Fréttatíminn - 30.09.2016, Side 68
H
ópefli getur verið
mikilvægt til skapa
betri móral eða auð-
velda samvinnu innan
ákveðins hóps. Það er
nefnilega ekki nóg að setja saman
hóp af hæfileikaríku fólki og segja
því að vinna saman að verk-
efni, fólk þarf að læra inn á aðra
einstaklinga í hópnum og stundum
sig sjálft.
Tökum dæmi um hóp sem
virkar illa saman: Einn einstak-
lingur í hópnum er gjarn á að vera
mjög gagnrýninn á hugmyndir
annarra og það getur fælt fólk frá
því að koma með hugmyndir. Ann-
ar einstaklingur í hópnum segir
kannski fátt en er alltaf sammála
þeim sem hæst hefur og enn annar
er duglegur að koma með óvið-
eigandi athugasemdir. Allir þessir
einstaklingar geta verið mjög klár-
ir en eru kannski ekki meðvitað-
ir um vankanta sína í samskipt-
um við annað fólk. Þá getur gott
hópefli gert gæfumuninn.
Á hópeflisnámskeiðum getur
fólk lært hvaða öfl eru að verki
í hópnum sem það er hluti af,
hvernig hópurinn hefur áhrif á
það og hvernig það sjálft hefur
áhrif á hópastarfið. Fólk lærir af
því að taka þátt í ýmiskonar hópa-
starfi á námskeiðunum.
Markmiðin geta verið mismun-
andi, til dæmis að fá betra innsæi
í sjálfan sig í samskiptum við aðra,
læra að þekkja styrk- og veikleika
sína, eða að gera sér grein fyrir
ábyrgð sinni og áhrifum í hópi til
þess að efla forystu- eða stjórn-
unarhæfni sína sem best.
Í hópi þar samstarfið er gott þá
treysta meðlimir hver öðrum og
vinna að sameiginlegum markmið-
um. Það auðveldar úrlausn verk-
efna. Rannsóknir hafa sýnt fram á
að slíkur hópur afkastar næstum
tvisvar sinnum meira en hópur
þar einhverjir samskiptaerfiðleikar
eiga sér stað.
Til
hvers er
hópefli?
Það er ekki nóg að
setja saman hóp af
hæfileikaríku fólki og
segja því að vinna sa-
man, það þarf líka að
læra inn á hvert annað.
Gerir gæfumuninn Hópefli
getur bætt starfsandann í
hópnum og aukið afköst.
Mynd | NordicPhotos/Getty
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 20164 RÁÐSTEFNUR&HÓPEFLI
Verðum að sjá
samferðamenn okkar í
fjölbreyttu ljósi
Gott að hleypa fólki inn á sitt persónulega rými.
Unnið í samstarfi við Skátana
Á Úlfljótsvatni býðst hópum af öllum stærðum og gerðum að koma í hópefli í ýmsa leiki sem eru til þess
fallnir að efla hópinn og starfsand-
ann. „Við fáum fólk hér í dagsferðir,
síðan er stundum grillað ofan í hóp-
inn eða hann fær kaffi og
kökur. Sumir hópar koma í leiki
og nýta svo aðstöðuna til þess að
funda eða vinna og við sjáum um
að gefa þeim að borða,“ segir
Guðmundur Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri á Úlfljótsvatni. „Við
fáum hópa sem eru í skipulögðu
hópefli eða bara í skemmtiferð-
um. Þetta er ekki alltaf þannig að
fólk sé að berjast við einhverjar
krísur í starfseminni. Það er hluti
af vel reknu fyrirtæki að viðhalda
móralnum og búa svo um hnútana
að andinn sé góður,“ segir Guð-
mundur. Leikirnir sem farið er í
eru af ýmsum toga og segir Guð-
mundur spéhræðslu vera í algeru
lágmarki hjá langflestum en enginn
sé píndur í neitt. „Hér erum við að
búa til aðstæður þar sem fólk sér
hvert annað í nýju ljósi og er að
vinna verkefni saman sem eru ólík
hefðbundnum verkefnum. Fólk sér
styrkleika hvert hjá öðru sem það
sér ekki endilega á skrifstofunni.
