Fréttatíminn - 07.01.2017, Qupperneq 46
Sýrt grænmeti
er allra meina bót
Lærðu að sýra grænmeti og bættu heilsuna
M
jólkursýring er æva-
gömul náttúruleg
leið til að geyma
grænmeti en sýrt
grænmeti er löngu
þekkt fyrir hollustu sína. Flestir
kannast líklega við súrkál, en færri
vita kannski að það hægt er að
sýra næstum allt grænmeti. Sé það
unnið með hefðbundnum aðferð-
um kallar það fram ýmsar góðar
bakteríur og mjólkursýrugerla
sem eru góðir fyrir þarmaflór-
una og í raun nauðsynlegir fyrir
meltinguna. Vítamín varðveitast
vel með þessari geymsluaðferð og
aukast jafnvel. C-vítamín er eitt
þeirra. Þá er sýrt grænmeti auð-
meltanlegra en það ferska.
Mjólkursýrubakteríur eru nátt-
úrulega til staðar á grænmetinu
en aðferðin snýst um að skapa
réttar aðstæður til að þær nái yfir-
höndinni og komi af stað gerjun.
Til að prófa sig áfram í mjólkur-
sýringu er engin þörf á sérstökum
tækjum eða tólum. Í flestum eld-
húsum er að finna það sem til þarf.
Skurðarbretti, hnífur, grænmeti,
salt og stór glerkrukka er nóg til að
koma sér af stað.
Mánudaginn 9. janúar næst-
komandi, klukkan 17.30, mun
súrkálsmeistarinn Dagný Her-
mannsdóttir hefja erindaröðina
Eldhúsdagar á bókasafninu, á
Bókasafni Seltjarnarness, þar sem
hún mun leiða gesti í ferðalag um
undraheima súrkálsins og fræða
um hollustu mjólkursúrsins. Þar
að auki fá gestir að smakka á súr-
metinu.
Fyrir þá sem vilja ganga enn
lengra og kynna sér mjólkursýr-
ingu af alvöru, þá stendur Garð-
yrkjufélag Íslands fyrir námskeiði
í að sýra grænmeti miðvikudaginn
11. janúar, frá kl 18.30 til 22, í Síðu-
múla 1 í Reykjavík.
Það er Dagný sem heldur utan
um námskeiðið og eys úr visku-
brunni sínum, sem er botnlaus
þegar kemur að sýrðu grænmeti.
Hún heldur jafnframt úti facebook-
-síðunni: Súrkál og annað mjólkur-
sýrt grænmeti, þar sem áhugafólk
um sýrt grænmeti skiptist á ráðum
og uppskriftum.
Skráning á námskeiðið er í gegn-
um netfangið: gardyrkjufelag@gar-
durinn.is eða í síma 853-9923.
10 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017HEILSUTÍMINN
Mundu mig og ég man þig,
hið gleymda næringarefni
Kísill er lífsnauðsynlegt steinefni og hefur oft verið kallað hið gleymda næringarefni.
Unnið í samstarfi við geoSilica
Fyrirtækið geoSilica Iceland ehf. var stofnað árið 2012 af Fidu Abu Libdeh og Burkna Pálssyni og hefur það að
markmiði að framleiða hágæða
kísilríkar heilsuvörur, úr jarðhita-
vatni jarðvarmavirkjana á Íslandi,
til að stuðla að bættri heilsu. Fida
og Burkni fengu hugmyndina út frá
lokaverkefnum sínum í orku- og um-
hverfisfræði við Háskóla Íslands og
hafa nú þegar fengið fjölda viður-
kenninga fyrir þróunarstarf sitt.
Í lok árs 2014 kom á markað
fyrsta varan frá geoSilica en það er
hágæða 100% náttúrulegt íslenskt
kísilsteinefni í vökvaformi, tilbúið til
inntöku.
„Náttúrulæknar og heilsusér-
fræðingar mæla almennt með því
að þeir sem taka steinefni í töflu-
formi skipti reglulega um framleið-
endur þar sem þeir notast oft við
ýmisleg aukaefni sem geta safnast
upp í líkamanum og því gott að
skipta milli framleiðenda reglulega
til að koma í veg fyrir slíkt. Annað
gildir um steinefni sem eru í vökva-
formi til inntöku,“ segir Fida sem er
framkvæmdastýra fyrirtækisins og
margverðlaunaður frumkvöðull.
