Fréttatíminn - 07.01.2017, Qupperneq 56
20 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017HEILSUTÍMINN
Mikilvægt að hafa
þarmaflóruna í toppstandi
Gló selur lífrænar heilsuvörur ásamt sérfæðisvörum og starfsfólk
gefur leiðbeiningar og veitir ráðgjöf varðandi val á vörum.
Unnið í samstarfi við Gló
Verslunin Gló, sem er í Fákafeni 11, býður upp á mikið úrval af ýmis-konar heilsusamlegum
og lífrænum heilsuvörum ásamt
sérfæðisvörum fyrir t.d. vegan
og glútenlaust mataræði. Þar
er hægt að fá ráðgjöf varðandi
hvaða vörur henta og leiðbein-
ingar um hvernig best er að nota
þær.
„Fólk getur fengið góða þjón-
ustu og ráðgjöf hjá okkur. Við sem
vinnum hérna í búðinni erum mjög
vel að okkur og leggjum okkur
fram um að þekkja vel þær vörur
sem vil seljum,“ segir Gunndís
Eva Baldursdóttir, starfsmaður
Gló. Hún bendir á að það sé ekki
síður mikilvægt að halda heimil-
inu heilbrigðu líkt og líkamanum,
en í versluninni er meðal annars
hægt að fá úrval af ilmkjarnaolí-
um, lífrænum hreinsiefnum og
húðvörum sem eru bæði vegan og
„cruelty free“.
Hvaða líkamlega heilsu varðar
segir Gunndís einna mikilvæg-
ast að einblína á þarmaflóruna og
heilbrigði hennar. „Ef þarmaflór-
an er ekki í lagi þá er allt annað
í ólagi. Það er mikilvægt að hafa
hana í toppstandi, annars geturðu
sleppt öllu hinu.“
Það eru nokkrar vörur sem hún
mælir sérstaklega með fyrir fólk
sem er að byrja að taka sig á og
vill koma jafnvægi á þarmaflóruna
eftir hátíðarnar.
„Ég myndi mæla með að GTF
Chromium frá Wild Nutrition,
sem inniheldur bæði andoxun-
arefni og króm og kemur jafn-
vægi á blóðsykurinn. Það er snilld
þegar maður er að koma sér út
úr smá sukki. Svo erum við með
Botanical Caprylic Acid Plus sem
eru fitusýrur sem taldar eru hafa
hamlandi áhrif á vöxt candida
sveppsins og græða meltingar-
veginn. Þurrkað aloe vera í hylkj-
um frá Kiki Health er frábær vara
sem græðir meltingarveginn og
stuðlar að reglulegri og góðri
Unnið í samstarfi við Gló
Að taka létta djúsföstu er tilvalin leið til að endurstilla sig fyrir árið fram undan og til þess að
taka ekki sykurát og aðrar óholl-
ar venjur með inn í nýja árið. En
kostirnir við djúsföstu eru fleiri,
húðin verður til dæmis betri og
líkaminn fær tíma til að gera við
ýmis vandamál.
Djúspokinn frá Gló inniheld-
ur sex djúsflöskur: tvo græna
safa, einn túrmerik safa, einn
rauðrófusafa, einn berjasmoothie
og einn grænan smoothie. Allir
safarnir eru kaldpressaðir í Gló
á hverjum morgni. Tekið er við
pöntunum á vefnum glo.is en
ganga þarf frá pöntun í síðasta
lagi daginn áður en fólk vill sækja.
Fólk notar djúspokana í mis-
jafnlega langan tíma og í ýmsum
tilgangi. Sumir taka einn dag af
og til en aðrir allt upp í viku til tíu
daga í röð. Flestir eru sammála
um að safadagurinn auðveldi í
framhaldinu að bæta mataræði
og neysluvenjur og velja hollari
valkosti.
Endurstilltu þig með djúsföstu
Flestir eru sammála um að safadagur auðveldi bætingu mataræðis og neysluvenja.
hægðalosun. Þetta eru vörur sem
ég mæli með fyrir alla, ásamt B12
og D-vítamíni sem eru mjög mik-
ilvæg vítamín fyrir fólk á þessum
tíma árs.“ Þá segir hún fjölvítamín
frá Wild Nutrition einnig mjög
góðan grunn fyrir þá sem vilja
taka sig á, á þessum tíma árs.
