Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 14.10.2016, Side 42

Fréttatíminn - 14.10.2016, Side 42
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í útboði á fullnaðarhönnun rannsóknarhúss sem er hluti af Hringbrautar­ verkefninu. Hér er um að ræða opið forval auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin verða lokuð öðrum en þeim bjóðendum sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess. Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda. Þannig verður öllum umsækjendum sem uppfyllt hafa kröfur forvalgagna og þannig staðist forval boðið að taka þátt í lokuðu hönnunarútboði fyrir rannsóknar­ hús. Ekki er gefin einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðinu. Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvali þessu. Öll gögn í forvali þessu, útboði og í verkinu í heild, skulu vera á íslensku að undanskildum tækni­ legum forskriftum og samskiptum við nauðsynlega birgja, vottunaraðila o.fl. sem mega vera á ensku. Þó er heimilt að senda inn fyrirspurnir á ensku og starfsferilslýsingar erlendra ráðgjafa mega einnig vera á ensku. Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönnun muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 6 mánuði eftir að þær liggja fyrir. Þátttaka í forvali gefur umsækjendum kost á því að taka þátt í útboði á verkefninu, en skuldbindur þá ekki til þess. Forval þetta er án skuldbindingar fyrir verkkaupa, hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða áföngum. Forvalsgögn eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Umsóknum í forvalið skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, eigi síðar en ­fimmtudaginn­13.­desember­fyrir­kl.­11:00 þar sem þær verða opnaðar. Nýr­Landspítali­–­Hringbrautarverkefnið­-­ Rannsóknarhús Forval nr. 20427 fyrir­hönnunarútboð ÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Útboð 20191 - Ljósbúnaður fyrir Þjóðleikhúsið Rí iskaup fyri hö d Þjóðleikhússins óska eftir tilboðum í eftirfarandi ljósbúnað: • Hreyfiljós Spot/Profile • Hreyfiljós Wash • Fastljós Wash • Upphen jur fyrir ofangreint Samið verður við einn aðila um viðskipti þessi. Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa ( www.rikiskaup.is ), miðvikudaginn 18. nóvemb r nk. Tilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík þar sem þau verða opnuð 22. desember 2015, kl. 14.00 að viðstödd m þeim bjóðendum sem þess óska. Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Nýr Landspítali – Hringbrautarverkefnið - Rannsóknarhús Forval nr. 20427 fy ir hönnun rútboð Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í útboði á fullnaðarhönnun rannsóknarhúss sem er hluti af Hringbrautarverkefninu. Hér er um að ræða opið forval auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin verða lokuð öðrum en þeim bjóðendum sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess. Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda. Þannig verður öllum u sækjendum sem uppfyllt hafa kröfur forvalgagna og þannig staðist forval boðið að taka þátt í lokuðu hönnunar­ útboði fyrir rann óknarhús. Ekki er gefin einkun fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðinu. Ekki verðu g eitt fyrir þátttöku í forvali þessu. Öll gögn í forvali þessu, útboði og í verkinu í heild, skulu vera á íslensku að ndanskildum tæknilegum forskriftum og samskiptum við nauðsynlega birgja, vottunaraðila o.fl. sem mega vera á ensku. Þó er heimilt að senda inn fyrirspurnir á ensku og starfsferilslýsingar erl dra ráðgjafa mega einnig vera á ensku. Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönnun muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 6 mánuði eftir að þær liggja fyrir. Þátttaka í forvali gefur umsækjendum kost á því að taka þátt í útboði á verkefninu, en skuldbindur þá ekki til þess. Forval þetta er án skuld- bindingar fyrir verkkaupa, hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða áföngum. Forvalsgögn eru aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Umsóknum í forvalið skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 13. desember fyrir kl. 11:00 þar sem þær verða opnaðar. „Vá! Enn frábært! Ég óska hon- um bara innilega til hamingju, þó svo að hann vanti eflaust ekki peningana. Ég man enn þegar ég tók plötuna Desire að láni á bókasafni Hafnarfjarðar. Það var stór stund. Ég man þetta rétt eins og þegar ég tók Helj- arslóðarorustu eftir Benedikt Gröndal úr einni hillunni þar skömmu áður. Þetta er maður sem hefur skipt mig miklu máli og ég hef oft lagst í tónlistina hans á löngum tímabilum.“ Kristín Ómarsdóttir, rithöfundur. 42 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 14. október 2016 Robert Allan Zimmerman, betur þekktur sem Bob Dylan, fæddist í bænum Duluth, Minnesota 24. maí árið 1941. Hljóðversplöturnar eru 37 talsins og hafa selst í massavís. Dylan, sem er af mörgum álitinn einn áhrifamesti listamaður 20. aldar, var á fyrri hluta sjöunda áratugarins rödd heillar kynslóðar og hug- sjóna um betri heim. Hann hefur samt alltaf hrist af sér bæði skilgreiningar og væntingar. Dylan fær Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir að „skapa nýja ljóðræna tjáningu innan innan hinnar miklu bandarískrar söngvahefðar.“ Söngvamaður fær Nóbelinn Bob Dylan fær Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2016. Þetta var tilkynnt í Stokkhólmi á fimmtudag. Þessu hafði lengi verið spáð en spár ganga sjaldnast eftir þegar verðlaunin eru annars vegar. Nú var kominn tími á þennan dula 75 ára gamla söngvamann frá Duluth í Minnesota, sem er einn áhrifamesti tónlistarmaður heims. Fréttatíminn leitaði eftir viðbrögðum við fréttunum og eins og gefur að skilja tóku sumir þessu persónulega. Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is „Það eru mikil gleðitíðindi að fyrsti lagatextahöfundurinn sem hlýtur þessi virtu verðlaun skuli vera Bob Dylan. Hann er seigur kall. Þegar hann söng árið 1990 „Dilla, vagga, sprikla líkt og súpuskál“, þá hár- reittu sig margir og fannst ótrúlegt að þar væri á ferð sami maður og samdi Desolation Row. Það kæmi mér mikið á óvart ef plötuþrílógía hans frá síðustu aldamótum hafi ekki friðþægt slíka bölsýnismenn. Þessa dagana hlusta ég mest á Dylan frá „hjónaskilnaðarárunum“ þegar hann faldi sig á bak við hvítan farða, setti upp karnivalskemmtun en söng á sama tíma frá innstu hjartarótum um ást, aðskilnað, heift og hatur.“ Einar Jóhann Geirsson, nemi. „Ég er ánægðastur með akademíuna þegar hún velur höfunda sem ég hef aldrei lesið og helst ekki heyrt um – þegar hún lyftir upp heilu höfundarverki og vekur á því athygli sem það naut ekki fyrir. Það er nóg til af stórfenglegum bók- menntum. Að velja Dylan er Nóbelsmet í meinstrími.“ Eiríkur Örn Norðdahl, skáld. „Þetta kom auðvitað á óvart. Og er í einhverjum skilningi fáránlegt. Lög hans og ljóð eru samofin, ein heild. Þau standa misvel, ein og sér, á síðu. Að því sögðu, og þrátt fyrir það, get ég ekki annað en fagnað í hjarta mér vali Sænsku akademíunnar, meir en það, ég dett af stólnum, af gleði, svo mik- ilvægur er Bob Dylan og framlag hans til vestrænnar menningar. Og orð hans hafa oftar en ekki ver- ið mikilvæg, um það verður varla deilt. Sænska akademían hefur oft valið höfunda sem enginn hefur veðjað á, merka höfunda sem um leið fengu verðskuldaða athygli. Valið á Bob er auðvitað öðruvísi. Akademían átti það inni að velja Dylan nú, og það er ekkert annað að gera en fagna vel og lengi.“ Eiríkur Guðmundsson, rithöfundur og útvarpsmaður. „The times they are a’changin...“ - Bob Dylan

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.