Fréttatíminn - 30.09.2016, Page 52
Nýtt í farsímabransanum
Nú geta allir hent gömlu farsímunum
sínum því nýjasta útfærsla af síma
fyrirtækisins Apple var að
koma til landsins. I-síminn,
númer 7, er strax orðinn
heitasta lumma bæjarins og
fólk bíður í eftirvæntingu
eftir að eignast einn slíkan.
Fyrstir koma, fyrstir fá.
Nýtt í leikhúsinu
Njála var gríðarlega vinsæl
sýning síðastliðinn vetur.
Sýningar byrja aftur á
verkinu um helgina svo
þeir sem grétu fögrum
tárum eftir að hafa misst af
sýningunni geta fundið gleðina á ný í Borgar-
leikhúsinu.
Nýtt í bíó
Margar myndir verða sýnd-
ar um helgina á kvik-
myndahátíðinni RIFF.
Þar má til dæmis finna
sundbíó, rómantískar
myndir og gersemar fyrir
heimildamyndanölla.
NÝTT
Í BÆNUM
Tölum um … ástina
Ólöf Rut Stefánsdóttir
Allt sem ég hef lært um ást hef ég
lært frá Jane Austin. Ástin er því
eitthvað sem ég hef leitað í hjá
öðrum, en svo skilst mér að bestu
ástina sé að finna hjá sjálfri mér.
Vildi að ég hefði fattað það fyrr,
heitandi Oh-love.
Hjalti Jón Sverrisson
Ástin fyrir mér er staður þar sem
er samhljómur í tengslunum. Hún
er samræða, en ekki einræða. Ástin
kann ekki að horfa niður á þig, að-
eins í augun á þér. Annars væri hún
fölsk – og það kann hún ekki heldur.
Andrea Eyland
Ástin er ótrúlegt af l. Hún fyllir
hjartað af hamingju, kroppinn af
krafti, sálina af súrefni og lífið af
lukku. Ástin er þú, ég & börnin.
Þetta var ástarjátning. Svona gerir
ástin mann klikkaðan.