Fréttatíminn - 07.01.2017, Page 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 7. janúar 2017
Samfélagslegar afleiðingar lokun-
ar útgerðarfélagsins Þórsbergs á
Tálknafirði eru miklar. Verslunin
í þorpinu lokar um mánaðamótin.
Íbúarnir hafa áhyggjur af því að
byggðin muni leggjast af.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Hluthafar útgerðarfélagsins Þórs-
bergs á Tálknafirði seldu 1200
tonna kvóta sinn og fiskiskipið Kóp
fyrir rúmlega 3.4 milljarða króna
í lok sumarsins 2015. Missti þorp-
ið þar með sinn stærsta vinnuveit-
anda sem greiddi 60 starfsmönnum
nærri 440 milljónir króna í laun frá
haustinu 2014 til sölunnar á kvótan-
um ári síðar. Í Tálknafjarðarhreppi
bjuggu einungis 297 manns árið
2014 þannig að hlutfall starfsmanna
Þórsbergs af heildaríbúafjölda var
hátt. Kvótinn fór til útgerðarfé-
lagsins Nesfisks í Garði. Tölulegar
upplýsingar um kvótasöluna koma
fram í ársreikningi Þórsbergs fyrir
árið 2015. Hluthafarnir fengu greitt
fyrir kvótann með krókaaflamarki
og krókaflahlutdeild fyrir 2.2 millj-
arða en tæplega 1.2 milljarðar króna
voru greiddir út í peningum.
Enginn varð ríkur
Guðjón Indriðason útgerðarmaður
er stærsti hluthafi Þórsbergs með
tæplega 70 prósenta hlut en ríkis-
fyrirtækið Byggðastofnun á tæp-
an fjórðung í fyrirtækinu. Forstjóri
Byggðastofnunar, Aðalsteinn Þor-
steinsson, segir að fyrirtækið hafi
ekki greitt neitt af söluverði eigna
Þórsbergs út úr félaginu og að pen-
ingarnir fyrir kvótann hafi verið
notaðir til að greiða upp skuldir. Að-
alsteinn segir að Þórsberg geri svo
út línubát frá Tálknafirði þar sem
krókaflamarkið er notað til veiða.
„Þetta eru undir tíu starfsmönn-
um núna. Auðvitað var þetta alveg
svakalegur skellur á Tálknafirði
því það voru þarna, þegar mest, lét
um 60 starfsmenn í útgerðinni og
frystihúsinu.“
Miðað við orð Aðalsteins varð
enginn ríkur á kvótasölunni á
Tálknafirði en málið sýnir hins vel
brestina í kvótakerfinu og hversu
ákvarðanir kvótahafa geta verið
afdrifaríkar fyrir lítil byggðarlög
á landsbyggðinni. Afleiðingarn-
ar urðu þær að þorpið missti sinn
stærsta atvinnurekanda og stór-
útgerð lagðist af í plássinu. Spurn-
ingin er hvort það sé endanlegt og
að stór útgerð geri ekki aftur út þar.
Í BEINU FLUGI FRÁ KEFLAVÍK
BÚDAPEST
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Ein af fallegri borgum Evrópu,
hún er þekkt fyrir sínar glæsi
byggingar sem margar eru
á minjaskrá UNESCO, forna
menningu og Spa/heilsulindir.
Við bjóðum einnig uppá mjög góð
heilsu/Spa hótel í Ungverjalandi
allt árið, en flogið er tvisvar í viku.
Ungverjar eru heimsþekktir fyrir
sína heilsumenningu en upphaf
hennar má rekja hundruð ár til
forna.
VERÐ 136.900.-
per mann í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug,
hótel með morgunmat, islenskur fararstjóri og
rúta til og frá hóteli.
12. – 19. JÚNÍ
AÐEINS
8 SÆTI
LAUS!
