Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017 Opið um helgina Opið til kl. 18 virka daga Laugardag: kl. 11-17 Sunnudag: kl. 12-18 Íslensk ungmenni eru lyfjuð og líður illa Geðheilbrigði Íslenskar stúlkur á aldrinum 15 til 24 ára taka ríflega fjórum sinnum meira af þung- lyndislyfjum en jafnaldrar þeirra í Danmörku. Sjálfsmorðstíðni drengja á aldrinum 10 til 19 ára er hvergi hærri á Norðurlöndum en á Íslandi. Enginn hópur tekur eins mikið af ADHD-lyfjum og íslenskir drengir á aldrinum 10 til 14 ára. Hjálmar Friðriksson hjalmar@frettatiminn.is Allt þetta kemur fram í nýrri skýr- slu Norrænu heilbrigðistölfræði- nefndarinnar sem ber saman heil- brigðismál Norðurlanda. Skýrslan dregur upp dökka mynd af geð- heilbrigðismálum á Íslandi í sam- anburði við önnur Norðurlönd. Ísland sker sig skýrt frá öðrum Norðurlöndum í nær öllum flokk- um sem varða geðheilbrigði með- an tölfræði í öðrum flokkum er í takt við tölfræði á Norðurlöndum. Athygli vekur að neysla Íslendinga á lyfjum sem tengjast ekki and- legum kvillum er mjög sambæri- leg við neyslu á Norðurlöndum. Einungis tvær undantekningar eru á því, Íslendingar nota meira af sýklalyfjum og magasárslyfjum en aðrir Norðurlandabúar. Þunglyndislyfjamet Íslendingar nota helmingi meira en aðrir Norðurlandabúar af róandi lyfinu benzodiazepine og afleiðum þess. Lyfið er mjög ávanabindandi og notað gegn kvíða. Íslendingar slá líka öll met í notkun á róandi lyfjum og svefnlyfjum en til sam- anburðar taka Íslendingar fimm sinnum meira af slíkum lyfjum en Danir. Ekkert land á Norðurlöndum kemst nálægt neyslu Íslendinga á ýmsum tegundum þunglyndislyfja. Neysla á slíkum lyfjum hefur aukist ár frá ári síðustu tíu ár. Í dag neyta Íslendingar um helmingi meira af slíkum lyfjum en Finnar. Íslensk ungmenni taka margfalt meira af þunglyndislyfjum en jafnaldrar þeirra. Íslensk börn, yngri en 14 ára, taka um tuttugu sinnum meira af slíkum lyfjum en jafnaldrar. Notkun íslenskra kvenna á þung- lyndislyfjum er áberandi mikil og eykst með aldri. Íslenskar stúkur, á aldrinum 15 til 24 ára, taka meira af þunglyndislyfjum en aldraðar konur á öðrum Norðurlöndum, en sá hópur tekur yfirleitt mest af slík- um lyfjum. Styttri dvöl á geðdeild Sjálfsmorðstíðni á Íslandi er orðin svipuð og í Finnlandi, sem hef- ur lengst af haft langhæstu tíðni Norðurlanda. Munurinn á löndun- um tveimur er þó sá að tíðnin er að falla í Finnlandi meðan hér á landi er hún að aukast örlítið. Helsti munurinn á Finnlandi og Íslandi er að hér er sjálfsmorðstíðni tals- vert hærri en hjá yngstu körlunum og hjá eldri borgurum af báðum kynjum. Íslendingar dvelja styst allra á geðdeild þó innlagnir séu samb- ærilegar og á öðrum Norðurlönd- um. Hér á landi er meðaldvöl á geð- deild um 11 dagar meðan í Noregi er meðaldvöl 21 dagur og í Finn- landi 35 dagar. Meðaldvöl í Svíþjóð og Danmörku er þó einungis örlítið lengri en á Íslandi. Rétt er að taka fram að íslenska tölfræðin nær einungis til þeirra sem eru minna en þrjá mánuði á geðdeild sem gæti skekkt myndina. Einungis í Færeyj- um eru færri innlagnir á geðdeild en á Íslandi. Líkt og hefur ítrekað komið fram eru frávísanir frá geð- deild algengar á Íslandi. Ísland sker sig jafnframt úr í neyslu á ADHD-lyfjum, sem er um- talsvert meiri hér í öllum aldurs- flokkum, óháð kyni, miðað við önnur Norðurlönd. Hjá ungling- um af báðum kynjum er neyslan helmingi meiri en í Svíþjóð, sem kemst næst okkur