Fréttatíminn - 06.01.2017, Page 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 6. janúar 2017
Breytingar fram undan
Undanfarin misseri hefur velferð
dýra verið rædd í kjölfar frétta af
búum og býlum þar sem ekki hefur
verið vel staðið að aðbúnaði dýra.
Það hefur varla farið fram hjá nein-
um að umræðan um grænmetisfæði
og vegan-lífsstíl er orðin mjög há-
vær hér á landi og segir Jón það ekki
koma sér á óvart, miðað við það
sem á undan er gengið. Aðspurður
segist hann líka hafa stundað sína
eigin persónulegu naf laskoðun
varðandi kjötát. „Undanfarin ár hef
ég reynt að sneiða hjá vissum kjöt-
vörum en leyft mér að borða aðr-
ar. Ég hef ekki farið út í það enn að
sneiða algjörlega hjá kjöti en ég er
að velta því fyrir mér.“
„Rétt eins og þjóðirnar í kringum
okkur þá stöndum við frammi fyr-
ir miklum breytingum. Við erum
að horfa upp á mikla iðnvæðingu
í landbúnaði og umhverfisvanda-
mál aukast stöðugt. Við komumst
ekkert hjá því að velta þessu fyrir
okkur. Við verðum að vera sveigj-
anleg í mataræði og tilbúin til að
breyta um lífsstíl. Það blasir við að
það þurfa að vera breytingar. Við
þurfum að hugsa vel um það hvern-
ig landbúnað við viljum hafa hér á
landi og halda áfram að velta þess-
um málum fyrir okkur.“
Dýraverndunarlöggjöf flestra landa
í dag byggir á hugmyndum breska
heimspekingsins Jeremy Bentham
(1748-1832) en hann hélt því fram að
meginspurningin þegar kemur að
framkomu okkar við dýr sé ekki hvort
þau hafi rökhugsun, heldur hvort þau
finni til.
Sendill flytur hundakjöt í Hanoi héraði í Víetnam í mars 2015. . Vöruflutningabílar fullir af svínum, kindum og hænsnum er
ekki óalgeng sjón á vegum í Vestur-Evrópu en þegar við sjáum hunda í stað hefðbundinna húsdýra bregður okkur.
Animal Liberation eftir Peter Singer (1946) kom út árið 1975 og olli straumhvörfum. Þar gagnrýnir Singer framkomu okkar
í garð dýra út frá hugmyndum sínum um tegundafordóma, þ.e. að rétturinn til lífs sé háður því hvaða tegund það sé sem um
er rætt. Í bókinni líkir hann yfirráðum mannsins yfir öðrum tegundum á jörðinni við þrælahald.
Franski heimspekingurinn René
Decartes (1596-1659) á eina frægustu
setningu heimspekisögunnar, Cogito
ergo sum, eða Ég hugsa og þess vegna
er ég. Hann taldi dýr aftur á móti ekki
hugsa og þar af leiðandi gætu þau ekki
skynjað sársauka.
Það hefur alltaf verið manninum ofarlega í huga að
finna réttlætingar og rök fyrir því að borða og nota dýr.
8.499 kr.
DUBLIN f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
7.499 kr.
EDINBORG f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
6.999 kr.
STOKKHÓLMUR f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
9.999 kr.
KANARÍ f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
14.999 kr.
ALICANTE f rá
T í m a b i l : m a í 2 0 1 7
19.999 kr.
SALZBURG f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7
WOW
takk!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.