Fréttatíminn - 26.11.2016, Page 48
48 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 26. nóvember 2016
Og að koma henni þegjandi til skila. Því það er að-
eins rödd Heiðu sem heyrist í bókinni Heiða–fjalldala-
bóndinn.
Höfundurinn er þá kominn á undarlegan stað að segja
nokkur opinber orð um söguhetjuna sína. En svo mik-
ið er víst:
Þegar bókin var rétt að verða fullskrifuð sagði ég við
Heiðu: Við gætum haldið áfram í þrjú ár. Samt yrði ekki
sagt um þig síðasta orðið.
Heiða svaraði: Það er eins gott, því þá yrði ekkert eftir.
Það eru sérstök forréttindi fyrir höfund að ná í „efni“
sem annars liggur ekki á lausu. Ég hef skrifað bók
um söguhetju sem er ekki áfjáð í að tala um sjálfa sig,
hvorki opinberlega né einkalega. Og þau forréttindi líka
að mega opna upp á gátt sveitaheiminn hennar Heiðu,
sem er okkur borgarbörnum lokuð bók, jafnvel þótt við
höfum eitthvað verið að gutla á sveitabæjum á sumrin.
Þá er það spurningin: Ef Heiða er svona þögul prívat-
manneskja hvers vegna samþykkti hún þá yfirleitt að
um hana væri skrifuð bók? Og hvers vegna tók rótgró-
inn skáldsagnahöfundur og ljóðskáld U-beygju og fór að
skrifa bók um manneskju sem er til í „alvörunni“.
Svo mikið er víst að það eitt hefði ekki dugað þessum
höfundi að hitta kvenhetju sem var stórbrotin og heill-
andi. En þegar ég var búin að sitja við eldhúsborðið á
Ljótarstöðum í fimm mínútur og hlusta á söguna af því
hvað það hafði kostað Heiðu af lífs- og sálarkröftum að
berjast gegn orkufyrirtækinu sem ætlaði að breyta besta
beitarlandinu hennar í uppistöðulón og hafði að engu
ákveðin orð hennar um að hún mundi ekki selja landið –
þá ákvað ég að skrifa þessa bók. Heiða samþykkti, af því
að hún vildi að nákvæmlega þessi hluti af hennar sögu
færi sem víðast. Ástæðan fyrir því að bókin var skrifuð er
því ein og sú sama hjá höfundi og söguhetju. Og það held
ég kunni góðri lukku að stýra. Úr varð svo ekki aðeins
baráttusagan heldur heill skaftfellskur sveitasinfónn,
þar sem Heiða stjórnar lífinu og verkefnum og hundar
og kettir og ær og lömb og einn geithafur leika lausum
hala gegnum árstíðirnar fjórar. En bókin er að sjálfsögðu
fjórskipt, eftir árstíðum. Og upphaf hverrar árstíðar er
markað ferskeytlu eftir Heiðu. Hér byrjar VOR.
Heiða á hagyrðingamóti
Fólk vorkennir mér oft einstæðingsskapinn, og ég
vorkenni fólki oft hjúskapinn. Það var um haust fyrir
nokkrum árum að nokkrir karlar í sveitinni urðu alveg
arfaillir í smalamennsku, ég stóð utan við þessi læti,
enda að smala á öðrum stað, en varð vitni að því þegar
þeir þeystu bálillir frá gamla brúsapallinum þar sem
rimman átti sér stað í lok dags, fjórhjól og bílar fruss-
uðust í allar áttir í trássi við öll umferðarlög, hundarnir
áttu fótum fjör að launa, mölin ætlaði aldrei að lenda
aftur og svartur reykurinn stóð til himins. Ég fór svona
að hugsa þegar ég damlaði Lux gamla heim með hjólið
á pallinum hvað það hlyti nú að verða skemmtilegt fyrir
eiginkonurnar þegar karlarnir kæmu heim og færu að
lýsa deginum…
Spýta möl og spóla á fákum sínum.
Sprengir alla skala blóðþrýstingur
Ég þegi og glotti og þakka Drottni mínum
Það að vera slíkur einstæðingur.
Eins og má sjá á þessu hagyrðingamóti er Heiða
skemmtilega og skrautlega ritfær, og endalaust skap-
andi þegar að tungumálinu kemur. Það hafði svo sem
ekki farið framhjá mér eftir fimm mínúturnar örlaga-
ríku við eldhúsborðið á Ljótarstöðum að Heiða kunni að
koma fyrir sig orði. En á því sviði hélt hún áfram að koma
mér á óvart, endalaust. Og hún hélt áfram að koma mér
á óvart, hvar sem á var litið – einnig þannig var höfund-
inum haldið gleðilega við efnið.
Það hefur nú verið mín helsta iðja í eitt og hálft ár að
hugleiða Heiðu. Hvernig hún fer að því að vera til, hvað
rekur hana áfram. Úr hverju hún er gerð. Það næsta sem
ég kemst svarinu er að Heiða er eins og íslenska lands-
lagið, það er samsetningin sem gerir útslagið. Þeir eru
víðar en á Íslandi jöklarnir, hverirnir, fallegu fjöllin og
fljótin, en það er hvergi hægt að finna þessa samsetningu
í einu og sama landinu – innan seilingar. Á sama hátt
liggja dugnaðarvargar á lausu, háttvísar konur og hlé-
drægar, stuðboltar, gáfnaljós, fegurðardísir, baneitraðir
húmoristar – en að finna allt þetta og miklu, miklu meira
til í einni og sömu mann-
eskjunni … þeirri sem ger-
ir heldur ekki annað en að
ögra sjálfri sér, yfirvinna eig-
in tregðu – eins og með því
að samþykkja bókina sem
nú hefur verið skrifuð. Bók
um söguhetju sem er miklu
lygilegri en allar þær kven-
hetjur sem höfundur hefur
leikið sér að því að dikta upp
í hálfa öld.
Þögnin um Heiðu rofin
Steinunn Sigurðardóttir,
höfundur bókarinnar um Heiðu
Það hefur nú verið mín helsta iðja
í eitt og hálft ár að hlusta á Heiðu,
konu sem er annars þögul.
Mynd | Rut
Fjalldalabóndinn
Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir
BIRTINGARÁÐGJAFAR
Á BETRI STOFU
Hefur þú góða þekkingu á markaðsfræðum?
Hefur þú menntun og reynslu af vinnu við nýmiðla og aðra miðla?
Við leitum að öflugu fólki til að vinna við framúrskarandi
birtingaráðgjöf; að skemmtilegum starfsfélögum með góðan skilning
á tölfræði, markahópagreiningu og þekkingu á helstu forritum þar
að lútandi. Hafðu samband sem fyrst því við göngum hratt frá málum.
Umsóknarfrestur til 15. desember.
Netfangið er: atvinna@bestun.is
www.bestun.is
562 2700
101 reykjavík
bankastræti 9