Fréttatíminn - 15.12.2016, Side 26
VERIÐ VELKOMIN Í HEIMSÓKN
Þú finnur jólagjöfina
hjá okkur
Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík 554 6969
lur@lur.is www.lur.is
Hvíldarstólar og -sófar
í miklu úrvali
PILLOWISE
heilsukoddar fyrir alla
Glamour Thermoskönnur
KUBIKOFF
Ruggustólar
TRIPODE lampar
Sweet home hnífaparasett fyrir börn
JACOB stóll frá Calia Italia
Hvíldarsófar í miklu úrvali
Gæðarúm frá Belgíu
FRÁBÆRT ÚRVAL
AF RÚMUM, SÓFUM
OG HVÍLDARSTÓLUM
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
Opið
alla
daga
fram
að jó
lum
Velkom
in í he
imsókn
!
NÝTT
Náttb
orð frá
Arte-M
Áttu v
on á g
estum
?
Mikið
úrva
l
svefn
sófa
MADE INDENMARKgæði í gegn
26 | FRÉTTATÍMINN | Fimmtudagur 15. desember 2016
Gunnar Smári Egilsson
gunnarsmari@frettatiminn.is
Strangt til tekið hefur þú ekki verið að borða mandarínur undanfarna daga. Og þó. Mandarínur eru frá Mandarín, eins og
Kína var stundum kallað. Þær voru
fluttar eftir silkileiðinni frá Kína
til Mið-Austurlanda og þaðan eftir
veldi íslam til Norður-Afríku og allt
til Marokkó. Þar döfnuðu mandar-
ínutré ágætlega, voru ræktuð
áfram en ekki nóg samt til þess
að allir séu sammála um að þessi
tré séu sérstök tegund. En hvort
sem marokkóskar mandarínur eru
í raun mandarínur þá hafa þær
verið kallaðar tangerínur í öðrum
tungumálum en okkar. Nafnið er
dregið af Tanger, hafnarborg Afr-
íkumegin Gíbraltarsunds.
Sjóræningjar
Þegar svona ávextir bárust fyrst
hingað var kannski ekki tilefni
til að gera greinarmun þarna á.
Mandarínurnar voru nógu fram-
andlegar og næstum álíka langt frá
Sauðárkróki til Marokkó og Kína.
Ef undan er skilið fólkið sem Jón
Jónsson og hollenskir sjóræningjar
hans rændu og seldu í Alsírsborg.
Jón þessi hét Jan Janszoon og var
um tíma kosinn forseti sjóræn-
ingjafríríksins í Salé, hafnarvirki
rétt norðan við Rabat, núverandi
höfuðborg Marokkó. Þar þróuðu
sjóræningjar með sér virkt og
beint lýðræði á milli þess sem þeir
sviptu annað fólk borgaralegum
réttindum. Og á þeim tíma voru
þar þegar komnir mandarínuekr-
ur víða og íslensku þrælarnir því
mögulega fyrstu landar okkar sem
brögðuðu mandarínur. En það
kemur þessu máli náttúrlega ekk-
ert við.
En tangerína er sem sé ekki
mandarína, strangt til tekið. Þar á
ofan eru litlar líkur á að mandar-
ínurnar sem þú kaupir úti í búð
séu frá Marokkó. Þær eru líklega
frá Spáni. Og þá Andalúsíu, sem
var náttúrlega Marokkó þar til
fyrir skömmu, nokkur hundruð
árum. Kannski er það vegna þess
að sem enginn hefur nefnt þessar
spænsku mandarínur sérstöku
nafni, til dæmis sevillínur eða
málagínur. Kannski eru þær ekki
enn orðin sérstök tegund.
Bróðir Klement
Ef mandarínan frá Andalús-
íu, sem þú varst að borða,
er án steina þá er hún
ekki mandar-
ína heldur
klement-
ína, nefnd
eftir bróður
Marie-Clé-
ment Rodier
sem ræktaði
upp þetta geldafbrigði með því að
splæsa saman mandarínu og app-
elsínu. Bróðir Klement var ungur
maður sendur af reglu sinni til
Alsír þar sem hann þjónaði á mun-
aðarleysingjahæli. Þar var illa farið
gamalt rjóður með mandarínu- og
appelsínutrjám, sem flest voru lítið
annað en kræklóttar hríslur þegar
bróðir Klement mætti með sína
grænu fingur. Ævistarf hans varð
þessi lundur og niðurstaðan var
afkvæmi mandarínunnar og app-
elsínunnar; geldávöxtur sem var
rjóðari og safaríkari en mandarín-
an og minni, sætari og síður súr en
appelsínan.
