Fréttatíminn - 15.12.2016, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Katrín Jakobsdóttir seg-ist ekki vita hvað tek-ur við en fjárlaga-gerðin framundan ætti að draga fram hverjir
geti unnið saman og hverjir ekki.
„Fólk sakar okkur um að vera stíf
á meiningunni en það hefur alltaf
legið fyrir að við vildum auka veru-
lega útgjöld til velferðar-, heilbrigð-
is-, samgöngu- og menntamála.
Við erum að standa vörð um þær
áherslur sem lofuðum fyrir kosn-
ingar. Þessir peningar eru til og það
er hægt að ráðast í þessi verkefni án
þess að skattpína almenning. Það
þarf að vera vilji til að skattleggja
hina efnameiri og nota arðinn af
auðlindunum í almannaþágu.“
Katrín segir að það hafi verið
flókið viðfangsefni að leiða saman
flokka sem eru langt til hægri, eins
og Viðreisn, og aðra sem séu langt
til vinstri í pólitíkinni, eins og VG.
Hún ætli ekki að leiða fram ein-
hverja sökudólga en það hafi fljót-
lega í viðræðunum komið fram
sami málefnaágreiningur og síðast.
Ekki orðagjálfur
Hún segir flokkinn vilja setja fimm
milljörðum meira í heilbrigðiskerfið
en áformað sé í fjárlagafrumvarp-
inu. Þar af fari bróðurparturinn
til Landspítalans, þá þurfi háskól-
arnir tveimur milljörðum króna
meira fjármagn en gert sé ráð fyr-
ir í frumvarpinu en Háskóli Íslands
sé í fyrsta sinn í langa hríð rekinn
með töluverðum halla á næsta ári.
Hún segir að auka þurfi fjármagn til
almannatrygginga, meðal annars
til að tryggja að sambúðarfólk fari
ekki jafn illa út úr breytingum á
breytingum á almannatrygginga-
kerfinu og nú stefni í. Þá gangi ekki
að þingið hafi samþykkt sérstaka
samgönguáætlun þar sem til stóð
að setja 13 til 15 milljarða í mála-
flokkinn án þess að það sjái þess
einhvern stað í frumvarpinu.“
Katrín leggur áherslu á að
áhyggjurnar af þessari stöðu hafi
ekki verið orðagjálfur fyrir kosn-
ingar. „Mestu verðmæti fólksins í
landinu liggja í góðu velferðarkerfi.
Þess vegna er okkur full alvara með
að setja þessi mál í forgang.“
Voru ekki tilbúin í breytingar
Hún segir að auðlegðarskattur, eins
og flokkurinn hafi lagt til, hefði gef-
ið af sér 10 milljarða, þá gæti sykur-
skattur gefið af sér 2 til 3 milljarða
en innleiðing hans sé líka mikilvægt
lýðheilsumál. Viðreisn hafi ekki ver-
ið tilbúin í þessar skattabreytingar.
Þá hafi flokkarnir ekki klárað um-
ræðu um aðrar skattabreytingar
sem flokkurinn hafi viljað, svo sem
nýtt skattþrep fyrir fjármagnstekju-
skatt og hátekjuþrep. Það hafi hins-
vegar verið frekar mikil sátt um
hærri skatta á ferðaþjónustuna
svo sem hærra gistináttagjald og
komugjöld. Og í ljósi umræðunnar
er kannski best að taka fram að við
lögðum aldrei til að hækka almenn-
an tekjuskatt eða virðisaukaskatt á
mat eins og einhverjir hafa haldið
fram eftir þessar viðræður.
Ekki rétt hjá Birgittu
„Mér sýnist nú, því miður, VG hafa
ákveðið að taka sleggju og lemja
sundur brúna sem við náðum að
byggja á milli fólks,“ segir Birgitta
Harla ólíklegt að Sjálfstæðisflokkur
og VG vinni saman
Katrín Jakobsdóttir vísar því á bug að VG hafi gengið erinda útgerðarinnar.
