Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 44
Borðaðu rétt eftir æfingu Það er ekki nóg að púla eins og brjálæðingur í ræktinni til að ná árangri. Hollt og næringarríkt Passaðu hitaeiningarnar en máltíðin verður þó að vera næringarrík. Þ að er nauðsynlegt að borða eftir æfingu til að fá sem mest út úr púlinu. En ekki borða bara eitthvað. Það er mikilvægt að borða rétt og gera það sem fyrst. Hér eru nokkur ráð sem gott er að fylgja til að fá sem mest út úr æfingunni og gefa líkamanum þá næringu sem hann þarfnast. Borðaðu fljótt Ef þú hefur tekið erfiða æfingu þá skaltu reyna að borða eins fljótt og þú getur. Vöðv- ar, sinar og bein verða fyrir miklu álagi við æf- ingar og lík- aminn nýtir alla þá orku sem hann finn- ur. Þetta snýst því um að gefa líkamanum aftur það sem hann tapaði. Þannig verður árangurinn mestur. Ef líkaminn nær ekki að jafna sig al- mennilega eftir æfinguna og fá þá orku sem hann þarfnast eru meiri líkur á að hann verði veikari fyrir á næstu æfingu. Þannig aukast lík- ur á meiðslum. Ekki bara prótein Prótein er mikilvægt til að byggja upp vöðva og því þarf máltíðin eftir æfingu að innihalda ríkulegt magn af því. En líkaminn þarf líka góða fitu og ýmis næringarefni. Góð máltíð gæti samanstaðið af kínóa, sætum kartöflum, baunum og eggjum, eða góðum smoothie með próteini og olíu. Borðaðu hreina fæðu Hinn gamalkunni frasi, þú ert það sem þú borðar, gæti ekki verið sannari. Líkaminn notar næring- arefnin úr fæðunni til að byggja sig upp. Hann er stanslaust að bæta og laga eitthvað til að reyna að halda sér heilbrigð- um. Best er því að neyta eins hreinn- ar fæðu og hægt er. Jafnvel þótt þú sért alltaf að æfa og brennir þúsund- um kalóría á dag, reyndu þá að forða mjög unninn mat, eins og skyndibita og unnar kjötvörur. Hrein fæða er betra byggingarefni fyrir líkamann, frumur hans virka betur og það dregur úr líkum á ótímabærri öldrun, meiðslum og sjúkdómum. Passaðu hitaeiningarnar Ef markmiðið er að léttast þá er mikilvægt að borða ekki of mik- ið eftir æfinguna, en samt gæta „Ef líkaminn nær ekki að ja fna sig almennileg a eftir æfinguna og f á þá orku sem hann þarf nast eru meiri líkur á a ð hann verði veikari fyrir á næstu æfingu. Þanni g aukast líkur á meiðslu m.“ þess að máltíðin sé næringarrík. Meðalkona brennir tæplega 500 hitaeiningum á klukkutímaæfingu, en stór smoothie getur innihaldið svipað magn af hitaeiningum. Ef þú ert að fara að borða máltíð inn- an við klukkutíma eftir æfingu þá þarftu ekki orkustykki eða annað snakk strax eftir æfinguna. Drekktu nóg Ef þú svitnar mikið á æfingunni og ef þú æfir lengur en klukkutíma í einu þá getur verið gott fyrir þig að fá þér íþróttadrykk til viðbótar við vatnið sem nauðsynlegt er að drekka, bæði meðan á æfingunni stendur og eftir hana. Íþrótta- drykkir eru þróaðir til að koma í veg fyrir ofþornun og innhalda jafnframt nauðsynleg sölt. Góð regla er að drekka um tvo bolla af vökva tveimur tímum fyrir æfingu, aðra tvo bolla 15 mínútutum áður og svo hálfan bolla á 15 mínútuna fresti, meðan á æfingunni stendur. Eftir æfingu er gott að miða við að drekka tvo bolla á hver 500 grömm sem þú léttist um á æf- ingunni. 8 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2016HEILSUTÍMINN BLAÐAUKI þann 12. janúar auglysingar@frettatiminn.is gt@frettatiminn.is 5313310
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.