Það sem er skrítið við þessa sögu
er ekki sú staðreynd að munkur
hafi breytt sköpunarverki Guðs og
búið til eitthvað sem alls ekki var
til í náttúrunni. Það er mandarín-
an sem er það skrítna í sögunni.
Hún er upprunalega frá náttúr-
unni, varð til án afskipta manns-
ins. Svona meira og minna, auð-
vitað hefur maðurinn valið bestu
trén aftur og aftur og flýtt þannig
þróuninni í átt að meiri sætindum,
lausari berki og hentugri stærð.
Í heimi mandarínunnar vinnur
sætasta stelpan á ballinu.
Frumávextirnir fjórir
Bæði klementínan í sögunni og
appelsínan eru sköpunarverk
mannsins. Appelsína var búin til
með því að krossrækta mandar-
ínu og pómeló. Pómeló er stærri
en mandarínan, græn og bragð-
dauf. Pómeló hefur aldrei almenni-
lega slegið í gegn. Hún er eins og
Bankó, ekki kóngur en faðir kónga.
Appelsínan sækir stærð sína til
pómeló. Og svo tók einhver appel-
sínuna og krossræktaði hana aftur
saman við pómeló og fékk út
grapealdin.
En allt gerðist þetta fyrir svo
löngu síðan að við vitum ekki
hverjum datt þetta í hug eða hver
framkvæmdi. Það er ekki til neinn
Mr. Grape sem fann upp gra-
pealdin eða systir Epli frá Kína
sem fann upp appelsínuna.
Og það á við um svo til alla
sítrusávexti sem
þú borðar. Þetta eru allt meira
og minna sköpunarverk manna.
Fyrir utan mandarínu og pómeló
skaffaði náttúran aðeins formóður
sítrónunnar (sem á flestum tungu-
málum kallast sítróna, á meðan
fólk kallar það sem við nefnd-
um sítrónu lemónu eða eitthvað
ámóta) og fáséðan ávöxt sem kall-
ast papeda. Það er úr þessum fjór-
um höfuðávöxtum sem allt hitt var
ræktað; blóðappelsínur, límónur,
sítrónur, ugly, grape og hvaðeina.
Súkkat er frumsítróna
Fyrir utan mandarínuna rekumst
við sjaldan á þessa höfuðávexti.
Ég man aldrei til þess að hafa séð
papeda. Það sem kemst næst því
er nákominn ættingi, kaffir límóna
sem mikið notuð í tælenskri og
indverskri matargerð; ávöxturinn,
börkurinn og líka blöðin. Pómeló
sést stundum úti í búð og er ágæt-
ur en grófari og bragðminni en þau
afkvæmi sem hann hefur getið af
sér. Sítrónan gamla er kölluð lækn-
ingasítróna á mörgum tungum
og þótti frábært lyf löngu áður en
menn vissu hvað C-vítamínskortur
gat gert fólki. Þessi sítróna sést
sjaldan í búðum í sinni uppruna-
legu mynd, en það er meira en lík-
legt að þú hafir borðað hana sem
súkkat í einhverri jólakökunni.
Undir berkinum er þykkt hvítt
hold sem verður að súkkati sé það
soðið niður í sykri.
Sítrusávextirnir hafa þannig
ýmis ráð til að læða sér í jólahaldið
hér í norðrinu. Tangerínur eru
hluti jólanna vegna þess að upp-
skerutíminn er seint á haustin og
í byrjun vetrar á norðurströnd
Afríku. Súkkatið er sítrusávöxtur
sem hefur verið geymdur til jól-
anna, jólakakan er í raun sítrónu-
og appelsínukaka með þurrkuðum
vínberjum; minning frá sumrinu
sem var.
Nú nálgast jólin og lifnar yfir öllum. Og
fátt er glaðara en mandarína. Nema
ef vera skyldi mandarínupartí í kassa.
Trékassinn er endurminning frá
þeim tíma að ávextir voru fágæti. En
mandarínan sjálf er skyndibiti frá
Guði, einn fárra sítrusávaxta sem
ekki er sköpunarverk mannsins.
Allt sem þú vilt vita
um mandarínur en
þorðir ekki að spyrja
Mandarínur geta breytt
eldhúsborði í jólahald.