Það er síðan eitthvað sem hægt er
að nýta í framhaldinu.“
Guðmundur imprar á því að ekki
sé nóg að fara einu sinni í hópefli
með vinnustaðinn og láta svo stað-
ar numið. „Alls staðar þar sem fólk
vinnur saman, hvort sem það er í
skóla, fyrirtækjum eða hvar sem er,
þá er andinn eitthvað sem þarf að
efla og reynsluna þarf að endur-
nýja. Það er ekki nóg að fara einu
sinni, 1986, í hópefli með fyrirtækið
og ætla síðan að byggja á því ævi-
langt. Við þurfum stöðugt að búa
til aðstæður þar sem við getum séð
samferðamenn okkar gegnum lífið í
fjölbreyttu ljósi.“
Við hópeflið á Úlfljótsvatni eru
notaðir klassískir leikir og þrautir
sem virkja aðrar heilastöðvar en
notaðar eru þegar fólk er að búa til
fjárhagsáætlanir og sinna dagleg-
um störfum. Þetta er tækifæri til
þess að koma og fá að láta ljós sitt
skína. Verkefnin krefjast þess að
tala saman og skipuleggja sig en
líka að vera í nánd við samstarfs-
menn sína. „Það er stundum gott
að hleypa fólki inn í sitt persónu-
lega rými, maður þarf að opna fyrir
fólki sem maður kannski opnar
ekki fyrir á þann hátt dagsdaglega.
Stundum þarf að faðmast sem
sumum þykir erfitt en þetta leyfir
manni að nálgast vinnufélagana á
annan hátt.
Guðmundur segir ekki vera mun
milli mismunandi atvinnugeira
þegar kemur að því að leysa verk-
efnin, sömu vandamálin komi upp
hvort sem um er að ræða álver, fjár-
málastofnun eða hvað sem er. Oftar
en ekki snúist vandamálin sem
koma upp að því að fólk eigi erfitt
með að sleppa stjórnartaumunum.
„Ég man eftir einu verkefni, til
dæmis, sem tók verulega á fyrir
forstjórann því hann gat ekki leyst
það. Svo kom einhver sem vann
við ræstingar innan fyrirtækisins
og kom með lausnina. Þetta fannst
viðkomandi erfitt, tók á fyrir hann
að hafa ekki þessi svör í rauninni
er það þannig að því hærra sem
maður er settur innan fyrirtækisins
því meiri not hefur maður haft
fyrir svona lagað. Þetta var mjög
lærdómsríkt fyrir viðkomandi,
þarna lærði hann að gefa tækifæri
og sleppa tökunum. Kannski átta
sig líka á því að það er enginn sem
kann allt,“ segir Guðmundur og
bætir við að verkefnið sé oftar en
ekki að hlusta á aðra, alveg sama
hvaða hlutverki þeir gegna innan
fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar
má finna á heimasíðunni
www.ulfljotsvatn.is
Einbeiting „Fólk sér styrkleika hvert hjá öðru sem það sér ekki endilega á skrifstofunni.“
Mynd | Rut
Traust „Verkefnin krefjast þess að tala saman og skipuleggja sig en líka að vera í nánd við
samstarfsmenn sína.“
Huggulegt Eftir hvetjandi og styrkjandi leiki er hægt að gæða sér á góðum veitingum.
„Alls staðar þar sem fólk vinnur saman,
hvort sem það er í skóla, fyrirtækjum eða
hvar sem er, þá er andinn eitthvað sem þarf að efla
og þá reynslu þarf að endurnýja.“
Guðmundur Finnbogason
Framkvæmdastjóri