Fréttatíminn - 07.01.2017, Side 62
26 LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2017HEILSUTÍMINN
Aldrei verið í
jafn góðu formi
Gísli Kristján Birgisson er eins og nýr maður eftir
100 daga lífsstílsáskorun á Hilton Reykjavík Spa
þar sem hann léttist um 18,6 kíló.
Nýtt námskeið hefst á mánudaginn.
Unnið í samstarfi við
Hilton Reykjavík Spa.
Ég hef aldrei verið í öðru eins líkamlegu og andlegu formi. Maður var bara tekinn og gerður að nýjum manni á
hundrað dögum,“ segir Gísli Krist-
ján Birgisson rafvirki.
Gísli skráði sig í 100 daga lífs-
stílsáskorun á Hilton Reykjavík Spa
síðasta haust og sér ekki eftir því.
Hann léttist um 18,6 kíló á þessum
hundrað dögum, fituprósenta hans
lækkaði um 8,8% og ummálið um
kviðinn minnkaði um 15 sentímetra.
„Ég var 110,1 kíló þegar ég byrjaði
í september og endaði í 91,5 kílóum
nú í desember. Svo reyndar komu
tvö kíló aftur yfir jólin en þau verða
fljót að fara,“ segir Gísli í léttum
tón.
Gísli er 55 ára og ákvað að taka
sig á þegar honum fannst hann
vera orðinn of þungur og stirður
og luralegur. „Nú er ég alveg gjör-
breyttur í öllum hreyfingum og líður
rosalega vel,“ segir hann.
100 daga lífsstílsáskorunin
á Hilton Reykjavík Spa hentaði
Gísla mjög vel. Þar fékk hann ráð-
leggingar um mataræði, mælingar
og leiðsögn í tækjasalnum auk
þess sem boðið er upp á fyrirlestra.
„Ég fékk alveg frábærar móttök-
ur hjá þjálfurunum. Þau eru ólík og
áherslurnar eru mismunandi þannig
BATTERÍIN
ENDURHLAÐIN Á BALÍ
Tripical Travel býður upp á yoga- og heilsuferð fyrir konur
til grænu eyjunnar Balí í mars. Fararstjórn verður í höndum
Þóru Hlínar Friðriksdóttur og Maríu Dalberg.
Unnið í samstarfi við
Tripical Travel.
Við ætlum að draga okkur frá hinni daglegu rútínu, skilja álagið og allt stress-ið eftir heima og endur-
hlaða batteríin. Þetta snýst fyrst
og fremst um að byggja sig upp og
endurnæra líkama og sál – og um-
fram allt að hafa gaman,“ segir Þóra
Hlín Friðriksdóttir, yogakennari
og hjúkrunarfræðingur, en hún og
yogakennarinn og leikkonan María
Dalberg eru búnar að skipuleggja
yoga- og heilsuferð fyrir konur til
eyjunnar Balí, í Indónesíu, dagana
7.-21. mars, í samvinnu við ferða-
skrifstofuna Tripical Travel.
Ferðin hefst við hvítu strand-
lengjuna Nusa Dua, þar sem gist
verður í fjórar nætur á hinu fimm
stjörnu Nusa Dua Beach Hotel. Þar
gefst þátttakendum meðal annars
tækifæri til að læra indónesískan
dans, sigla til hinna fögru Gilli eyja
og snorkla í hlýjum sjó, svo fátt eitt
sé nefnt.
„Þetta er í raun og veru ágæt-
is aðferð til að vinda aðeins ofan
af þreytunni áður en við höldum
á heilsu-setrið Shala Bali í lista-
mannabænum Ubud í hjarta Balí, til
að hefja sjálft yoga-prógrammið,“
útskýrir María. „Við Þóra erum
báðar Ashtanga yoga-kennarar
og munum því leiða hefðbundna
Ashtanga tíma og Vinyasa tíma,
sem eru byggðir á Ashtanga
kerfinu, alla morgna við sólar-
að úr varð skemmtilegt námskeið
að öllu leyti. Viðmót starfsfólks-
ins skipti mig líka miklu máli. Þarna
er fólk virkilega tilbúið að hjálpa
manni, viðmótið er hlýlegt og það er
faglega að öllu staðið.“
Nýtt námskeið, Leiðin að betri
lífsstíl, hefst einmitt á Hilton
Reykjavík Spa á mánudaginn næsta,
9. janúar. Þeir sem standa sig best á
námskeiðunum eru verðlaunaðir og
Gísli var einmitt sigurvegari síðasta
námskeiðs. Hann hlaut að launum
árskort á Hilton Reykjavík Spa.
„Nú kem ég til með að halda
áfram. Ég fæ nýtt prógram og held
áfram að nýta mér þessa rosa-
lega flottu þjónustu. Síðan er ekki
amalegt að fara í heitu pottana á
eftir og fá axlanudd. Það er bara
einstakt.“
upprás, eða klukkan 7, í opnum
yogasal með dásamlegu útsýni yfir
hrísgrjónakra. Og ljúkum þeim svo
með djúpri slökun.“
Þóra bætir við að tímarnir
henti byrjendum jafnt sem lengra
komnum enda sé það markmið
þeirra Maríu að bjóða allar konur
velkomnar með í ferðina. Svo sé
það bara undir hverri og einni konu
komið hvað hún sé reiðubúin að
ganga langt í yoga-iðkuninni meðan
á dvöl stendur.
