Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 08.12.2016, Blaðsíða 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016 Árið 2030 á ekki aðeins að vera búið að ná Sjálfbærum þróunar- markmiðum Sameinuðu þjóðanna, heldur stefna Bandaríkjamenn að því að senda sama ár mannað geimfar til plánetunnar Mars. Góðar lausnir í geimnum koma jörðinni til góða Árni Snævarr ritstjorn@frettatiminn.is Sjálfbæru þróunarmark-miðin, sautján að tölu, þykja almennt metn-aðarfull en samkvæmt þeim skal stefnt að því að uppræta jafnt hungur sem fá- tækt, bjarga heiminum frá lofts- lagsbreytingum og tryggja jafn- rétti kynjanna, svo eitthvað sé nefnt. Sumum þykir því nóg í lagt þótt ekki eigi að bjarga geiminum líka, en eins og Oscar Wilde sagði þá göslum við öll í forinni en sum okkar horfa þó til stjarnanna. Einn í hópi hinna síðarnefndu er Doktor Karl Aspelund aðstoðar- prófessor í textílfræðum við Há- skólann á Rhode Island í Banda- ríkjunum. Karl sem er alinn upp á Sel- tjarnarnesi á athyglisverðan náms- og starfsferil að baki, en hann hef- ur starfað jöfnum höndum við leikmynd og búninga í leikhúsi, tölvufræði og nú síðast rannsóknir í textílfræðum. Karl starfar í hópi geimáhugamanna í Bandaríkjun- um sem kallast 100 Year Starship og hefur að markmiðið að mann- að geimskip haldi út fyrir sólkerfið eigi síðar en 2112 en mannað flug til Mars verði fyrsta skrefið. Textílvandamál í geimnum „Það er varla hægt að komast nær því að búa til innilokað vistkerfi en með því að senda áhöfn í margra ára ferð hvort heldur sem er til stöðvar á Mars eða enn lengra í burtu,“ segir Karl Aspelund í við- tali við Norræna fréttabréf UNRIC. Í textílrannsóknum sínum hefur Karl leitast við að skilgreina þau vandamál sem koma upp varðandi textíl og fatnað og finna leiðir til að leysa þau vandamál. „Þetta skiptir sköpum um hvort slíkar geimferðir eru mögulegar. Ef við getum ekki leyst þau vanda- mál sem koma upp varðandi sjálf- bærar ferðir lítils hóps geimfara, þá virðist tómt mál að tala um lengri geimferðir og mannvist utan jarð- ar,“ segir Karl. Hann segist fullviss um að sam- hengi sé milli áætlana um sjálf- bæra þróun og áætlana um ferðir til Mars. „Ég hef komist að raun um það í textíl-rannsóknum mínum að ef við getum leyst slík vandamál fyrir hóp manna í geiminum, getum gert hið sama á jörðu niðri. Ef við get- um fundið leiðir fyrir hóp manna – álíka fjölmennan og lítið þorp - að lifa í aflokuðu vistkerfi á Mars, þá getum við leikið það eftir við sömu aðstæður í Kalahari, Kasakstan, eða Cambridge.” Friðsamleg nýting geimsins Starf Sameinuðu þjóðanna á plánetunni Jörð eru vissulega kunnari en starf samtakanna í geimnum. Engu að síður hafa Sam- einuðu þjóðirnar fjallað um mál- efni geimsins í meira en hálfa öld. Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um málefni geimsins ( The United Nations Office for Outer Space Affairs (UNOOSA)) var stofnuð 1958. Hún er staðsett í Vínarborg og beitir sér fyrir friðsamlegri nýt- ingu geimsins og notkun geimvís- inda og tækni í þágu efnahagslegr- ar og félagslegrar þróunar. Karl Aspelund telur að Sam- einuðu þjóðirnar ættu að styðja við bakið á viðleitni til að nýta vísinda- rannsóknir til að ýta undir sjálf- bæra staðbundna lifnaðarhætti og jafnframt að beita sér fyrir fram- gangi vísindakennslu af ýmsu tagi „Það er varla hægt að komast nær því að búa til innilokað vistkerfi en með því að senda áhöfn í margra ára ferð, hvort heldur sem er til stöðvar á Mars eða enn lengra í burtu,“ segir Karl Aspelund. Mynd | James P. Jones „Það er ekki verið að minnka lífsgæði á jörðinni með því að aðstoða fólk við að finna lausnir í geiminum, heldur er verið að finna lausnir á vandamálum jarðarinnar á sama tíma, og það er einnig mjög mikilvægt,“ í grunnskólum í því skyni að auka hlut vísindaþenkjandi nemenda á heimsvísu.” „Það er ekki verið að minnka lífsgæði á jörðinni með því að að- stoða fólk við að finna lausnir í geiminum, heldur er verið að finna lausnir á vandamálum jarðarinnar á sama tíma, og það er einnig mjög mikilvægt,“ segir Karl. „Ein lausn kemur ekki í stað annara, heldur styðja þær hverja aðra innbyrðis. Eins og Dr. Mae Jemison, forsprakki 100 Year Starship orðaði það: “Það sem er nauðsynlegt til að lifa af í geimn- um, er að sama skapi nauðsynlegt til að lifa af á jörðinni.”” Z b r a u t i r & g l u g g a t j ö l d Faxa fen i 14 - s . 525 8200 - www. z . i s Op i ð v i r ka daga k l . 10 -18 og l auga rdaga k l . 11 -15 ÞÝSK GÆÐAHANDKLÆÐI Í MIKLU ÚRVALI MAGNOLIA OFFICINALIS Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni „Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef ekki sofið betur í mörg ár.“ SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni Hefur verið notað við svefnvandamálum, kvíða og depurð í yfir 2000 ár í Asíu

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.