Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 25

Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 25
H Ú R R A F Y R I R H Ö F U N D U N U M ! HUGREKKI – SAGA AF KVÍÐA Hildur Eir Bolladóttir Úr umsögn dómnefndar: „Í bókinni Hugrekki – sögu af kvíða segir Hildur Eir Bolladóttir frá þráhyggju og kvíða sem hún hefur glímt við frá unglingsaldri. Frásögnin er persónuleg en hefur jafnframt almenna skírskotun sem margir geta eflaust tengt við eigin reynsluheim. Saga hennar sýnir hvernig hægt er að takast á við vandann og nýta hann til að hjálpa öðrum.“ RADDIR ÚR HÚSI LOFTSKEYTAMANNSINS Steinunn G. Helgadóttir Úr umsögn dómnefndar: „... Textinn er uppfullur af mennsku og ber vott um næmi fyrir marg- breytileika sálarlífsins. Höfundur leikur sér með ólík sjónarhorn og hversdagsleikinn og fantasían mætast gjarnan með óvæntum hætti. Með hófstilltum lýsingum og flæðandi stíl nær höfundurinn sterkum hughrifum og fangar skáldskapinn í tilverunni.“ ÍSLANDSBÓK BARNANNA Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir Úr umsögn dómnefndar: „... mjög falleg og fræðandi bók um Ísland. Í bókinni er farið í gegnum árstíðirnar og skiptist hún í vor, sumar, haust og vetur. Bókin er ríkulega myndskreytt og eru myndirnar stór hluti bókar- innar. Þær eru hver annarri fallegri, sannkölluð listaverk ... fjölskyldubók sem hentar í raun öllum aldri.“

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.