Seldu kvótann burt frá
Tálknafirði fyrir 3.4 milljarða
Matvörubúðinni lokað
Þá verður einu versluninni í þorp-
inu lokað um næstu mánaðamót en
hún er rekin í sama húsi og bens-
ínstöð N1 þó olíufélagið reki ekki
verslunina. Eigandi búðarinnar er
að flytja til Reykjavíkur. Eggert Þór
Kristófersson, forstjóri N1, segir lok-
un verslunarinnar hafi ekki áhrif á
rekstur N1 í þorpinu og að olíufélag-
ið muni áfram reka sjálfsafgreiðslu-
bensíndælu í þorpinu og vera með
einn starfsmann á Tálknafirði sem
meðal annars sér um þjónustu við
þá útgerð sem enn er í plássinu.
Íbúar á Tálknafirði munu því þurfa
að fara rúmlega 20 kílómetra leið
til Patreksfjarðar eftir nauðþurftum
eins og mjólk og brauði.
Stærri skellur 1995
Skólastjórinn í Grunnskólanum á
Tálknafirði, Helga Birna Berthel-
sen, segir að sem betur fer hafi flest-
ir fyrrverandi starfsmanna Þórs-
bergs fengið vinnu aftur og að því
sé ekki atvinnuleysi í þorpinu. „Það
eru ekki margir á atvinnuleysisskrá
hér á Tálknafirði. Við höfum ekki
orðið fyrir því að fólk hafi flutt héð-
an í burtu vegna þess að Þórsberg
lokaði. Um það leyti sem Þórsberg
lokaði höfðu fjórar barnafjölskyldur
með tíu börn á grunnskólaaldri ver-
ið búnar að ákveða að flytja í burtu
þannig að þegar skólinn opnaði aft-
ur um haustið 2015 voru tíu færri
nemendur í skólanum. Þetta er 1/5
hluti af fjöldanum. Þannig að þetta
leit illa út fyrir þá sem vissu ekki
betur. Við höfum hins vegar aðeins
misst tvö börn úr skólanum vegna
lokunar Þórsbergs.“
Helga Birna segir að Tálkna-
fjörður hafi hins vegar orðið fyrir
stærri skellum áður. „Fólk skilur þá
ákvörðun að Þórberg hafi hætt starf-
semi því reksturinn hafði gengið illa
lengi. Okkar finnst mjög leiðinlegt að
kvótinn hafi verið seldur í burtu. Við
höfum hins vegar lent í þessu svo
oft áður. Árið 1995 var skipið Tálkn-
firðingur selt í burtu og þá misstum
við rosalega mikinn kvóta í burtu og
frystihúsið lokaði. Þá misstum við
alveg rosalega mikið og Þórsberg
þurfti í kjölfarið að stækka mikið til
að vega upp á móti þessu og kaupa
mikinn kvóta. Það var kannski of
stór biti fyrir fyrirtækið.“
Leggst byggðin af?
Einn íbúi á Tálknafirði, sem ekki
vill koma fram undir nafni, segir að
ástandið í þorpinu eftir lokun Þórs-
bergs sé eins og „eftir Tsjernóbíl“
og hefur áhyggjur af því að byggð
í plássinu muni leggjast af fyrr en
seinna. Helga Birna tekur í svipaðan
streng þegar hún fjallar um barn-
eignir í þorpinu. „Yngstu börnin í
þorpinu eru fædd árið 2014 og eru
því rúmlega tveggja ára. Það er ekki
vitað til þess að nein kona í bæn-
um sé ólétt þannig að okkur fækkar
rosalega hratt. Þarna er tveggja ára
gat í skólanum hjá okkur því það er
svo lítið af ungu fólki hérna. Unga
fólkið okkar fer í burtu og kemur
ekki til baka því þess bíður ekkert
hérna. Auðvitað hef ég áhyggjur af
því að byggðin hér geti lagst af.“
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
Íslands hefur íbúum í Tálkna-
fjarðarhreppi fækkað um rúmlega
tíu prósent frá árinu 2014. Þá voru
þeir 297 en 267 árið 2016.
Skólastjóri Grunnskólans á Tálknafirði segir ekkert barn hafa fæðst í þorpinu frá
árinu 2014 þar sem svo lítið sé af fólki á barneignaraldri þar.
Enginn af hluthöfum Þórsbergs varð ríkur á kvótasölunni árið 2015 þar sem félagið var skuldsett og var reiðufé sem fékkst í viðskiptunum
notað til að greiða niður skuldir. Guðjón Indriðason er stærsti hluthafi Þórsbergs.