Fréttatíminn - 07.01.2017, Blaðsíða 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017
Opið um helgina
Opið til kl. 18 virka daga
Laugardag: kl. 11-17
Sunnudag: kl. 12-18
Íslensk
ungmenni
eru lyfjuð
og líður illa
Geðheilbrigði Íslenskar stúlkur á
aldrinum 15 til 24 ára taka ríflega
fjórum sinnum meira af þung-
lyndislyfjum en jafnaldrar þeirra
í Danmörku. Sjálfsmorðstíðni
drengja á aldrinum 10 til 19 ára
er hvergi hærri á Norðurlöndum
en á Íslandi. Enginn hópur tekur
eins mikið af ADHD-lyfjum og
íslenskir drengir á aldrinum 10
til 14 ára.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@frettatiminn.is
Allt þetta kemur fram í nýrri skýr-
slu Norrænu heilbrigðistölfræði-
nefndarinnar sem ber saman heil-
brigðismál Norðurlanda. Skýrslan
dregur upp dökka mynd af geð-
heilbrigðismálum á Íslandi í sam-
anburði við önnur Norðurlönd.
Ísland sker sig skýrt frá öðrum
Norðurlöndum í nær öllum flokk-
um sem varða geðheilbrigði með-
an tölfræði í öðrum flokkum er í
takt við tölfræði á Norðurlöndum.
Athygli vekur að neysla Íslendinga
á lyfjum sem tengjast ekki and-
legum kvillum er mjög sambæri-
leg við neyslu á Norðurlöndum.
Einungis tvær undantekningar
eru á því, Íslendingar nota meira
af sýklalyfjum og magasárslyfjum
en aðrir Norðurlandabúar.
Þunglyndislyfjamet
Íslendingar nota helmingi meira en
aðrir Norðurlandabúar af róandi
lyfinu benzodiazepine og afleiðum
þess. Lyfið er mjög ávanabindandi
og notað gegn kvíða. Íslendingar
slá líka öll met í notkun á róandi
lyfjum og svefnlyfjum en til sam-
anburðar taka Íslendingar fimm
sinnum meira af slíkum lyfjum en
Danir.
Ekkert land á Norðurlöndum
kemst nálægt neyslu Íslendinga á
ýmsum tegundum þunglyndislyfja.
Neysla á slíkum lyfjum hefur aukist
ár frá ári síðustu tíu ár. Í dag neyta
Íslendingar um helmingi meira af
slíkum lyfjum en Finnar. Íslensk
ungmenni taka margfalt meira af
þunglyndislyfjum en jafnaldrar
þeirra. Íslensk börn, yngri en 14
ára, taka um tuttugu sinnum meira
af slíkum lyfjum en jafnaldrar.
Notkun íslenskra kvenna á þung-
lyndislyfjum er áberandi mikil og
eykst með aldri. Íslenskar stúkur,
á aldrinum 15 til 24 ára, taka meira
af þunglyndislyfjum en aldraðar
konur á öðrum Norðurlöndum, en
sá hópur tekur yfirleitt mest af slík-
um lyfjum.
Styttri dvöl á geðdeild
Sjálfsmorðstíðni á Íslandi er orðin
svipuð og í Finnlandi, sem hef-
ur lengst af haft langhæstu tíðni
Norðurlanda. Munurinn á löndun-
um tveimur er þó sá að tíðnin er að
falla í Finnlandi meðan hér á landi
er hún að aukast örlítið. Helsti
munurinn á Finnlandi og Íslandi
er að hér er sjálfsmorðstíðni tals-
vert hærri en hjá yngstu körlunum
og hjá eldri borgurum af báðum
kynjum.
Íslendingar dvelja styst allra á
geðdeild þó innlagnir séu samb-
ærilegar og á öðrum Norðurlönd-
um. Hér á landi er meðaldvöl á geð-
deild um 11 dagar meðan í Noregi
er meðaldvöl 21 dagur og í Finn-
landi 35 dagar. Meðaldvöl í Svíþjóð
og Danmörku er þó einungis örlítið
lengri en á Íslandi. Rétt er að taka
fram að íslenska tölfræðin nær
einungis til þeirra sem eru minna
en þrjá mánuði á geðdeild sem gæti
skekkt myndina. Einungis í Færeyj-
um eru færri innlagnir á geðdeild
en á Íslandi. Líkt og hefur ítrekað
komið fram eru frávísanir frá geð-
deild algengar á Íslandi.