En Wild Nutrition framleiðir
svokölluð „food-grown“ bætiefni
sem þýðir að vítamínin og stein-
efnin eru bundin fæðu í vinnslu-
ferlinu. Þannig eru efnin í hverju
hylki í náttúrulegu samhengi við
önnur næringarefni sem líkaminn
þekkir. Í hverju hylki er að finna
skammta af slíkum blöndum í
þurrkuðu formi án allra auka- og
fylliefna. Wild Nutrition línan sam-
anstendur af fjölbreyttu úrvali
vítamína, steinefna og vítamín-
blanda fyrir fólk með ólíkar þarfir
á mismunandi æviskeiðum. Meðal
vinsælustu Wild Nutrition varanna
eru fjölvítamín fyrir karla og kon-
ur í mismunandi samsetningum
fyrir ólíkan aldur, króm sem stuðl-
ar að jafnari blóðsykri, magnesí-
um fyrir fjölbreytta heilsubót og
D-vítamín sem marga Íslendinga
skortir.
Gló býður einnig upp á gott
úrval af próteini fyrir þá sem
hreyfa sig mikið og vilja byggja
upp vöðva. „Við erum bæði með
mysu- og veganprótein, en tölu-
vert meira úrval af mjólkurlaus-
um próteinum sem eru með flottri
uppbyggingu. Þau eru því engan
veginn síðri en mjólkurpróteinin,“
útskýrir hún.
Gunndís mælir hiklaust með
því að fólk fái sér chiagraut á
morgnana í staðinn fyrir morg-
unkorn og hefji daginn uppfullt
af orku. „Við veitum mjög góðar
leiðbeiningar og aðstoð með það í
versluninni. Gefum meðal annars
uppskriftir af chiagrautum, ásamt
því að selja tilbúinn chiagraut. Við
erum með mjög góð chiafræ frá
Purya ásamt ýmiskonar nærandi
blöndum. Ég myndi mæla með því
við fólk sem vill fara að gera sér
almennilegan morgunmat.“
En verslunin er líka með góð-
ar lausnir fyrir þá sem ekki hafa
mikinn tíma og eru á ferðinni.
„Við erum með frábæra tilbúna
próteindrykki frá Orgain sem eru
mjög bragðgóðir og innihalda
vegan prótein. Drykkirnir eru al-
veg mjólkurlausir og það eru 16
grömm af próteini í einni flösku.
Hér er líka hægt að fá ýmiss kon-
ar næringarstykki og handhægar
máltíðir.“
Gott er að drekka smoothie í hádeginu og á kvöldverðartíma en drekka
safana þess á milli.
• Til að auka áhrifin enn frekar er gott að drekka einn eða fleiri
bolla af lífrænu jurtate yfir daginn. Í Gló Fákafeni fæst t.d. frá-
bært úrval af slíku góðgæti með ýmsa virkni.
• Það má alveg narta í hrátt grænmeti og ávexti eða fá sér lífrænar
hnetur og fræ ef svengd segir til sín.
• Mörgum finnst gott að byrja safadaginn á góðum morgun-
mat á borð við chia graut eða smoothie skál. Þær er hægt að
gera heima eða næla sér í eina í Fákafeninu þar sem heilnæmur
morgunverður er framreiddur á hverjum degi.
• GTF Króm frá Wild Nutrition nýtur mikilla vinsælda hjá fólki sem
vill halda betri stjórn á blóðsykurssveiflum og draga úr sykur-
löngun. Það getur hjálpað mörgum að taka króm nokkra daga
fyrir safadaginn, á meðan honum stendur og nokkra daga á eftir.
• Það er upplagt að blanda auka næringu út í safana, margir eiga
t.d. grænt ofurfæðiduft uppi í skáp sem er frábært að hrista út í
græna safann en einnig er hægt að kaupa frábæra græna blöndu
frá Kiki Health í Fákafeni.
• Við mælum með að dagana á undan sé dregið úr sykur- og kaffi-
neyslu, að tekin séu skref í átt að hreinna mataræði og mikið
unnar matvörur séu settar til hliðar. Að sama skapi er mikilvægt
að næringarríkur og heilnæmur matur sé valinn í kjölfar safa-
dagsins.
• Þegar kalt er úti getur verið gott að fá sér heita og næringarríka
súpu einu sinni yfir daginn. Hægt er að fá ljúffengar og heil-
næmar súpur á veitingastöðum Gló alla daga, en í versluninni í
Fákafeni eru einnig til nærandi tilbúnar súpur til að hita heima.
Nokkur góð ráð á djúsdegi
Djúspokinn frá Gló inniheldur sex djúsflöskur: tvo græna safa, einn túrmerik safa,
einn rauðrófusafa, einn berjasmoothie og einn grænan smoothie.
Ef þarmaflóran er í ólagi er allt annað í ólagi
líka, segir Gunndís, starfsmaður Gló. Mynd | Hari
Gló selur fjölbreyttar heilsusamlegar og lífrænar
vörur ásamt ýmiskonar sérfæðisvörum. Mynd | Hari