Fréttatíminn - 26.11.2016, Síða 54
54 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 26. nóvember 2016
Hljómsveitin Ambátt er ný í
íslensku tónlistarlífi en hún
er samstarfsverkefni lista-
mannsins Pan Thorarensen og
tónskáldsins Þorkels Atlasonar.
Fyrsta plata sveitarinnar heitir
Flugufen og inniheldur sjö ný
lög. Hún er komin út á vínyl og í
stafrænu formi á netinu, meðal
annars á Spotify.
„Ambátt er eiginlega framhald á
verkefni okkar Þorkels frá árinu
2012 þegar við gáfum saman út
plötu,“ segir Pan Thorarensen.
„Ætli megi ekki segja að við séum
að formfesta það sem þá gekk
svona líka vel og gefa því nafn. Við
spiluðum þessa nýju tónlist tvisvar
á Airwaves og það var
mjög hressandi, við
erum með eðal fólk
með okkur. Þarna
eru til dæmis þýski
trompetleikarinn
Sebastian Studn-
itzky og söngkonan
Katrína Mogensen úr
Mammút.“
Pan segir að vinna
við nýju plötuna hafi tekið sinn
tíma. „Ætli það séu ekki þrjú
ár síðan við byrjuðum á henni,
þannig að það er mikil hamingja
með þetta. Við sækjum áhrif víða
og það er kannski dálítið erfitt
að flokka þessa tónlist. Við kom-
um úr raftónlistar geiranum en
Þorkell hefur auðvitað verið með
annan fótinn í „sígildari“ tónlist.
Þetta er tilraunakennt
efni, sumir tala um
póst-rokk og jafnvel
einhver skynvíkkandi
áhrif. Þetta eru margir
stílar og vel blandaður
hrærigrautur,“ segir
Pan og hlær. Hann segir
spennandi tíma fram
undan hjá Ambátt við
að kynna tónlistina á
nýju plötunni fyrir sem flestum.
Stefnt er að útgáfutónleikum í
janúar. | gt
Jólakrukkur
Krukkur safnast saman á heimil-
inu allt árið og í enda árs eru eld-
hússkáparnir fullur af tóm-
um krukkum. Ef þú ert með
töfrafingur í eldhúsinu nýttu
þá þann hæfileika í jólapakk-
ann!
Hér eru nokkrar hugmynd-
ir að ætilegum og ódýrum
hlutum í jólakrukkuna:
• Heimagerðar smákökur.
Sörur eða lakkrístopp-
ar eru jafngildir gulli fyrir
þann sem nennir ekki að baka.
Settu nokkrar af gómsætu jóla-
kökunum þínum í krukku og
gefðu gleðina áfram.
• Döðlupestó og kex. Flestum
finnst gott að eiga eitthvað
gómsætt að bíta í á milli
jóla og nýárs. Fullkom-
in tvenna fyrir þá sem
eru komnir með nóg af
smákökum er heimagert
pestó og kex. Skelltu döðl-
um, hnetum, basil-laufum,
sólþurrkuðum tómötum
og hvítlauk í blandara og úr
verður ljúfengt döðlupestó.
Taktu Ritz kex úr pakkanum og
settu í fallega krukku. Fullkom-
in tvenna.
Ljósmyndir geta átt
sérstakan stað í hjarta
fólks. Minningar sem
festar hafa verið á filmu
sem gott er að horfa á
stöku sinnum þegar
grátt er úti eða þegar
maður er lítill í sér.
Hrefna Björg Gylfadótt-
ir, grafískur hönnuð-
ur og ljósmyndari,
deilir sinni uppá-
halds ljósmynd með
Fréttatímanum.
