Fréttatíminn - 26.11.2016, Qupperneq 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 26. nóvember 2016
Bagalegt vandamál hefur sprottið upp í Akrahverf-inu í Garðabæ sem hefur stórlega misboðið réttlæt-
iskennd nokkurra íbúa. Frétta-
blaðið greindi frá ástandinu í gær
og ræddi við vonsvikna hús-
eigendur.
Samkvæmt deiliskipulagi eru
grasflatir við nokkrar götur hverf-
isins sem valda því raski fyrir
íbúanna að þeir eiga erfitt með að
koma bílaflota sínum fyrir í inn-
keyrslunum. Grasflatirnar þrengja
aðgengið. Litlir bílar eiga erfitt
með að keyra yfir grasið.
Vélfræðingurinn Kristján Ólafs-
son er einn þeirra sem þarf að
glíma við vandann og finnur fyrir
því daglega hvað grasið er óheppi-
lega staðsett. „Í flestum þessum
húsum eru tveir bílar og jafnvel
þrír og stundum koma gestir,“
sagði Kristján sem hefur þrýst á
yfirvöld að grípa til aðgerða. Bæj-
arstjórn Garðabæjar fór yfir málið
á fundi og komst að þeirri niður-
stöðu að deiliskipulaginu yrði
ekki haggað. Bæjarstjórinn myndi
ræða við Kristján. Enn blasa þó
grasflatirnar við vegfarendum.
Íbúar finna til samfélagslegrar
ábyrgðar víðar en á Ökrunum.
Skemmst er frá því að segja að
í nágrannahverfinu, Arnarnesi,
varð viðskiptamaðurinn Frið-
rik Ingi Friðriksson fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu í fyrra
að horfa upp á þjófa stela bensíni
af bíl sem stóð fyrir utan heimili
hans. Auk þess hafa ferðamenn
vanið komur sínar á rútum inn
í hverfið á sumrin og Friðrik er
ekki hrifinn af því. Enn frem-
ur hefur komið fram sú krafa að
göngustígur fyrir almenning,
sem liggur samfellda leið með-
fram strandlengju höfuðborgar-
svæðisins, fái líka að umlykja
Arnarnesið. Slíkt myndi kalla á
enn frekari umferð ogz eftirlits-
lausar fólksferðir um verðmætu-
stu sjávarlóðir hverfisins. Friðrik
telur umsvifalaust tíma til kominn
að setja upp hlið til að sporna við
því að þjófar og aðrir misyndis-
menn komist inn á Arnarnesið.
„Hægt að gera þetta svipað og í
Hvalfjarðargöngunum. Þetta opn-
ast þegar ekið er að því. Svona
hlið eru víða á Íslandi. Þetta snýst
fyrst og fremst um öryggi. Þetta
myndi auka öryggi íbúa og hækka
fasteigaverð,“ sagði hann í samtali
við DV. Ekki myndaðist þó sam-
staða um málið meðal íbúa þó
fjölmargir hafi lagt baráttu Frið-
riks lið. Hverfið er enn opið upp
á gátt.
Hvergi hefur þó reynt jafn mikið
á þolinmæði íbúa höfuðborgar-
svæðisins og í rótgrónu hverfi í
austurhluta Reykjavíkurborgar
þar sem Barnaverndarstofa tók
upp á því að festa kaup á einbýl-
ishúsi undir starfsemi Barnahúss
fyrir nokkru. Til stóð að færa
starfsemina úr löngu sprungnu
STEYPT YFIR
FRJÓAKUR
Skapandi hugsun í skólum
Vegna uppsagna verður meiri áhersla lögð á frístundir í framtíðinni
- Skóla og frístundasvið
húsnæði yfir í nýja húsið strax eft-
ir kaupin. Glöggur húseigandi við
götuna var ekki lengi að sjá fyrir
raskið sem þessi starfsemi myndi
kalla yfir nærliggjandi hús. Um-
ferð og ónæði gæti aukist og gjör-
breytt þeim anda sem ríkt hafði í
götunni um árabil. Auk þess væri
ekki útséð með það að starfsemi
eins og Barnahús gæti haft áhrif
á fasteignaverð í hverfinu. Þegar
húsið var keypt var ekki talið
að breyta þyrfti deiliskipulagi á
svæðinu og því gaf byggingarfull-
trúi út leyfi fyrir breyttri notk-
un hússins. Húseigandinn glöggi
kærði þá ákvörðun og voru fram-
kvæmdir við húsið stöðvaðar í
nokkra mánuði í kjölfarið. Málið
fór eins og dæmin í Garðabænum
þar sem samfélagslega meðvitaðir
íbúar þurftu að lúta í lægra haldi
fyrir kerfisræðinu.
Þó lýðræðislega kjörnir fulltrú-
ar sitji í bæjarstjórnum landsins
og gefi álit sitt á deiliskipulagi og
reglugerðum, er ekki alltaf hægt
að treysta því í blindni að póli-
tíkusar finni bestu lausnirnar.
Auðvitað mætti mögulega leysa
vandann í Akrahverfi með því að
nota þann bíl sem kemst auðveld-
ar frá bílskúrnum til að sækja
fólkið sem þarf að leggja svolítið
frá húsunum. En það væri auðvit-
að rask líka.
Sem betur fer hafa ekki allir
þolinmæði í að sitja aðgerðalaus-
ir undir ögrandi deiliskipulagi og
bíða eftir að kerfið sveigi sig að
þörfum fólksins. Stundum þarf að
taka málin í sínar hendur og gera
eins og íbúi Frjóakurs sem hefur
fengið sig fullsaddan. Ryðja gras-
inu í burt.
Þóra Tómasdóttir
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
etu
r b
re
ys
t á
n f
yri
rva
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
78
53
6
Frá kr. 89.995
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá
kr. 89.995 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
30. nóvember í 10 nætur.
Frá kr. 106.195
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 130.195 m.v. 2
fullorðna í stúdíó.
30. nóvember í 21 nótt.
Compostela
Beach Golf Club
Hotel Villa
Adeje Beach
BÓKAÐU SÓL
Í NÓVEMBER
Frá kr.
56.315
GRAN CANARIA
TENERIFE
Frá kr. 57.995
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá
kr. 57.995 m.v. 3
fullorðna í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 119.895 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
30. nóvember í 13 nætur.
Los Tilos
Frá kr. 56.315
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá kr.
56.315 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 67.380 m.v. 2
fullorðna í íbúð.
30. nóvember í 6 nætur.
Roque
Nublo
Frá kr. 69.955
m/ekkert fæði innif.
Netverð á mann frá kr.
69.995 m.v. 2 í gistingu.
30. nóvember í 20 nætur.
Stökktu