Mynd | Hari
Jónsdóttir, þingf lokksformaður
Pírata, í viðtali við Stundina í gær.
Hún sakar Vinstri græn um að hag-
ræða staðreyndum í umræðunni
og halda því fram VG sé eini flokk-
urinn sem vilji berjast fyrir heil-
brigðiskerfinu. Það sé ekki sann-
gjarnt gagnvart öðrum flokkum
sem tóku þátt í viðræðum flokk-
anna fimm.
„Þetta er ekki rétt hjá Birgittu.
Við höfum einfaldlega bent á að
uppbygging heilbrigðiskerfisins og
menntakerfisins hafi verið grund-
vallaratriði fyrir okkur og þó að all-
ir flokkar hafi verið sammála um að
forgangsraða í þágu þessara mála-
flokka þá var ekki nein lending um
umfang eins og hefur komið ítrekað
fram hjá bæði okkur og talsmönn-
um Viðreisnar og ekkert samkomu-
lag um tekjuöflun.“
Engin ágreiningur um kvóta
Vinstri græn hafa verið sökuð um
að ganga erinda útgerðarinnar og
vinna gegn stjórnarmyndun flokk-
anna fimm til að verja hagsmuni
hennar. Katrín vísar þessu á bug
og segist vilja að útgerðin greiði
mun meira til samfélagsins enda
eigi auðlindarentan að skila sér til
samfélagsins, það sé enginn ágrein-
ingur meðal flokkanna fimm sem
ræddu stjórnarmyndun um að rétt
sé að innkalla aflaheimildir. Vinstri
græn hafi efasemdir um að setja eigi
aflaheimildir á uppboð án nokkurra
takmarkana en eru tilbúin til að
fallast á að hluti aflaheimildanna
verði boðinn upp, þó ekki þannig
að því fylgi nýtingarréttur til allt að
33 ára, eins og hugmyndir Viðreisn-
ar og Bjartrar framtíðar gerðu ráð
fyrir í byrjun.
Þá vilji flokkurinn einnig hækka
veiðigjöldin af þeim kvóta sem
ekki fari á uppboð. Aðalmálið sé
að tryggja að útgerðin greiði meira
til samfélagsins en fái ekki eignar-
rétt yfir auðlindinni en sú staða
getur skapast ef nýtingarrétturinn
sé bundinn í áratugi. Þá vilji flokk-
urinn að hluti af laheimildanna
verði bundinn við landshluta eða
byggðarlög. Alls ekki hafi staðið
á henni að semja um útfærslur í
þessu efni eins og til dæmis svæð-
isbundin útboð og viðræðurnar
hafi ekki slitnað vegna þess að VG
hafi ekki viljað neinar breytingar
í sjávarútvegsmálum. „Það er afar
sérkennilegt og beinlínis rangt ef
niðurstaðan af þessum stjórnar-
myndunarviðræðum er að okk-
ur sé stillt upp sem varðhundum
kvótakerfisins, það var ekki svo
lítið átak að ná því fram að hækka
veiðigjöldin í tíð síðustu ríkisstjórn-
ar og koma á strandveiðum. Þessar
viðræður um sjávarútvegsstefnuna
voru ekki komnar á það stig að við
hefðum sett stólinn fyrir dyrnar.
Sagði óvart satt
Katrín hefur mátt þola fremur
harða og óbilgjarna gagnrýni í fjöl-
miðlum og samfélagsmiðlum eftir
kosningar en hún hefur um skeið
verið vinsælasti stjórnmálamaður
landsins. Þannig vakti það að mikla
hneykslan þegar hún sagðist vera
orðin þreytt á stjórnarmyndunar-
viðræðunum og vildi að gert yrði
hlé yfir helgi. „Einhverjum fannst
þetta mjög hræðilegt, eiginlega
reginhneyksli. Ég var þarna orðin
hundlasin og þegar blaðamaður-
inn spurði mig hvort ég væri þreytt,
svaraði ég óvart alveg frá hjartanu.