„Ég rakst á þessa mynd
þegar ég var að fara í
gegnum gamlar „slides“
myndir frá ömmu og afa. Ég sá að
þar var heill hellingur af dýrmæt-
um minningum og ákvað að búa
til ljósmyndabók fyrir þau.“
„Myndirnar voru teknar á filmu
og hafa margar varðveist vel. Mér
finnst þær fallegar vegna þess að
afi notaði aldrei „flash“ og því fá
litirnir að njóta sín í náttúrulegri
birtu. Það er líka áhugavert að
hugsa til þess hvað ljósmyndarinn
þurfti að vanda sig við myndatök-
una, sérstaklega þar sem ég er vön
því að geta smellt af þangað til mér
líkar niðurstaðan. Afi var duglegur
að taka myndir af ömmu og strák-
unum þeirra. Stundum eru mynd-
irnar mjög uppstilltar en oft hefur
honum tekist að fanga fullkomin
augnablik sem sýna tíðarandann
og stemninguna í lífi þeirra fyrir
vestan svo vel.“
„Þessi ljósmynd er í sérstöku
uppáhaldi hjá mér því hún lýsir
ömmu, sprelligosanum og döm-
unni fullkomlega. Á myndinni er
amma með lagningu og á hæla-
skóm hangandi uppi í tré að gant-
ast við strákana sína í Vatnsfirði
á Barðaströnd. Eftir ljósmyndum
ömmu og afa að dæma fóru þau
oft í lautarferðir út í sveit. Amma
breytti þó ekki út af vananum og
klæddist hælaskóm og oft var hún
meira að segja með rúllur.“
„Amma hefur alltaf verið fyrir-
mynd mín því hún kann að leika
sér. Þrátt fyrir háan aldur segir
hún skemmtilega frá liðnum tíma
og því er gaman að geta flett í
gegnum ljósmyndabókina með
henni.“
Uppáhalds ljósmyndin:
Amma á
hælaskóm
hangandi
uppi í tré
Á myndinni sést amma Hrefnu hangandi uppi í tré
að gantast við strákana sína.
Það er hugurinn
sem gildir
Jólin snúast um fjöl-
skylduna og sam-
verustundir. Til þess
að minnka fjárhags-
áhyggjur landans
ákvað Fréttatíminn að
taka saman nokkrar
ódýrar og skemmti-
legar hugmyndir af
ódýrum jólagjöfum.
Geisladiskur
Áttu draum um að verða
söngvastjarna? Láttu drauminn
rætast um jólin. Semdu nokkur
lög eða taktu nokkur uppáhalds
lög eftir átrúnaðargoðið. Taktu
lögin upp í tölvunni og settu á
geisladisk. Geisladiskar eru komn-
ir aftur í tísku.
Ljóðabók úr
prentaranum í
vinnunni
Finndu ljóðskáldið innra með
þér og semdu nokkur
kvæði. Handskrifaðu
þau niður eða ritaðu
í tölvuna og gerðu að
ljóðabók. Gott er að
nýta sér tæki og tól sem
eru manni næst. Prent-
aðu ljóðabókina í prent-
aranum í vinnunni og þá er
enginn prentkostnaður. Núna
ertu orðið ljóðskáld og getur gef-
ið allri fjölskyldunni ný prentaða
ljóðabók eftir þig í jólagjöf.
Mynd eftir
krakkana
Nýttu alla fjölskyldumeðlimi þegar
kemur að því að búa til jólagjafirn-
ar. Láttu börnin setjast við borð og
skelltu jólatónlist á fóninn. Segðu
krökkunum að fara í teiknileik
og þú getur fengið þér blund á
meðan. Gefðu svo teikningarnar
til fjölskyldumeðlima. Hver elskar
ekki að fá persónulega teikningu
frá litlum frænda eða frænku.
Bómullarskífur
Verum vistvæn þessi jólin. Taktu
upp heklunálina og nýttu afgangs
garn sem hefur safnast upp á
heimilinu. Nýttu garnið í að gera
margnota bómullarskífur. Skífurn-
ar geta verið nýttar í að hreinsa
farða af á kvöldin í stað einnota
klúta. Auðvelt í framkvæmd og
fegrar baðherbergi vina og vanda-
manna.
byko.is
GROHE Aquatunes
Bluetooth hátalari.
Hlustaðu á tónlist í sturtunni eða baðinu.
Vatnsheldur hátalari með hleðslustöð.
Frábær í jólapakkann
Ambátt er samstarfsverkefni þeirra Pan Thorarensen og Þorkels Atlasonar.
Ambátt fer á flug