Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 14.10.2016, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 14.10.2016, Qupperneq 4
Dæmdur fjársvikari tók 8 milljónir úr hússjóði Hagnaður og arðgreiðslur vegna Borgunarhlutarins Kaupverð Eignarhaldsfélagsins Borgunar 2014 var 2.2 milljarðar króna Hagnaður félagsins í fyrra var 560 milljónir Hagnaður fyrsta rekstrarársins var 1/4 af kaupverði hlutarins Arðgreiðsla tveggja ára er 395 milljónir króna Arðgreiðsla tveggja ára til hluthafa er 18 prósent af kaupverðinu 4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016 Dómsmál Maður sem hlotið hefur dóm fyrir fjárdrátt úr tveimur félögum frí- merkjasafnara, hefur játað að hafa dregið sér átta millj- ónir úr hússjóði fjölbýlishúss við Vallarás í Árbæ. Maður- inn var gjaldkeri í húsfélags- ins og fjárdrátturinn stóð yfir í tæpan áratug. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Í fjölbýlishúsinu við Vallarás er 21 íbúð og átti maðurinn eina þeirra. Hann bjó í húsinu og gegndi stöðu gjaldkera í tæpan áratug. Á þeim tíma virðist hann hafa millifært reglulega út af þremur reikningum húsfélagsins, inn á persónulega bankareikninga sína. Samkvæmt heimildum Fréttatímans tók mað- urinn einnig yfirdrátt fyrir húsfé- lagið. Málið uppgötvaðist þegar maður- inn seldi eign sína fyrir nokkru en þá komust kaupendur og stjórn hús- félagsins í bókhaldið og sáu milli- færslurnar. Var gengið á manninn og hann spurður út í málið. Gekkst hann við millifærslunum en var ekki reiðubúinn til að endurgreiða upphæðina. Íbúar hússins fengu endurskoðanda til að fara yfir bankareikningana og kortleggja tjónið. Í kjölfarið var útbúin skaða- bótakrafa og málið var kært til lög- reglu. Íbúar hússins segja í samtölum við Fréttatímann að húsið þarfn- ist mikils viðhalds en slíkum fram- kvæmdum hafi verið drepið á dreif af manninum. Hann hafi einnig vanrækt að greiða mikilvæga reikn- inga fyrir hönd húsfélagsins. Til stóð að maðurinn yrði ráðinn í vinnu hjá knattspyrnufélagi í efstu deild á dögunum. Kom þá á daginn að maðurinn hafði fyrir meira en tuttugu árum síðan hlotið dóm fyr- ir fjárdrátt. Þá var hann sakfelldur fyrir að draga að sér samtals um fimm milljónir króna úr Félagi frí- merkjasafnara og Landssambandi íslenskra frímerkjasafnara. Ekkert varð því úr ráðningunni. Viðskipti - Arðgreiðslur Eignarhaldsfélagsins Borg- unar til hluthafa síðastliðin tvö ár nema 395 milljón- um króna. Félagið keypti hlutinn af ríkisbankanum Landsbankanum án auglýs- ingar. Hagnaður félagsins í fyrra nemur rúmlega 1/4 af kaupverðinu. Bankastjóri Landsbankans hefur viður- kennt að illa hafi verið staðið að sölunni. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Eignarhaldsfélagið Borgun slf. hef- ur á síðustu tveimur árum greitt út 395 milljóna króna arð hluthafa sinna. Í fyrra nam arðgreiðslan 190 milljónum króna, samkvæmt nýjum ársreikningi félagsins fyrir 2015, sem skilað var til Ríkisskatt- stjóra í ágúst síðastliðinn. Nú í sum- ar greiddi félagið út 205 milljóna króna arð til hluthafa samkvæmt aðalfundargerð félagsins frá því í júní í ár. Arðgreiðslurnar þessi tvö ár nema því 395 milljónum króna. Félagið á 29,38 prósenta hlut í greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borg- un hf. sem keyptur var af Lands- bankanum, án þess að hluturinn hefði verið auglýstur, fyrir 2.2 millj- arða króna í nóvember árið 2014. Landsbankinn er í eigu íslenska ríkisins að 98 prósentum þannig að því var um að ræða sölu á ríkis- eignum. Salan á hlutnum í Borgun hefur verið harðlega gagnrýnd eftir að upp komst um hana vegna þess að eignarhluturinn var ekki aug- lýstur til sölu. Meðal eigenda Eignarhaldsfé- lagsins Borgunar er eignarhalds- félagið P 126 ehf. sem er í eigu Einars Sveinssonar, föðurbróður Bjarna Benediktssonar fjármála- ráðherra. Félagið á 21,9 prósenta hlut í Eignarhaldsfélaginu Borgun. Einar á viðkomandi félag í gegn- um kýpverska eignarhaldsfélagið Charamino Holdings Limited. Mið- að við umræddar arðgreiðslur út úr Eignarhaldsfélaginu Borgun hf. síð- astliðin tvö ár þá hefur félag Einars fengið 86 milljónir krónar greiddar í arð vegna eignarhlutarins. Hinir tveir stærstu hluthafar Eignarhaldsfélagsins Borgunar eru útgerðarfélag Guðrúnar Lár- usdóttur, Stálskip ehf., með tæp 33 prósent og Pétur Stefánsson ehf. með tæp 22 prósent. Viðskipti eignarhaldsfélagsins Borgunar með hlutabréfin í greiðsl- umiðlunarfyrirtækinu voru hag- stæð fyrir hluthafa fyrirtækisins og skilaði félagið tæplega 560 milljóna króna hagnaði í fyrra. Þetta þýðir að bara hagnaðurinn í fyrra nam rúmlega 1/4 hluta af kaupverði hlutabréfanna í Borgun árið 2014. Tæplega 400 milljónir króna af hagnaðinum var tilkominn vegna hækkunar á bókfærðu verðmæti hlutabréfanna í Borgun hf. og rúm- lega 200 milljónir voru arðgreiðsla frá Borgun hf. til félagsins. Bjarni Benediktsson er á endan- um æðsti ráðamaður Landsbank- ans í krafti stöðu sinnar sem fjár- málaráðherra en ráðuneyti hans heldur utan um hlutabréf ríkisins í bankanum í gegnum Bankasýslu ríkisins. Fjármálaráðherra skip- ar stjórn Bankasýslunnar og setti hann Lárus Blöndal inn sem stjórn- arformann stofnunarinnar í ágúst í fyrra ásamt Sigurjóni Erni Þórs- syni, fyrrverandi aðstoðarmanni Árna Magnússonar, félagsmálaráð- herra úr Framsóknarflokknum. Bjarni hefur þráfaldlega neitað að hafa komið að viðskiptunum með eignarhlutinn í Borgun og Ein- ar Sveinsson hefur sagt hið sama. Þá hefur Bjarni sagt að hann styðji sjálfstæða athugun á sölu Lands- bankans í Borgun. „En ég styð að sjálf sögðu ef menn vilja skoða með ein hverjum hætti hvernig þessi mál hafa gengið fram í rík is fyr ir tæki. Þá verða menn bara að fara eftir réttum boð leið um, óska eftir því við Banka sýsl una eða eftir atvik- um stjórn bank ans.“ Meint aðkoma eða vitneskja Bjarna um Borgunar- viðskipti bankans hefur ekki verið sönnuð. Hvað sem meintum þætti Bjarna líður þá hefur Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, gefið það út að bankinn muni læra af reynslunni og ekki selja fyrirtæki án auglýsingar í framtíðinni. Í grein í Morgunblaðinu í byrjun ársins sagði hann: „Við í Landsbankan- um höfum hlustað og tekið mark á gagnrýninni á söluferlið á Borg- un. Við höfum sagt að við hefðum betur haft söluferlið opið, þrátt fyr- ir annmarka. Það er ljóst að verði bankinn aftur í sömu eða svipaðri aðstöðu munum við fara öðruvísi að og hafa söluferlið opið.