Ísland sker sig jafnframt úr í
neyslu á ADHD-lyfjum, sem er um-
talsvert meiri hér í öllum aldurs-
flokkum, óháð kyni, miðað við
önnur Norðurlönd. Hjá ungling-
um af báðum kynjum er neyslan
helmingi meiri en í Svíþjóð, sem
kemst næst okkur í neyslu á slík-
um lyfjum. Um 13 prósent allra ís-
lenskra drengja, á aldrinum 10 til
14 ára, taka einhvers konar ADHD-
-lyf. Það er margfalt meira en tíðk-
ast á öðrum Norðurlöndum en Sví-
þjóð kemst næst Íslandi með um 5
prósent hlutfall.
Skortur á úrræðum
Ólafur Einarsson, verkefnisstjóri
lyfjamála hjá Landlækni, segir
að það sé helst tvennt sem skýri
þessa tölfræði, annars vegar
skortur á úrræðum við geðræn-
um vandamálum og offramboð á
geðlyfjum. „Það er alveg ljóst að
þjónustan hérna virðist vera öðru-
vísi en er annars staðar. Við höf-
um gert athugasemdir við þetta
og þetta stendur á þeim læknum
sem eru að ávísa þessum lyfjum.
Okkar tilfinning er að sé of mikið
aðgengi að þessum lyfjum,“ seg-
ir Ólafur. Hann bendir á að einn
augljós munur á Íslandi og öðrum
löndum sé að á Íslandi mega allir
læknar ávísa ADHD-lyfjum meðan
á öðrum Norðurlöndum séu það
einungis sérfræðingar sem geta
ávísað slíkum lyf. Hann vonast til
að með tilkomu lyfjagagnagrunns
á síðasta ári muni ávísun þessa lyf-
ja minnka.
Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnis-
stjóri hjá Landlækni og geðhjúkr-
unarfræðingur, tekur undir með
Ólafi og segir að aðgengi að með-
ferð við andlegum erfiðleikum sé
ekki nægilega gott á Íslandi. „Það
er komin ný geðheilsustefna og eitt
af því sem var talað um að bæta er
að fjölga geðheilsustöðvum þannig
að á höfuðborgarsvæðinu væru
þrjár stöðvar. Það er fullt af góðri
þjónustu núna en fólk verður að
hafa mikið fyrir því að leita eftir
henni og það er það sem við verð-
um að skoða. Og hún kostar heilan
helling, það er bara þannig. Síðan
verðum við að skoða hvað við get-
um gert fyrir börn og ungmenni,
eins og BUGL-ið, þannig að allir séu
að róa í sömu átt,“ segir Salbjörg.
Sólarhringsþjónusta nauðsynleg
Gunnar Hrafn Jónsson, þingmaður
Pírata, vakti mikla athygli á dögun-
um þegar hann tjáði sig opinskátt
um þunglyndi sitt og hefur sagst
ætla að leggja áherslu á úrbætur
í geðheilbrigðiskerfinu. Hann seg-
ir að málið snúist fyrst og fremst
um skort á fjármagni og aðstöðu.
„Fólk er ekki lagt inn nema vera í
bráðri lífshættu og það mat getur
verið mjög erfitt þegar viðtalið er
stutt og læknirinn þekkir kannski
illa sögu viðkomandi, það fylgir
þessum sjúkdómi að sjúklingur-
inn á mjög erfitt með að meta eig-
in hættu sjálfur og ef hann ætlar
virkilega að fyrirfara sér er óvíst að
hann segi hreinskilið frá því. Þar
fyrir utan er engin sólarhrings-
þjónusta, fólk sem lendir í slæmu
kasti þarf jafnvel að fara á slysó og
bíða þar upp á von og óvon. Það
myndi strax róa mig töluvert ef
ég vissi að fólk fengi strax aðstoð
hvenær sem er, ég hef átt þrjá vini
sem fyrirfóru sér og allir gerðu það
að nóttu til,“ segir Gunnar Hrafn.
Ólafur Einarsson,
verk efnisstjóri lyfja-
mála hjá Landlækni,
segir að það sé helst
tvennt sem skýri
þessa tölfræði, annars
vegar skortur á úr-
ræðum við geðrænum
vandamálum og of-
framboð á geðlyfjum.
Fólk sem lendir í
slæmu kasti þarf
jafnvel að fara á slysó
og bíða þar upp á von
og óvon, segir Gunnar
Hrafn Jónsson.
Salbjörg Bjarnadóttir,
geðhjúkrunarfræðing-
ur, segir að aðgengi
að meðferð við
andlegum erfiðleikum
sé ekki nægilega gott
á Íslandi.
Ekkert land á Norðurlöndum kemst nálægt neyslu Íslendinga á ýmsum tegundum þunglyndislyfja. Neysla á slíkum lyfjum
hefur aukist ár frá ári síðustu tíu ár. Mynd | Hari