Fréttatíminn - 08.12.2016, Page 20
20 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 8. desember 2016
Árið 2030 á ekki aðeins að vera búið að ná Sjálfbærum þróunar-
markmiðum Sameinuðu þjóðanna, heldur stefna Bandaríkjamenn
að því að senda sama ár mannað geimfar til plánetunnar Mars.
Góðar lausnir í geimnum
koma jörðinni til góða
Árni Snævarr
ritstjorn@frettatiminn.is
Sjálfbæru þróunarmark-miðin, sautján að tölu, þykja almennt metn-aðarfull en samkvæmt þeim skal stefnt að því
að uppræta jafnt hungur sem fá-
tækt, bjarga heiminum frá lofts-
lagsbreytingum og tryggja jafn-
rétti kynjanna, svo eitthvað sé
nefnt. Sumum þykir því nóg í lagt
þótt ekki eigi að bjarga geiminum
líka, en eins og Oscar Wilde sagði
þá göslum við öll í forinni en sum
okkar horfa þó til stjarnanna.
Einn í hópi hinna síðarnefndu
er Doktor Karl Aspelund aðstoðar-
prófessor í textílfræðum við Há-
skólann á Rhode Island í Banda-
ríkjunum.
Karl sem er alinn upp á Sel-
tjarnarnesi á athyglisverðan náms-
og starfsferil að baki, en hann hef-
ur starfað jöfnum höndum við
leikmynd og búninga í leikhúsi,
tölvufræði og nú síðast rannsóknir
í textílfræðum. Karl starfar í hópi
geimáhugamanna í Bandaríkjun-
um sem kallast 100 Year Starship
og hefur að markmiðið að mann-
að geimskip haldi út fyrir sólkerfið
eigi síðar en 2112 en mannað flug til
Mars verði fyrsta skrefið.
Textílvandamál í geimnum
„Það er varla hægt að komast nær
því að búa til innilokað vistkerfi en
með því að senda áhöfn í margra
ára ferð hvort heldur sem er til
stöðvar á Mars eða enn lengra í
burtu,“ segir Karl Aspelund í við-
tali við Norræna fréttabréf UNRIC.
Í textílrannsóknum sínum hefur
Karl leitast við að skilgreina þau
vandamál sem koma upp varðandi
textíl og fatnað og finna leiðir til að
leysa þau vandamál.
„Þetta skiptir sköpum um hvort
slíkar geimferðir eru mögulegar.
Ef við getum ekki leyst þau vanda-
mál sem koma upp varðandi sjálf-
bærar ferðir lítils hóps geimfara, þá
virðist tómt mál að tala um lengri
geimferðir og mannvist utan jarð-
ar,“ segir Karl.
Hann segist fullviss um að sam-
hengi sé milli áætlana um sjálf-
bæra þróun og áætlana um ferðir
til Mars.
„Ég hef komist að raun um það
í textíl-rannsóknum mínum að ef
við getum leyst slík vandamál fyrir
hóp manna í geiminum, getum gert
hið sama á jörðu niðri. Ef við get-
um fundið leiðir fyrir hóp manna
– álíka fjölmennan og lítið þorp - að
lifa í aflokuðu vistkerfi á Mars, þá
getum við leikið það eftir við sömu
aðstæður í Kalahari, Kasakstan,
eða Cambridge.”
Friðsamleg nýting geimsins
Starf Sameinuðu þjóðanna á
plánetunni Jörð eru vissulega
kunnari en starf samtakanna í
geimnum. Engu að síður hafa Sam-
einuðu þjóðirnar fjallað um mál-
efni geimsins í meira en hálfa öld.
Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna
um málefni geimsins ( The United
Nations Office for Outer Space
Affairs (UNOOSA)) var stofnuð
1958. Hún er staðsett í Vínarborg
og beitir sér fyrir friðsamlegri nýt-
ingu geimsins og notkun geimvís-
inda og tækni í þágu efnahagslegr-
ar og félagslegrar þróunar.
Karl Aspelund telur að Sam-
einuðu þjóðirnar ættu að styðja við
bakið á viðleitni til að nýta vísinda-
rannsóknir til að ýta undir sjálf-
bæra staðbundna lifnaðarhætti og
jafnframt að beita sér fyrir fram-
gangi vísindakennslu af ýmsu tagi
„Það er varla hægt að komast nær því að búa til innilokað vistkerfi en með því
að senda áhöfn í margra ára ferð, hvort heldur sem er til stöðvar á Mars eða enn
lengra í burtu,“ segir Karl Aspelund. Mynd | James P. Jones
„Það er ekki verið
að minnka lífsgæði á
jörðinni með því að
aðstoða fólk við að
finna lausnir í geiminum,
heldur er verið að finna
lausnir á vandamálum
jarðarinnar á sama tíma,
og það er einnig mjög
mikilvægt,“
í grunnskólum í því skyni að auka
hlut vísindaþenkjandi nemenda á
heimsvísu.”
„Það er ekki verið að minnka
lífsgæði á jörðinni með því að að-
stoða fólk við að finna lausnir í
geiminum, heldur er verið að finna
lausnir á vandamálum jarðarinnar
á sama tíma, og það er einnig mjög
mikilvægt,“ segir Karl.
„Ein lausn kemur ekki í stað
annara, heldur styðja þær hverja
aðra innbyrðis. Eins og Dr. Mae
Jemison, forsprakki 100 Year
Starship orðaði það: “Það sem er
nauðsynlegt til að lifa af í geimn-
um, er að sama skapi nauðsynlegt
til að lifa af á jörðinni.””
Z b r a u t i r
& g l u g g a t j ö l d
Faxa fen i 14 - s . 525 8200 - www. z . i s
Op i ð v i r ka daga k l . 10 -18 og l auga rdaga k l . 11 -15
ÞÝSK GÆÐAHANDKLÆÐI
Í MIKLU ÚRVALI
MAGNOLIA
OFFICINALIS
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Hrafnhildur Ólafsdóttir starfar við
sjálboðavinnu í Rauða Kross búðinni
„Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og
ákvað því að prófa Magnolia. Ég tek 2 hylki
á kvöldin um klukkustund fyrir svefn og hef
ekki sofið betur í mörg ár.“
SVEFNVANDI – KVÍÐI – DEPURÐ
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Hefur verið notað við
svefnvandamálum, kvíða og
depurð í yfir 2000 ár í Asíu