Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 36

Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 36
36 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016 gat maður ekki í bókinni af því bókin var skrifuð þannig að mað- ur var í hausnum á honum allan tímann og gat því bara skilið það sem hann gerði. Pernilla gerir myndina þannig að maður er með öllum karakterunum og konurnar fá meira pláss. Lydia er til dæmis ekki bara einhver draumadís úti í bæ. Í myndinni skilur maður bet- ur af hverju Lydia gerir það sem hún gerir á meðan maður þurfti eiginlega að fatta það sjálfur í bókinni að þau voru að gera alveg sömu hlutina.“ Bókin Den allvarssamma leken var gefin út fyrir rúmri öld, árið 1912, og var því skrifuð á tíma þar sem staða konunnar í sam- félaginu var allt önnur en í dag. Lydia er því kannski skiljanlegri fyrir nútímalesendur en fyr- ir hundrað árum. „Stundum er Lydiu lyft fram sem sporgöngu- konu femínista. En ég veit það ekki: Ég held að Söderberg hafi verið svolítið pirraður á henni því hann reynir ekki að láta lesand- ann skilja hana. Kannski fannst lesandanum Lydia vera svolítið klikkuð fyrir 100 árum. Pernilla reynir að segja hennar sögu með öðrum hætti. Kannski virkar þessi saga betur í dag af því hún er svo nútímaleg,“ segir Sverrir. Hvernig er frægð í Svíþjóð? En hvernig er það fyrir Sverri að vera landsþekktur í Svíþjóð? Verður hann fyrir áreiti á götum úti? Fyrir utan að vera þekkt- ur leikari þá hefur Sverrir einnig ratað á síður blaða sem fjalla um einkalíf fræga fólksins, meðal annars vegna skilnaða hans við barnsmæður sínar tvær. Tímaritið Café hefur kallað hann „tengda- mömmudraum“, eða tengda- mömmutrylli upp á íslensku, og valið hann einn af bestu klæddu mönnum landsins tvö ár í röð. Einkalíf Sverris er hins vegar ekki mikið til umfjöllunar í gulu press- unni í Svíþjóð að öllu jöfnu og segir Sverrir að hægt sé að stýra því talsvert sjálfur hversu mikla athygli einkalíf manns fær. „Stokkhólmur er svolítið eins og Reykjavík, að fólk er ekkert mikið að abbast upp á mann. En það fer svolítið eftir því hvar maður er. Ef maður fer á út á land í minni bæi þá spyr fólk mann hvað maður sé að gera þar. Eða ef maður fer í Ikea eða Gröna Lund þá getur þetta orðið svolítið mikið. En þetta er ekki óþægilegt, flestir eru bara „nice“ og vilja segja manni að það hafi séð einhverja mynd sem þeim fannst góð. Þetta er fín borg að vera frægur í. Ef ég miða mig við Shia [LaBoeuf], til dæmis, þá er miklu erfiðara að vera frægur í Bandaríkjunum en í Svíþjóð.“ Sverrir segist hafa fundið fyrir því að konan við afgreiðsluborðið á kaffihúsinu þekkti hann en að hann kippi sér lítið upp við það lengur. „Ég hugsaði meira um þetta í byrjun ferilsins. Nú er þetta meira að mamma tekur eftir því þegar hún er með mér. Flestir horfa hins vegar á mann þegar maður tekur ekki eftir því. En ég geri þetta líka sjálfur þegar ég sé einhvern frægan sem ég þekki.“ Hvað tekur svo við hjá Sverri þegar tökum á myndinni um Björn Borg er lokið? Ætlar hann á að leika á sviði, líkt og hann hefur gert í nokkur skipti, eða er einhver íslensk mynd sem hann gæti hugs- að sér að leika í? „Ég er ekki alveg klár á því. Ég held að ég ætli að fara í smá frí, vera með stelpunum mínum þremur og fara í smá ferða- lag eða eitthvað slíkt. Þetta er búið að vera svolítið puð.“ Sverrir klárar kaffibollann, stendur upp, kveður með handa- bandi og gengur út af kaffihús- inu: Hann þarf að drífa sig í tíma hjá einkaþjálfara til að halda sér í formi út af tökunum á myndinni um Björn Borg. „Stokkhólmur er svolítið eins og Reykjavík, að fólk er ekkert mikið að abbast upp á mann.“ Stokkhólmur eins og Reykjavík Sverrir segir að það sé ekki erfitt að vera frægur í Stokkhólmi; borgin sé svolítið eins og Reykjavík þar sem þekkt fólk fái yfirleitt að vera í friði fyrir áreiti. Sverrir sést hér sem Arvid Stjärnblom í Den Allsvarssama Leken. Ómögulegt ástarsamband Í nýjustu kvikmynd sinni, Den allvarssamma leken, leikur Sverrir mann sem á í ómögulegu ástarsambandi. Aðal- og hjálparvélar í miklu úrvali ásamt öllu tilheyrandi Sérhæfð ráðgjöf, viðhalds- og varahlutaþjónusta Áratuga reynsla og þekking ... í þjónustu við útgerðina TIL DÆMIS: SOLE SM-105 Skrúfuvél 95 Hö við 2500 sn/mín. Rúmtak: 4,996 ltr. Eigum úrval af viðurkenndum þenslutengjum fyrir röralagnir á lager TIL DÆMIS: Gerð: S8U-MPTK 1343 kW við 1060 sn/mín. Borvídd x slaglengd: 240 x 260 Rúmtak: 94,10 ltr. Mengunarvottun : IMO2 TIL DÆMIS: MAS 1350-S Skipsrafstöð Vél: S12R-MPTAW. 1351 kW við 1500 sn/min 50Hz Mengunarvottun : IMO2 MD VÉLAR | Vagnhöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 567 2800 | Fax 567 2806 | hjalti@mdvelar.is | www.mdvelar.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.