Þið talið um kvennaferð,
endurspeglar dagskráin það?
„Jú, hún er alveg sérsniðin að kon-
um. Suma eftirmiðdaga mun hópur-
inn til dæmis sameinast á vinnu-
stofum og í systrahringjum, þar sem
við ætlum að fara í styrkleika- og
veikleikagreiningu og sjálfskoðun.
Hvað felst í því að vera kona, er til
dæmis ein spurning sem við ætlum
að spyrja okkur og hvert erum við
að stefna í lífinu og svo framvegis.
Þannig gefst okkur einstakt tæki-
færi til að byggja hverja aðra upp
í góðum félagsskap og nærandi
umhverfi, njóta þeirra fjölmörgu
heilsumeðferða sem verða í boði og
auðvitað borða hollan mat.“
En María segir að í Ubud sé ara-
grúi veitingastaða sem bjóði ljúf-
fengan mat á sanngjörnu verði, þar
á meðal vegan- og grænmetisstaðir,
auk þess sem lífrænt morgun-
verðarhlaðborð verði innifalið í
sjálfum pakkanum, þannig að allar
konur ættu að finna þar eitthvað
við sitt hæfi.
Og eitt af því sem er svo á döfinni
er heimsókn til galdramanns?
„Já, það er kannski rétt að taka
fram að Balíbúar eru mjög andlega
sinnaðir,“ útskýrir Þóra brosandi.
„Þannig að okkur finnst kjörið
að nota tækifærið og heimsækja
balískan galdramann og fá að vita
hvað hann hefur að segja.“
Hún bendir á að íbúarnir séu
kurteisir og elskulegir og eyjan sjálf
dulúðug, friðsæl og fögur. „Dvöl
mín þar í fyrra hafði djúpstæð áhrif
á mig, en fyrir mér ganga skemmti-
legustu ferðirnar út á að kynnast
ólíkri menningu og trú,“ segir hún
og bætir við að frá því á síðasta
ári sé hana því búið að dreyma um
að heimsækja eynna aftur í góðum
hóp. Þess vegna hafi Balí meðal
annars orðið fyrir valinu.
Það er greinilega mikil tilhlökk-
un í ykkur. „Já, við erum auðvitað
spenntar að sjá muninn á hópn-
um, hvað hann verður úthvíldur og
endurnærður í lokin,“ segir María.
100 daga lífsstílsáskorun hefst mánudaginn 9. janúar.
Mælingar á tveggja vikna fresti, ráðleggingar um mataræði (matardagbækur) og þrír fyrirlestrar hjá
þjálfaranum og næringarfræðingnum Agnesi Þóru Árnadóttur. Leiðsögn í sal og persónuleg aðstoð. Tímar
eru klukkan 17.30 alla mánudaga og miðvikudaga og klukkan 16.30 á föstudögum. Innifalið í verði er
aðgangur að Spa, handklæði við komu og herðanudd í heitum pottum.
Skráning og nánari
upplýsingar má fá á netfanginu
spa@hiltonreykjavikspa.is
og í síma 444 5090.
Hilton Reykjavík Spa er heilsu-
lind sem veitir fyrsta flokks þjón-
ustu í rólegu og þægilegu and-
rúmslofti.
Hilton Reykjavík Spa hefur upp
á að bjóða frábæra aðstöðu til
líkamsræktar. Meðlimir fá aðstoð
þjálfara í sal og aðgang að opnum
tímum. Þeir hafa aðgang að útiað-
stöðu, heitum pottum og gufu, og
fá herðanudd í pottum. Þá fá þeir
handklæði við komuna.
Leiðin að betri lífsstíl
Frábær heilsulind
Fólk frá öllum heimshornum sækir bæinn Ubud til að iðka yoga, borða góðan mat og
njóta lífsins. Nokkur framúrskarandi yoga-stúdíó eru í bænum sem þær Þóra og Mar-
ía segjast geta mælt með. En þess má geta að heilsusetrið Shala Bali er búið öllum
helstu þægindum og geta þátttakendur valið um eins eða tveggja manna herbergi.
Þóra Hlín, til hægri, kennir Vinyasa yoga á Hilton Reykjavík Spa, býður fyrirtækjum
upp á yoga-námskeið og er jafnframt hjúkrunarfræðingur. María Dalberg kennir
Ashtanga yoga í Sólir jóga- og heilsusetri og býður upp á yoga-námskeið fyrir
fyrirtæki ásamt því að vera leikkona og framleiðandi. Saman eiga þær og reka
Yogastund og hafa reynslu af heilsu- og yogaferðum, meðal annars til Indlands,
Thaílands og Balí.
Gísli Kristján Birgisson náði frábærum ár-
angri í 100 daga lífsstílsáskorun á Hilton
Nordica Spa. Hér er hann með þjálfurun-
um Patrick og Bjarti sem ásamt Agnesi
Þóru Árnadóttur hvöttu hann áfram.
Mynd | Hari