Fréttatíminn - 30.09.2016, Síða 46
46 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 30. september 2016
Engin
hrekkjusvín
í Zwift
Hjólreiða- og samfélagsforritið Zwift er að
verða æ vinsælla á Íslandi. Í forritinu getur
hver sem er hjólað með hverjum sem er frá
öllum heimshornum á útópísku eyjunni
Watopia fyrir framan tölvuskjá á heimili sínu.
Gísli að hjóla um vegi Watopiu í stofunni sinni.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
Hjólreiðakappinn Gísli Ólafsson hefur stundað leikinn Zwift í eitt og hálft ár en hefur verið að leika sér í samskon-
ar leikjum síðan 2001. Hann hefur
reynt að fá alla fjölskylduna til að
taka þátt í leiknum og hefur hann
náð að plata konuna sína að stíga á
hjólið nokkrum sinnum.
Hristir letina af
Gísli Ólafsson nýtir sér Zwift for-
ritið sitt 6 daga vikunnar. Hann
tengir hjólið sitt við þjálfunarbún-
að og hjólar um vegi Watopia: „Ég
er tengdur við tölvu og þegar best
lætur þá er ég með sjónvarpið
fyrir framan mig. Aðal málið er að
þú ert að hjóla með lifandi fólki.
Ef ég er að hjóla upp eitthvert fjall
í Zwift og er latur þá kemur alltaf
fólk og fer fram úr mér og það gef-
ur mér spark í rassinn til að ná að
hrista letina af.“
Minnkar útiveruna
Leikir með samfélagsmiðlaívafi
geta oft orðið ávanabindandi. Gísli
segist ekki finna fyrir því að leik-
urinn verði að fíkn en hreyfing í
sjálfu sér sé alltaf ávandabindandi.
Gísli hefur einnig kynnst allskyns
fólki frá öllum heimshornum: „Ég
kynntist einum besta vini mínum í
eldri leiknum sem býr í Þýskalandi
og ég er búin að fara og hitta hann
tvisvar ytra. Það eru allskonar
keppnir og viðburðir sem maður
mætir á. Á veturna á Íslandi getur
verið ógeðslegt veður þannig það
getur verið mjög freistandi að fara
þangað frekar en út. Þannig þetta
minnkar eitthvað útiveruna.“
Ef maður klessir á einhvern í leikn-
um, hvað gerist þá í raunveruleik-
anum?
Leikurinn er þannig að hann pass-
ar að þú klessir aldrei á neinn,
þannig það eru engin hrekkjusvín
í Zwift.
Teygja í 501
Tíska dettur sjald nast að himnum
ofan og oft á sígild tíska sér langa
og merka sögu. Það á við um
501 gallabuxurnar frá Levi’s
sem fyrirtækið byrjaði að
framleiða árið 1890 og
hafa síðan notið mikilla
vinsælda.
Þessi
náði að
fetta sig og
bretta í 501
gallabuxum án
þess að nota þurfa
stredsefni.
Hvað gerist þegar sígildum gallabuxum er breytt? Þá er líklegt að einhverjir rísi upp og mótmæli.
Buxurnar eiga leggjast þétt að lík-
amanum og hafa síðan veðrast og
fagurblár liturinn dofnað lítillega
með þvotti. Í síðustu viku tilkynnti
gallabuxnarisinn engu að síður
að nú yrðu gerðar breytingar á
þessari klassísku hönnun, í fyrsta
sinn í 143 ára sögu þessa menn-
ingarfyrirbæris sem bandaríska
fyrirtækið hefur flutt um heim
allan. 501 buxurnar eru nefnilega
að fá „streds-meðferðina“ eins og
það var orðað í fréttatilkynningu.
Hreintrúarmenn á gallabux-
ur hafa fussað nokkuð yfir þessu
og segja það ekki samræmast vel
hefðinni að teygjanleiki þessa
dáða fatnaðar sé aukinn, en tals-
menn fyrirtækisins sverja af sér
allar útlitsbreytingar. Þeir segja að
munurinn verði aðeins skynjan-
legur þegar notandinn sé kominn
í buxurnar.
Íhaldsmennirnir vilja ekki
endilega tengja buxurnar streds-
efni sem yfirleitt er frekar tengt
þröngum pilsum, leggings-bux-
um og jógabuxum. Það þykir ekki
samrýmast vel þeirri ímynd sem
gallabuxurnar hafa haft, sem
tengist vinnu, endingargildi og
ákveðinni hörku.
Markaðsmenn Levi’s þykjast
samt finna að breytinga sé þörf
og að neytendur séu að leita að
fatnaði sem býður upp á meiri
sveigjanleika og auðveldar fólki að
hreyfa sig í heimi sem er sífellt á
ferðinni.
Hvort breytingar á þessari sígildu
vöru ganga upp, verður að koma í
ljós. | gt
Prakkara
kisi leggur
undir sig
Pétursbúð
Kötturinn Kókó hefur
komið ítrekað í Pétursbúð
í Vesturbænum í Reykjavík
undanfarna viku og hjúfrar
sig í hillu sem geymir salern-
isvarning og á það til að stilla
sér upp hjá harðfiskforða
búðarinnar. Fréttatíminn
sendi ljósmyndara á vettvang.
Send voru út boð á eigendur um að
sækja köttinn en ekkert svar hefur
borist. Viðskiptavinur á vettvangi
bauðst til að labba með köttinn
að heimili hans en þegar þangað
var komið voru öll ljós slökkt og
enginn heima.
Þegar Fréttatíminn náði tali af
starfsmanni Pétursbúðar sagði
hann að rannsóknarnefnd hefði
komið saman til að meta hvað verð-
ur gert í málum kattarins. Ákveðið
hefur verið að leyfa Kókó að ganga
frjálsum um verslunina svo lengi
sem hann truflar ekki viðskiptavini
og klórar ekki í eigur búðarinnar.
Sátt hefur því náðst í málinu. | hdó
Kötturinn Kókó hefur gert sig heimakominn í Pétursbúð. Mynd | Hari