í svo
mörgu. Hann lendir í því að verða
blaðamaður og byrja að skrifa
gagnrýni um óperur og hann lend-
ir í því að kvænast konu sem hann
elskar ekki. Það á eiginlega við um
alla í bókinni og myndinni; fólk
velur ekki til fulls hvaða leið það
fer í lífinu. Maður getur pirrað sig
mjög mikið á þessum karakter.“
Bæði Arvid og Lydia eignast
svo fleiri elskendur og eitt leiðir
af öðru.
Femínískari sýn
Sverrir segir að myndin sé ólík
skáldsögunni að því leytinu til að
Arvid er sögumaðurinn í bók-
inni og að frásögnin eigi sér stað
í gegnum hann. Í myndinni ákvað
leikstjórinn, Pernilla August,
hins vegar að segja söguna með
öðrum hætti til að reyna að skilja
aðrar sögupersónur betur. „Þegar
maður sér myndina þá getur
maður fundið til sam kenndar
með öllum persónunum. Þetta
Þykir sláandi líkur Borg Sverrir
Guðnason þykir vera sláandi líkur Björn
Borg í myndinni en auk þess að verja
miklum tíma í að æfa sig í tennis hefur
Sverrir reynt að líkja eftir svipbrigðum og
líkamsbeitingu tennishetjunnar.
„Ég er auðvitað
ekki orðinn
jafn góður og
Björn Borg en
ég er sæmilegur.“
Íslenski leikarinn Sverrir Guðnason
hefur á síðustu árum orðið landsþekktur
í Svíþjóð. Hann hefur hlotið sænsku
kvikmyndaverðlaunin tvisvar og leikur
tenniskappann Björn Borg í nýrri mynd.
Í framtíðinni vill hann gjarnan leika í
íslenskum kvikmyndum.
Einn sá besti Björn Borg þykir vera einn besti tennisleikari sögunnar. Sverrir Guðnason sést hér sem Borg ásamt Tuvu Novotny sem
leikur eiginkonu tenniskappans, Mariu Simionescu, í myndinni.
VILT ÞÚ VINNA
GLÆSILEGT OFYR GRILL?
Grillin frá OFYR búa yfir einstakri hönnun og eldunar
eiginleikum. Veglegur grillflöturinn gerir grillaranum kleift
að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Grillið er stílhreint og einfalt sem gerir það að verkum að
klassískar línur grillsins vinna í sátt við umhverfið.
Allir viðskiptavinir sem versla í verslun
KRUMMA fram að jólum eiga kost á því
að fara í pott og vinna glæsilegt
grill frá OFYR að verðmæti kr,- 275.000
Dregið verður 23. desember