„Nú er ég ekki búin að skoða alla
aðra framleiðendur til hlítar en við
hjá geoSilica notumst ekki við nein
aukaefni, hvorki í framleiðsluferli
eða í lokaafurð og því er alveg ör-
uggt að taka íslensk kísilsteinefni
geoSilica allt árið í kring.“
Kísillinn er eitt algengasta stein-
efni jarðar og rannsóknir hafa sýnt
að fólk er ekki að fá nægilega mikið
af þessu mikilvæga steinefni úr
fæðunni, sérstaklega ekki kon-
ur. „Því mæla sérfræðingar með
aukinni inntöku kísils með kísil-
fæðubótarefnum, sérstaklega í
ljósi þess að kísilupptaka líkamans
minnkar með aldrinum,“ segir Fida.
Hún segir kísilinn hafa margþætt
áhrif. „Kísillinn styrkir allan bandvef
og stuðlar að skilvirkari mynd-
un kollagens í líkamanum. Hann
styrkir því húð og spilar mikilvægt
hlutverk í steinefnabúskap beina.
Hann styrkir einnig neglur og hár
og getur minnkað hárlos. Reynslan
hefur sýnt að þessi áhrif koma fram
á fyrsta mánuði sem fólk tekur
kísilsteinefnið okkar. Við höfum
einnig heyrt frá mjög mörgum sem
hafa fengið töluverða bót á gigtar-
verkjum. Síðast en ekki síst þá eru
margar rannsóknir sem benda á að
sterkt samband milli kísilinntöku og
aukinnar beinþéttni og þá sérstak-
lega hjá eldri konum.“
Íslenska kísilsteinefnið frá geoS-
ilica hefur slegið í gegn á Íslandi
þrátt fyrir ungan aldur fyrirtæk-
isins. „Við erum í flestum apótek-
um og heilsuverslunum en einnig
í Hagkaupum, Nettó og Fjarðar-
kaupum. Margir ferðamenn eru
hrifnir af vörunni og við erum því
líka í Duty Free og Jarðhitasýningu
ON við Hellisheiðarvirkjun þar sem
hráefnaframleiðsla fer fram. Við
erum einnig með eigin vefverslun
inn á geosilica.is og erum komin
með samninga og byrjuð að selja í
Bandaríkjunum.“
Fida skýrir þessar vinsældir með
því hversu einstök varan sé. „Við
erum að framleiða 100% náttúru-
legan íslenskan jarðhitakísil úr jarð-
hitavatninu frá Hellisheiðarvirkjun.
Þetta er algjör nýjung og engin
sambærileg vara til á heimsvísu.
Lítil selta jarðhitavökvans á svæð-
inu tryggir mjög litla kornastærð
kísilsins sem bætir upptöku hans
í líkamanum og þess vegna finnur
fólk almennt fyrir áhrifum strax á
fyrstu flösku.“
Fida Abu Libdeh, framkvæmdastýra
geoSilica, segir að í vörum fyrirtækisins
séu ekki nein aukaefni. geoSilica
framleiðir hágæða kísilríkar heilsuvörur
úr jarðhitavatni jarðvarmavirkjana á
Íslandi.
Verkir í
liðum?
Fæst án lyfseðils
í apótekum
• Inniheldur Glucosamin súlfat
• Duft í skammtapokum
• Leyst upp í vatni – auðvelt að taka inn
• Nær bragðalaust – með sætuefnum
• Einn skammtur á dag
• Ódýrari valkostur
Við vægri til meðalsvæsinni
slitgigt í hné
Notkunarsvið: Glucosamin LYFIS er notað til að draga úr einkennum vægrar til meðalsvæsinnar slitgigtar í hné. Ekki má nota lyfið ef um er að ræða ofnæmi fyrir glucosamini,
einhverju öðru innihaldsefni lyfsins eða fyrir skelfiski, þar sem glucosamin er unnið úr skelfiski og ef um er að ræða meðfæddan efnaskiptasjúkdóm (fenýlketonmigu). Gæta skal
sérstakrar varúðar: Einstaklingar með sykursýki, astma, alvarlegt lifrar- eða nýrnavandamál, óþol fyrir einhverjum tegundum sykurs eða eru á natríumskertu fæði skulu leita
ráða hjá lækni áður en lyfið er notað. Einnig þarf að útiloka að um sé að ræða annan liðsjúkdóm. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar um notkun og því
skal ekki nota Glucosamin LYFIS á meðgöngu eða samhliða brjóstagjöf. Skömmtun: Fullorðnir, einnig aldraðir: Innihald eins skammtapoka á dag, helst með mat. Algengustu
aukaverkanir: Ógleði, kviðverkur, meltingartruflanir, vindgangur, hægðatregða og niðurgangur. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2014.