Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017 Guðni Tómasson gudni@frettatiminn.is Þrátt fyrir að vera á ólík-um aldri og með ólíkan bakgrunn ná bandarísku tónlistarmennirnir Wa-dada Leo Smith og Vijay Iyer vel saman. Þetta eru forvitni- legir menn, leitandi og ljóngáfaðir. Wadada, sem upphaflega hét Ishmael Leo Smith, fæddist árið 1941 í bandaríska suðrinu, í bænum Leland í Mississippi, bæ sem annars er þekktastur fyrir að vera fæðingarbær frosksins Kermit. Smith lék í lúðrasveitum og rythma- og blústónlist áður en frjálsari tónlist tók yfir hugann. Í upphafi áttunda áratugarins hófst tilraunakenndur ferill sem getið hefur af sér ýmis verkefni, til dæmis Gullna kvartettinn svokall- aða sem tónlistarmaðurinn hefur leitt til margra ára í ýmsum mynd- um. Það var inn í þá sveit sem Smith fékk píanóleikarann Vijay Iyer fyrst til að leika með sér. Smith tók rastafaritrú á níunda áratugnum og tók um leið upp nafnið Wadada sem merkir ást. Hann hefur kennt tónlist við Cal Arts listaháskólann, jafnt djass og tónlist fjarlægra heimshorna, til dæmis hefur hann smíðað hljóðfæri sem fæstir kunna að nefna. Útlitið skemmir ekki fyrir dulúðinni, með rastafari flétturnar þykku minnir hann helst ljón með þykkan makka, enda heitir hann auðvitað Leo að millinafni. Wadada Leo Smith hefur nokkrum sinnum komið til Íslands með hljóðfæri sitt og leikið með ís- lenskum tónlistarmönnum. Sjálflærður vísindamaður Vijay Iyer er sonur indverskra innflytjenda, fæddur árið 1971 og ólst upp í New York fylki. Hann lærði ungur á fiðlu en á píanó eftir eyranu og er að mestu leyti sjálf- lærður á það. Miklir hæfileikar í stærðfræði nýttust vel. Iyer er með háskólagráðu í stærð- og eðlis- fræði frá Yale háskóla og doktors- gráðu frá eðlisfræðideild Berkeley í snúnum tónvísindafræðum. Vijay Iyer er hlaðinn verðlaun- um. Djasstímaritið Down Beat valdi hann þannig djasspíanista ársins 2014 og djasstónlistarmann ársins 2015. Hann er í dag prófess- or í tónlist við Harvard háskóla. Með bakgrunn sinn í vísindum hugsar Iyer heilmikið um tíma og rúm í tónlistarsköpun sinni og þar ná þeir Wadada Leo Smith vel saman. Yngri maðurinn lýsir þeim eldri sem hetju sinni, vini og kennara. Hann hefur sagt að þegar Wadada spili gerist eitthvað fornt og dulmagnað í rýminu sem tónarnir fylla. Hver salur sem þeir koma fram í er einstakur, endur- kast rýmisins hefur mikil áhrif á lifandi spunatónlist og karakter hljóðfærisins sem Iyer situr við í hvert sinn gerir það líka. Ýmist eru það píanóin í tónlistarsölunum eða hljómborð og tölvubúnaður. Kosmísk kerfi Nýjasta samstarf þeirra Vijay og Wadada er plata sem þeir gáfu út hjá ECM útgáfunni og heitir upp á íslensku Kosmísk hrynjandi í hverju slagi. Hjarta plötunnar er svíta sem tileinkuð er indversku myndlistarkonunni, Nasreem Mohamedi, sem hefur eftir dauða sinn árið 1990 vakið mikla athygli á Vesturlöndum, til dæmis setti Metropolitan safnið í New York upp sýningu með verkum hennar í fyrra. Nótur og tónhugmyndir eru grunnur að kerfum sem tónlist- armennirnir smíða á sviðinu, en hver flutningur á tónlist þeirra fé- laga er einstakur. Frelsið er algjört og það óvænta er velkomið. Þó tónlistin virki á suma laus í rásinni segir yngri maðurinn að hvert hljóð sem sá eldri sendi frá sér sé úthugsað til að þjóna tónsmíðinni sem verður til í hvert sinn upp á nýtt, alveg einstök. Tveir ólíkir menn sameinast í leit að rétta andblænum og samruna sínum í tónlist. Annar þeirra á að baki langan feril sem trompetleikari í framúrstefnusveit bandarískra djasstónlistarmanna, hinn er tónlistarmaður og stærðfræðingur og einn forvitnilegasti djasspíanisti samtímans. Þeir heita Wadada Leo Smith og Vijay Iyer og ætla spinna tóna sína á tónleikum í Hörpu á mánudag. Vísindalegur bakgrunnur Vijay Iyer hefur haft áhrif á tónlist hans, enda stutt milli stærðfræði og tónlistar. Myndir | Getty Alfrjálsir og með kosmíska krafta Nýjasta plata þeirra Wadada og Vijay heitir A Cosmic Rhythm With Each Stroke. Erlendir gagnrýnendur tóku plötunni vel á síðasta ári. Wadada Leo Smith heldur í dag úti Gullna kvartettin- um, Silfur sveitinni og hljómsveitinni Organic. Aust- ræn speki hefur mikil áhrif á hugmyndaheim Wadada og nálgun hans að tónlistinni. 13.999 kr. MONTRÉAL f rá T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7 16.999 kr. TENERIFE f rá T í m a b i l : j a n ú a r - m a rs 2 0 1 7 7.999 kr. BARCELONA f rá T í m a b i l : m a rs 2 0 1 7 16.999 kr. LOS ANGELES f rá T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7 16.999 kr. SAN FRANCISCO f rá T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7 14.499 kr. BOSTON f rá T í m a b i l : j a n ú a r - m a í 2 0 1 7 Vertu memm! *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.