Það mælist stundum illa fyrir þegar
stjórnmálamenn segja satt,“ segir
hún hlæjandi og segist hafa fengið
bréf frá fólki úti í bæ vegna málsins.
Konurnar sýndu skilning og sögðu
að ég liti illa út og skipuðu mér að
fara upp í rúm með koníaksstaup
en karlarnir, sem kölluðu sig yfir-
leitt áhugamenn um þjóðmál eða
eitthvað slíkt, voru mjög skýrir
um að þetta væri ekkert annað en
hneyksli. „En að öllu gamni slepptu
þá vona ég að þessi gamaldags karl-
remba sé á útleið úr stjórnmálum,
þar sem bannað er að sýna nokkra
veikleika.“
Megum ekki missa kúlið
Katrín segir harla ólíklegt að VG og
Sjálfstæðisflokkurinn séu að fara
saman í stjórnarmyndunarvið-
ræður enda ólíklegt að Sjálfstæð-
isflokkurinn sé að fara að gefa eftir
í skattlagningu á efnaðasta fólkið.
Hún segir mjög sjaldgæft að slíkir
flokkar geti unnið saman og í ljósi
þeirra áherslumála sem hún var að
lýsa sé varla grundvöllur fyrir slíku
samstarfi.
En hvað ætli taki þá við?
„Ég veit það ekki. Ég hef ekki
upplifað svona andrúmsloft á þingi
síðan ég byrjaði í stjórnmálum. Það
kemur margt til greina, minni-
hlutastjórn, jafnvel þjóðstjórn og
ég útiloka alls ekki að við þurfum
að kjósa fyrr. Það eru átakatímar
og þetta er mikil prófraun fyrir
þingræðið.
Forsetinn er vissulega að reka
á eftir okkur og það er hans hlut-
verk. En ég held að við ættum
ekki að missa kúlið þótt einhverj-
ir gamlir skarfar séu að halda því
fram að þetta hafi vanalega tekið
einn sólarhring þegar þeir voru og
hétu.
Það eru mörg lönd í Evrópu sem
hafa gengið í gegnum langar og erf-
iðar stjórnarkreppur en að lokum
hafa hlutirnir blessast. Við erum
ekki komin hálfa leiðina þangað
þótt við tökum okkur aðeins lengri
tíma í að hugsa næstu leiki.“
Hún viðurkennir að það sé þó
næsta einkennilegt að svo löngu
eftir kosningar sé enn að störf-
um ríkisstjórn með þrjá ráðherra
innanborðs sem séu dottnir út af
þingi. En hvenær er kominn tími
til að örvænta eða bara kjósa að
nýju?
„Ég held að við þurfum að sjá
eitthvað til lands, svona um ára-
mótin. Já áður en Sigurður Ingi Jó-
hannsson flytur áramótaávarp for-
sætisráðherra,“ segir hún og hlær.
Farið með svarið í ferðalagið
Vegahandbókin • Sundaborg 9 • Sími 562 2600
• Vegakort
• Þéttbýliskort
• Ítarlegur hálendiskafli
• 24 síðna kortabók
• Vegahandbókar App
• Þjóðsögur
• Heitar laugar o.fl. o.fl.
GAGNLEG GJÖF
App
Snjalltækjaútgáfa (App)
fylgir bókinni en í
henni er að finna alla
þá staði sem eru í bók-
inni ásamt þúsundum
þjónustuaðila um land
allt.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs, hefur
verið harðlega gagnrýnd eftir að upp úr
viðræðum flokkanna fimm slitnaði. „Þótt
við þykjum vera óbilgjörn og ég sé kannski
ekki vinsælasta manneskjan á þingi núna
þá finn ég engu að síður fyrir stuðningi úr
samfélaginu sem mér þykir vænt um,“ segir
hún í viðtali við Fréttatímann.
Vinstri græn eru tilbúin
til að fallast á að hluti
aflaheimildanna verði
boðinn upp, þó ekki
þannig að því fylgi nýt-
ingarréttur til allt að 33
ára, eins og hugmyndir
Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar gerðu ráð fyrir
í byrjun.