“ Mistök voru því gerð við söluna en spurningin er hvort þau mistök séu á einhvern hátt einnig tengd pólitískri spillingu eða ekki. Íbúar í fjölbýlishúsi við Vallarás í Árbæ hafa kært manninn fyrir fjárdrátt. Föðurbróðir Bjarna fær 86 milljóna arð- greiðslu frá Borgun Viðskipti hluthafa Eignarhaldsfélagsins Borgunar hafa verið arðbær hingað til en arðgreiðslur vegna þeirra nema 395 milljónum króna á tveimur síðustu árum. Meðal kaupenda voru Einar Sveinsson og Benedikt Einarsson, sonur hans, sem keyptu ríflega fimmtungshlut í Eignarhaldsfélaginu Borgun og hafa hingað til fengið 86 milljónir króna í arð inn í félag sitt. Stjórnmál „Prinsippið er að kæra eigi að fresta réttar- áhrifum og virkt kæruferli sé óaðskiljanlegur hluti af réttlátri málsmeðferð,“ segir Atli Viðar Thorstensen, svið- stjóri hjálpar- og mannúðar- sviðs hjá Rauða krossinum, en hjálparsamtökin leggjast gegn bráðabirgðaákvæði við útlendingalög. Valur Grettisson vg | frettatiminn.is Frumvarpið, sem var samþykkt á Alþingi í gær - tveimur dögum eftir að það var lagt fram -  miðar að því að hælisleitendur, sem kæra synj- un Útlendingastofnunar, geti ekki fengið réttaráhrifunum frestað. Á mannamáli þýðir það að hælisleit- endum verður vísað úr landi þó að þeir kæri málið til Kærunefndar útlendingamála. Meirihluti allsherjar- og mennta- málanefndar, liðsmenn Sjálfstæð- is- og Framsóknarflokksins, leggja frumvarpið fram. Tilgangur ákvæðisins, sam- kvæmt greinargerð með frumvarp- inu, er að létta á því mikla álagi sem verið hefur á móttöku- og bú- setuúrræðum fyrir hælisleitend- ur með því að stytta dvalartíma í þeim málum þar sem lægra stjórn- sýslustig hefur metið umsóknina bersýnilega tilhæfulausa og um- sækjandi kemur frá ríki sem er á lista yfir örugg upprunaríki. Fyrirséð er að úrræðið muni helst beinast að hælisleitendum frá svokölluðum „öruggum löndum“ svo sem Albaníu og Makedóníu. „Það á að vera hægt að afgreiða tilhæfulausar umsóknir á örfá- um dögum, án þess að það komi niður á gæðum málsmeðferðar,“ segir Atli sem minnir á að Rauði krossinn hafi í upphafi árs spáð því að líklegur fjöldi hælisleitenda á þessu ári yrði á bilinu 600-1000 sem sé að ganga eftir. Því komi fjöldinn einn og sér ekki á óvart. Helgi Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata og fulltrúi í allsherjarnefnd, segist skilja tilgang frumvarpsins, og bendir á að það sé tímabund- ið, en gildistími laganna er til ára- móta. Hann hefur þó efasemd- ir um að frumvarpið muni spara ríkið mikla peninga. Hann bætir svo við: „Þetta frumvarp virkar á mig eins og tímabundið skítmix til að þjösnast í gegnum þetta ástand.“ Segir bráðabirgðarákvæði „skítmix“ Helgi Hrafn Jónsson segir frumvarpið skítmix og Rauði Krossinn gagnrýnir frumvarpið sem var samþykkt í gær. ZENDIUM STYRKIR NÁTTÚRULEGAR VARNIR MUNNSINS FÉLAG ÍSLENSKRA TANNFRÆÐINGA MÆLIR MEÐ ZENDIUM TANNKREMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.