í neyslu á slík- um lyfjum. Um 13 prósent allra ís- lenskra drengja, á aldrinum 10 til 14 ára, taka einhvers konar ADHD- -lyf. Það er margfalt meira en tíðk- ast á öðrum Norðurlöndum en Sví- þjóð kemst næst Íslandi með um 5 prósent hlutfall. Skortur á úrræðum Ólafur Einarsson, verkefnisstjóri lyfjamála hjá Landlækni, segir að það sé helst tvennt sem skýri þessa tölfræði, annars vegar skortur á úrræðum við geðræn- um vandamálum og offramboð á geðlyfjum. „Það er alveg ljóst að þjónustan hérna virðist vera öðru- vísi en er annars staðar. Við höf- um gert athugasemdir við þetta og þetta stendur á þeim læknum sem eru að ávísa þessum lyfjum. Okkar tilfinning er að sé of mikið aðgengi að þessum lyfjum,“ seg- ir Ólafur. Hann bendir á að einn augljós munur á Íslandi og öðrum löndum sé að á Íslandi mega allir læknar ávísa ADHD-lyfjum meðan á öðrum Norðurlöndum séu það einungis sérfræðingar sem geta ávísað slíkum lyf. Hann vonast til að með tilkomu lyfjagagnagrunns á síðasta ári muni ávísun þessa lyf- ja minnka. Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnis- stjóri hjá Landlækni og geðhjúkr- unarfræðingur, tekur undir með Ólafi og segir að aðgengi að með- ferð við andlegum erfiðleikum sé ekki nægilega gott á Íslandi. „Það er komin ný geðheilsustefna og eitt af því sem var talað um að bæta er að fjölga geðheilsustöðvum þannig að á höfuðborgarsvæðinu væru þrjár stöðvar. Það er fullt af góðri þjónustu núna en fólk verður að hafa mikið fyrir því að leita eftir henni og það er það sem við verð- um að skoða. Og hún kostar heilan helling, það er bara þannig. Síðan verðum við að skoða hvað við get- um gert fyrir börn og ungmenni, eins og BUGL-ið, þannig að allir séu að róa í sömu átt,“ segir Salbjörg. Sólarhringsþjónusta nauðsynleg Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður Pírata, vakti mikla athygli á dögun- um þegar hann tjáði sig opinskátt um þunglyndi sitt og hefur sagst ætla að leggja áherslu á úrbætur í geðheilbrigðiskerfinu. Hann seg- ir að málið snúist fyrst og fremst um skort á fjármagni og aðstöðu. „Fólk er ekki lagt inn nema vera í bráðri lífshættu og það mat getur verið mjög erfitt þegar viðtalið er stutt og læknirinn þekkir kannski illa sögu viðkomandi, það fylgir þessum sjúkdómi að sjúklingur- inn á mjög erfitt með að meta eig- in hættu sjálfur og ef hann ætlar virkilega að fyrirfara sér er óvíst að hann segi hreinskilið frá því. Þar fyrir utan er engin sólarhrings- þjónusta, fólk sem lendir í slæmu kasti þarf jafnvel að fara á slysó og bíða þar upp á von og óvon. Það myndi strax róa mig töluvert ef ég vissi að fólk fengi strax aðstoð hvenær sem er, ég hef átt þrjá vini sem fyrirfóru sér og allir gerðu það að nóttu til,“ segir Gunnar Hrafn. Ólafur Einarsson, verk efnisstjóri lyfja- mála hjá Landlækni, segir að það sé helst tvennt sem skýri þessa tölfræði, annars vegar skortur á úr- ræðum við geðrænum vandamálum og of- framboð á geðlyfjum. Fólk sem lendir í slæmu kasti þarf jafnvel að fara á slysó og bíða þar upp á von og óvon, segir Gunnar Hrafn Jónsson. Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðing- ur, segir að aðgengi að meðferð við andlegum erfiðleikum sé ekki nægilega gott á Íslandi. Ekkert land á Norðurlöndum kemst nálægt neyslu Íslendinga á ýmsum tegundum þunglyndislyfja. Neysla á slíkum lyfjum hefur aukist ár frá ári síðustu tíu ár. Mynd | Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.